Formúla 1

Fréttamynd

Mosley þrýstir á keppnisliðin

Max Mosley hefur nú gefið það út að keppnisliðin sem enn hafi ekki skuldbundið sig lengur en til ársins 2007 verði gefinn mánaðarfrestur til að semja eftir sérstakan fund sem haldinn verður í næsta mánuði - ella verði þeim gert að hætta keppni.

Sport
Fréttamynd

Forseti Renault dulur

Carlos Ghosn, forseti Renault í Formúlu 1, vill lítið gefa upp um framtíðaráform liðsins, en segir að það muni í það minnsta verða með á næsta keppnistímabili. Ghosn er ekki sáttur við framtíðaráform æðstu manna í íþróttinni og segir lið sitt aðeins halda áfram að því tilskyldu að það sjái sér hag í því.

Sport
Fréttamynd

Keppnin á Spa blásin af

Nú hefur verið staðfest að ekki verði keppt á Spa-brautinni frægu í Formúlu eitt í haust eins og til stóð, því mótshaldarar sjá fram á að ekki verði hægt að ljúka nauðsynlegu viðhaldi á brautinni í tæka tíð. Rekstur brautarinnar sigldi í strand í fyrra, en nú er ljóst að keppnir ársins verða 18 í stað 19. Spa-brautin er mjög vinsæl meðal ökumanna í Formúlu 1 og hefur verið kölluð ein sú allra skemmtilegasta.

Sport
Fréttamynd

Williams ætlar á topp þrjú

Frank Williams hefur gefið það út að lið hans, sem nú ekur með Cosworth-vélar í stað BMW, eigi að geta náð á topp þrjú í keppni bifreiðasmiða á komandi tímabili í Formúlu 1.

Sport
Fréttamynd

Raikkönen hefur áhyggjur

Finnski ökuþórinn Kimi Raikönnen segir að lið McLaren Mercedes verði að láta hendur standa fram úr ermum á næstunni, því hann hafi áhyggjur af vél nýja bílsins sem þegar sé farin að verða liðinu til trafala á fyrstu æfingum tímabilsins.

Sport
Fréttamynd

Super Aguri verður ellefta liðið

Alþjóða akstursíþróttasambandið, FIA, samþykkti í dag formlega að veita liði Super Aguri keppnisrétt í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili og verður liðið því það ellefta sem keppir um heimsmeistaratitilinn í ár.

Sport
Fréttamynd

Honda er með bestu ökumennina í Formúlu 1

Nick Fry, stjóri Honda-liðsins í Formúlu 1, er ekki í vafa um að ökumenn liðsins muni skila liðinu fyrsta sigrinum í sjö ár á næsta tímabili. Sem kunnugt er hét lið Honda áður BAR, en Honda er nú með í Formúlu 1 í fyrsta sinn síðan 1968.

Sport
Fréttamynd

Almenn ánægja með nýjan Ferrari

Ferrari hefur nú forlega frumsýnt nýja 2006-bílinn sinn sem hefur fengið heitið 248. Bíllinn var ekinn í fyrsta sinn á Mugello-brautinni á Ítalíu í síðustu viku og var Aldo Costa, hönnuður bílsins var mjög ánægður með útkomuna. "Ég er í skýjunum yfir því hvernig bíllinn er að koma út," sagði hann.

Sport
Fréttamynd

Nýr McLaren frumsýndur í Barcelona

Pedro de la Rosa, æfingaökumaður hjá McLaren, frumsýndi í dag nýjan bíl frá framleiðandanum á æfingabraut í Barcelona á Spáni. Rosa var ánægður með bílinn og sagði hann gefa góð fyrirheit. "Ég er auðvitað bara búinn að taka örfáa hringi á bílnum, en hann lofar mjög góðu," sagði Spánverjinn.

Sport
Fréttamynd

Belgíukappaksturinn úr sögunni

Belgíukappaksturinn í Formúlu 1 er úr sögunni ef marka má fréttir frá Belgíu, eftir að Bernie Ecclestone og hans mönnum mistókst að bjarga rekstri Spa-brautarinnar eins og til stóð. Mótshaldararnir í Belgíu urðu gjaldþrota á dögunum, en talið var víst að Formúlumógúllinn Ecclestone gengi í málið og bjargaði keppninni.

Sport
Fréttamynd

Villeneuve ánægður með nýja bílinn

Ökuþórinn Jacques Villeneuve er mjög ánægður með nýja BMW-Sauber bílinn sem hann reynsluók í fyrsta sinn í dag og segist viss um að bíllinn eigi eftir að gera góða hluti á komandi keppnistímabili.

Sport
Fréttamynd

Nýr BMW-Sauber frumsýndur

Nýr keppnisbíll BMW-Sauber liðsins í Formúlu 1 var frumsýndur formlega í Valencia á Spáni í dag og hafa forráðamenn liðsins lofað að láta til sín taka á komandi tímabili. BMW skaffaði áður vélar fyrir lið Williams, en hefur nú keypt lið Sauber og hefur sett stefnuna á heimsmeistaratitil innan þriggja ára.

Sport
Fréttamynd

Schumacher prófaði nýja bílinn í dag

Michael Schumacher prufukeyrði 2006 árgerðina af Ferrari á Fiorano æfingabrautinni í dag. Schumacher æfði ræsingar og ók bílnum fjóra hringi, en bíllinn verður ekki frumsýndur formlega fyrr en á Mugello-brautinni þann 24. janúar.

Sport
Fréttamynd

Hættu að tala um að hætta

Ralf Schumacher, ökumaður Toyota og bróðir fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher hjá Ferrari, hefur aldrei verið feiminn við að tjá skoðanir sínar á bróður sínum og nú hefur hann gefið það út að Michael ætti að hætta að tala um að leggja stýrið á hilluna og einbeita sér að því að vinna titla með liði sínu.

Sport
Fréttamynd

Nýr Ferrari til sýnis innan skamms

Forráðamenn Ferrari hafa tilkynnt að 2006 bíllinn verði frumsýndur á Mugello æfingabrautinni þann 24. janúar næstkomandi, en vel má vera að bíllinn verði prófaður öllu fyrr, jafnvel næsta mánudag að sögn Jean Todt, stjóra liðsins.

Sport
Fréttamynd

Nýju reglurnar henta Ferrari

Nýji ökumaður Ferrari, Felipe Massa, segir að nýjar reglur varðandi hjólbarðanotkun muni verða Ferrari til tekna á næsta tímabili, en Ferrari þótti líða fyrir reglur sem settar voru fyrir síðasta tímabil og kröfðust þess að liðin kepptu á sömu hjólbörðunum í heila keppni.

Sport
Fréttamynd

Schumacher íhugar að hætta

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher hefur gefið það út að hann sé að íhuga að hætta eftir komandi tímabil í Formúlu 1. Hinn sjöfaldi heimsmeistari vill þó ganga úr skugga um hvort Ferrari-lið hans hefur burði til að komast aftur í fremstu röð áður en hann tekur endanlega ákvörðun.

Sport
Fréttamynd

Honda er betra en Ferrari

Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello sem nýverið gekk í raðir Honda-liðsins í Formúlu 1, segir að lið Honda sé sterkara en Ferrari í dag og það hafi orðið til þess að hann ákvað að skipta um lið í sumar.

Sport
Fréttamynd

Schumacher segir Ferrari á réttri leið

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher segir að Ferrari-liðið sé á réttri leið í að koma sér á meðal þeirra bestu á ný og spáir að næsta keppnistímabil verði mun betra en árið 2005, þar sem liðið olli miklum vonbrigðum.

Sport
Fréttamynd

Þýski kappaksturinn í hættu?

Enn berast fréttir af því úr Formúlu 1 að illa gangi að reka braut í mótinu og nú er það Hockenheim-brautin í Þýskalandi sem er sögð standa verulega höllum fæti fjárhagslega.

Sport
Fréttamynd

Toyota hefur áhuga á Raikkönen

Þýska blaðið Bild greinir frá því um helgina að lið Toyota vinni nú hörðum höndum að því að lokka finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig þegar samningi hans við McLaren lýkur eftir næsta tímabil. Toyota er sagt hafa boðið honum 25 milljón evrur í árslaun gegn því að hann geri samning við liðið, en metnaður Toyota að komast á toppinn í Formúlu 1 er mikill.

Sport
Fréttamynd

Super Aguri væntanlega með 2006

Japanska keppnisliðið Super Aguri verður væntanlega ellefta liðið í keppnum næsta árs í Formúlu 1, eftir að samþykki fékkst frá öllum tíu liðunum í mótinu fyrir þáttöku nýja liðsins. Liðið mun keppa með vélar frá Honda, en það á nú aðeins eftir að hljóta samþykki FIA til að verða með á næsta ári, en hingað til hefur ekki gengið nógu vel að ganga frá fjárhagshliðinni á málinu enda ekkert ódýrt í Formúlu 1.

Sport
Fréttamynd

Ég átti engan þátt í ákvörðun Alonso

Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að hann hafi átt þátt í því að heimsmeistarinn Fernando Alonso hafi ákveðið að semja við McLaren árið 2007. Briatore er einnig umboðsmaður Alonso, en það var Briatore sem tók Alonso undir sinn verndarvæng hjá liðinu á sínum tíma og gaf honum tækifæri, sem á endanum varð til þess að Alonso varð heimsmeistari aðeins 24 ára gamall.

Sport
Fréttamynd

Alonso fer til McLaren árið 2007

Þær stórfréttir bárust úr Formúlu 1 í morgun að heimsmeistarinn ungi, Fernando Alonso hjá Renault, hefur samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007 þegar samningur hans við Renault rennur út.

Sport
Fréttamynd

Schumacher byrjar vel

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher er byrjaður að æfa á fullu eftir stutt frí og í gær náði hann frábærum tíma á æfingum á Jerez brautinni á Spáni. "Mér finnst ég mjög ferskur um þessar mundir og ég er ákaflega einbeittur," sagði Schumacher, sem vill eflaust gleyma síðasta ári sem fyrst og einbeita sér að því að komast á meðal þeirra bestu á ný.

Sport
Fréttamynd

Ákvörðun Michelin hefur engin áhrif

Forráðamenn heimsmeistara Renault segja að ákvörðun Michelin dekkjaframleiðandans að draga sig út úr Formúlu 1 eftir næsta tímabil hafi engin áhrif á áform liðsins um að verja titilinn á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Michelin hættir eftir næsta keppnistímabil

Dekkjaframleiðandinn Michelin hefur gefið það út að hann muni hætta að framleiða hjólbarða fyrir Formúlu 1 eftir tímabilið 2006, en ákvörðun þessi kemur í kjölfar þess að alþjóða aksturssambandið, FIA, ákvað á dögunum að öll dekk í keppnum frá og með árinu 2008 skuli vera frá sama framleiðandanum.

Sport
Fréttamynd

Vodafone fer frá Ferrari til McLaren

Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er.

Sport
Fréttamynd

Ekkert frí hjá Schumacher í ár

Fyrrum margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, sleppti að taka sitt venjubundna vetrarfrí í ár eins og hann hefur gert undanfarið og hefur þess í stað fylgst náið með prófunum á Ferrari-bílnum og segist ekki geta beðið eftir að byrja að keyra á ný.

Sport