Guðmundur Magnússon

Fréttamynd

Barnaleg viðbrögð við könnun

Þegar 84% Íslendinga segjast ekki vilja vera á lista hinna staðföstu þjóða eru þeir að mótmæla því að ráðist skyldi inn í Írak í óþökk Sameinuðu þjóðanna og án heimildar í alþjóðalögum. Þeir telja að ríkisstjórnin hafi ekki haft heimild til að nota nafn Íslands til að hjálpa til við að réttlæta innrásina. Þetta er augljóslega óþægileg niðurstaða fyrir þá menn sem ábyrgðina bera en þetta er veruleiki og undan honum geta þeir ekki vikið sér.

Fastir pennar
Fréttamynd

Deilurnar um Impregilo

Ef Impregilo stendur við virkjanasamninginn á verkalýðshreyfingin að láta fyrirtækið í friði. Sé samningurinn ekki virtur er það skylda íslenskra stjórnvalda að grípa inn í jafnvel þótt það skapi tímabundna óvissu um framgang verksins </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Almenningur móti stjórnarskrána

Stjórnmál á Íslandi hafa of lengi að mestu verið einskorðuð við ýmiss konar dægurþras. Atburðir síðustu mánaða hafa með óvæntum hætti sett grundvallaratriði og meginsjónarmið á dagskrá. Tími var til kominn og vonandi ber þjóðin gæfu til að vinna vel úr þeim tækifærum sem nú skapast.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vörn fyrir mannréttindi

Ástæða er til að gleðjast yfir úrskurði hæstaréttar Bretlands. Hann felur í sér mikilvæga viðspyrnu gagnvart þeim sem ekki sjá mótsögnina í því að verja frelsi og mannréttindi með því að byggja vernd þeirra á geðþóttamati ríkisvaldsins hverju sinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Staðreyndir fram í dagsljósið

Ef ríkisstjórninni er annt um álit sitt og trúverðugleika á hún að fara að tilmælum stjórnarandstöðunnar og leggja öll spil á borðið varðandi aðdraganda stuðningsyfirlýsingarinnar við innrásina í Írak í fyrravor.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þátttaka almennings er mikilvæg

Það væri ríkisstjórninni til framdráttar ef hún beitti sér fyrir því að starf stjórnarskrárnefndar færi fram fyrir opnum tjöldum og almenningi gæfist kostur á að leggja sitt til málanna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kjarabót fyrir almenning

Og ráðherrann spurði gagnrýnendur í sölum þingsins: Hvað er eiginlega athugavert við það að lækka skattana á venjulegu vinnandi fólki? Hið eðlilega svar er: Það er ekkert athugavert við það. Það var kominn tími til. Skattalækkunin er lofsverð og ríkisstjórninni til álitsauka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gerðardómurinn var óhjákvæmilegur

Enn hafa samninganefndir kennara og sveitarfélaga nokkurra daga frest til að ljúka vinnudeilunni með frjálsum samningi áður en gerðardómurinn tekur til starfa. Þeir eiga að reyna það af fremsta megni. Báðir deilendur verða þá að teygja sig eins langt í samkomulagsátt og nokkur möguleiki er á.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gerðardómur er sanngjörn leið

Á þessum vettvangi hefur áður verið hvatt til þess að gerðardómi verði falið að útkljá deiluna. Það er sanngjörn leið sem er hlutlaus gagnvart báðum aðilum, sveitarfélögunum og Kennarasambandinu.

Fastir pennar