Formúlunni flýtt vegna storms Formúlu 1-keppni dagsins hefur verið flýtt um þrjár klukkustundir. Keppni dagsins hefst klukkan 17:00 og bein útsending hefst klukkan 16:30 á Sýn Sport Viaplay. Formúla 1 3.5.2026 12:42
Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn Kimi Antonelli ökuþór Mercedes verður fyrstur af stað þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Miami fer af stað annað kvöld. Max Verstappen fylgir honum fast eftir á Red Bull bílnum og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Formúla 1 2.5.2026 21:50
McLaren með bestu sprettina í Miami Lando Norris vann sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Miami og liðsfélagi hans hjá McLaren, Oscar Piastri, varð annar. Formúla 1 2.5.2026 18:06
Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðingur og hægri hönd formúluökumannsins Max Verstappens til margra ára, er sagður vera á förum frá Formúlu 1-liði Red Bull. Hann er sagður hafa þegið stjarnfræðilegt tilboð frá keppinaut. Formúla 1 9. apríl 2026 16:33
Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Ítalinn ungi, Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes í Formúlu 1 hefur vakið verðskuldaða athygli eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Kimi er að slá hvert metið á fætur öðru og gæti orðið yngsti heimsmeistarinn í sögu mótaraðarinnar. Formúla 1 5. apríl 2026 12:01
Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Gina Schumacher hefur ekki tjáð sig opinberlega síðan faðir hennar lenti í slysi fyrir þrettán árum. Nú rýfur hún þögnina og segir frá því hvernig hestaíþróttin hjálpaði henni. Formúla 1 3. apríl 2026 13:43
Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Ítalska undrabarnið Kimi Antonelli leiðir heimsmeistarakeppni ökuþóra í Formúlu 1 um þessar mundir. Sérfræðingur Íslendinga um Formúlu 1, Bragi Þórðarson, telur Antonelli geta farið alla leið í ár og staðið uppi sem heimsmeistari. Formúla 1 1. apríl 2026 13:30
Missti stjórn á yfir þrjú hundruð kílómetra hraða Oliver Bearman, ungur ökumaður Formúlu 1 liðs Haas, slapp vel eftir ógnvekjandi atvik í japanska kappakstrinum um nýliðna helgi. Formúla 1 30. mars 2026 22:15
Hamilton ósáttur eftir „frekar hræðilega“ keppni í Japan Lewis Hamilton, ökumaður Ferrari, var ekki sáttur með niðurstöðu japanska kappakstursins í gær og sagði keppnina hafa verið „frekar hræðilega.“ Formúla 1 30. mars 2026 11:32
Íhugar að hætta í Formúlu 1 Max Verstappen hefur sagt að hann íhugi að hætta í Formúlu 1 í lok árs 2026 og viðurkennir að hann „njóti ekki íþróttarinnar“ eftir að hafa endað í áttunda sæti í japanska kappakstrinum um helgina. Formúla 1 29. mars 2026 17:30
Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Kimi Antonelli ökumaður Mercedes vann japanska kappaksturinn í Formúlu 1 og er í fyrsta sinn á ferlinum í efsta sæti heimslistans. Aðeins 19 ára gamall og sá yngsti til að tylla sér á toppinn. Formúla 1 29. mars 2026 09:35
Antonelli á ráspól en Verstappen brjálaður út í bílinn Eftir að hafa unnið sína fyrstu Formúlu 1 keppni fyrir tveimur vikum verður Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, aftur á ráspól þegar kappaksturinn í Japan hefst í fyrramálið. Formúla 1 28. mars 2026 09:09
Ósáttur við umræðuna og gagnrýnir keppniauta Mercedes George Russell, ökuþór Formúlu 1 liðs Mercedes, gagnrýnir önnur lið mótaraðarinnar sem hann segir reyna allt sem þau geta til þess að hægja á bíl liðsins. Mikil umræða hefur skapast um lögmæti framvængsins á bíl Mercedes. Formúla 1 26. mars 2026 16:32
Ósáttur Verstappen lét reka blaðamann út: „Hypjaðu þig“ Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen, ökuþór Red Bull Racing, lét reka blaðamann af svæði liðsins á Suzuka brautinni í Japan í dag sökum spurningar sem umræddur blaðamaður bar upp eftir lokakappakstur síðasta tímabils í Abu Dhabi. Formúla 1 26. mars 2026 13:18
Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðsstjóra Lið Aston Martin í Formúlu 1-kappakstrinum hefur átt í miklum vandræðum í upphafi yfirstandandi tímabils og leitar nýs liðsstjóra (e. team principal). Stjórnendur eru sagðir hafa reynt við stjóra Audi sem og fyrrum yfirmann Red Bull. Sá fyrrnefndi sé líklegri til að taka við stjórnartaumunum. Formúla 1 20. mars 2026 10:00
Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Fernando Alonso hrífst lítið af umdeildum og veigamiklum breytingum á bílum í Formúlu 1 kappakstrinum fyrir yfirstandandi leiktíð. Skiptar skoðanir eru á nýjum bílum og gagnrýnin töluverð í upphafi leiktíðar. Formúla 1 17. mars 2026 16:17
Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Hinn nítján ára gamli Andrea Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes sótti sinn fyrsta sigur á Formúlu 1 ferlinum í Kína kappakstrinum í morgun. Liðsfélagi hans George Russell varð annar og sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hjá Ferrari náði kærkomnu sæti á verðlaunapalli. Formúla 1 15. mars 2026 09:03
Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Hollenski ökuþórinn Max Verstappen er langt frá því að vera hrifinn af bíl Red Bull og segir ömurlegt að keyra hann. Formúla 1 14. mars 2026 13:00
Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, verður á ráspól í kínverska kappakstrinum, annarri keppni tímabilsins í Formúlu 1, á morgun. Formúla 1 14. mars 2026 09:25
Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúlu 1 keppnirnar í Barein og Sádi-Arabíu munu ekki fara fram í næsta mánuði. Tímabilið verður stytt niður í 22 keppnir. Formúla 1 13. mars 2026 23:02
Russell sakar Ferrari um eigingirni George Russell, ökumaður Mercedes, hefur ásakað Ferrari um „eigingirni“ og „heimsku“ fyrir að koma í veg fyrir breytingar á reglum í Formúlu 1 sem er ætlað að auka öryggi bílanna í ræsingu. Formúla 1 13. mars 2026 13:47
Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Max Verstappen segist óska þess að Formúla 1 væri „skemmtilegri“. Miklar breytingar á reglugerð um bíla hefur ollið fjaðrafoki í upphafi nýhafins tímabils. Verstappen er vongóður um breytingar til hins betra. Formúla 1 12. mars 2026 13:30
Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Þeir Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson, Formúlu 1 lýsendur og umsjónarmenn hlaðvarpsins Pitturinn, veltu því fyrir sér hvort að með annari keppnisáætlun hefði Ferrari geta unnið fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu. Formúla 1 10. mars 2026 18:31
Verstappen tikkar af golulistanum Max Verstappen, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og ökuþór fyrir Red Bull, er sérlega spenntur fyrir því að taka þátt í 24 tíma þrekkappakstrinum á Nürburgring í vor. Formúla 1 9. mars 2026 23:02