Fjármál heimilisins

Er góð hugmynd að færa séreign yfir í húsnæði?
Fjármálaráðherra sagðist á dögunum jákvæður fyrir því að framlengja heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar viðbótarlífeyris á húsnæðislán. Sú ráðstöfun er ein þeirra sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár þar sem gefið er færi á að nýta séreign á íbúðamarkaði í stað uppbyggingu sparnaðar til efri áranna.

Hætt að trúa því að allt muni fara til fjandans
,,Það er ekkert sem hefur þroskað mig meira og kennt mér að standa með sjálfri mér heldur en þetta ferli. Ef þú ætlar að lifa þetta af þá þarftu að hafa trú á þér því það er engin annar að fara að peppa þig upp. Þú þarft að vita innst inni, sem ég geri, að þetta er rétt. Þú veist það einhvern veginn að þú getur ekki gert neitt annað þrátt fyrir að þetta sé stundum erfitt og kannski ekki rökrétt.“

Fjármálaráðherra segir ASÍ stoppa það af að launafólk fái val um að ráðstafa 3,5% iðgjaldi í frjálsan viðbótarsparnað!
Ég hlustaði vel og rækilega á umræður á Alþingi í gær þar sem breytingar á lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóði voru til umræðu. Það kom margt afar forvitnilegt fram í máli fjármálaráðherra sem talaði fyrir frumvarpinu.

Bjóða ítrekað yfir auglýst fasteignaverð en fá ekki samþykkt tilboð
„Hlutfallið hefur lengi vel verið um 25 prósent en á undanförnum misserum hefur hlutfallið farið yfir 30 og verið í kringum 32 prósent,“ segir Páll Heiðar Pálsson fasteignasali.

Dásamleg tilfinning að losa sig við skömmina og upplifa frelsi
,,Ég var tiltölulega snemma kominn í tómt tjón í fjármálum, lifði langt um efni fram og skuldaði mikið og á mörgum stöðum. Ég man mjög gaumgæfilega eftir þessari endalausu tilfinningu, þessu ótrúlega nagandi samviskubit sem fylgdi því að eiga ekki fyrir reikningunum mínum.“

Hvar er besta ávöxtunin í dag?
„Hvar er best fyrir fólk að geyma peningana sína í dag? Með öðrum orðum, hvað hefur hækkað mest undanfarna tólf mánuði?“ Þetta er fyrirspurn sem mér barst fyrir nokkru og ekki í fyrsta sinn sem ég heyri rætt um ávöxtun með þessum hætti.

Aldrei verið auðveldara að kaupa húsnæði
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Hagfræðideild Landsbankans, segir að það hafi aldrei verið auðveldara að kaupa íbúðarhúsnæði á Íslandi. Hann hefur lengi fylgst með þróun fasteigna- og leigumarkaðsins hér á landi og segir að á síðustu tuttugu árum hafi alla jafna verið hagstæðara að kaupa en að leigja.

Kaupmáttur launa aldrei verið hærri þrátt fyrir aukna verðbólgu
Laun hækkuðu að jafnaði um 3,7% á milli desember og janúar samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands og hefur vísitalan hækkað um 10,3% síðustu 12 mánuði. Er þetta mesta hækkun launavísitölunnar í einum mánuði síðan í júní 2011 og mesta árshækkun frá því í október 2016. Kaupmáttaraukningin á milli ára var 5,8% og hefur kaupmáttur launa aldrei verið hærri en nú í janúar.

Við tökum þetta bara á trúnni
Frumvarp til laga um kristinfræðslu var rætt á Alþingi í fyrradag. Þar sem ég hef nýlokið rannsókn á fjármálalæsi í skólakerfinu vegna meistaranáms við Háskóla Íslands tel ég mig knúna til þess að leggja orð í belg og vekja athygli á undarlegri forgangsröðun okkar ágætu þingmanna.

Fékk nóg af fátæktargildrunni og stofnaði stærsta umræðuhóp um fjármál á Íslandi
Sædís Anna Jónsdóttir var rétt rúmlega tvítug þegar hún var komin í miklar fjárhagslegar ógöngur og kveið fyrir framtíðinni. Skuldirnar fóru stigvaxandi, reikningarnir söfnuðust upp og fyrsta barnið var á leiðinni. Henni hefur síðan tekist að gjörbreyta fjárhagsstöðu sinni með aga, hagsýni og samviskusemi og stofnaði í leiðinni einn stærsta umræðuvettvang um fjármál á Íslandi.

Hverju munar um 100.000 krónur?
Við sjáum fyrir okkur stóra lottóvinninginn sem fjárhæð sem myndi gjörbreyta lífi okkar. En eins og Laddi sagði þegar hann stýrði Skrælingjalottói í Imbakassanum á sínum tíma þá vinnur aldrei neinn.

Meira um sýndarneyslu á Íslandi og mikið um að fólk eigi sömu hlutina
Ragna Benedikta Garðarsdóttir, dósent í félagssálfræði við Háskóla Íslands, segir að auglýsingar séu stöðugt að reyna að telja okkur trú um að við getum fyllt í andleg göt með kaupum á vörum og þjónustu.

Fyrirsjáanlegur skortur á nýjum íbúðum og verðhækkanir í kortunum
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Félag fasteignasala segja brýnt að auka byggingarframkvæmdir ella sé hætta á talsverðum hækkunum á fasteignaverði. Met var slegið í veltu á fasteignamarkaði á síðasta ári.

Margir eiga erfitt með að ná endum saman
Um fjórðungur launafólks innan ASÍ og BSRB á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins.

Ríki sem fóru aðra leið en Íslendingar nú „í stórkostlegum vandræðum“
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og fyrrum formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, kallar eftir auknum sveigjanleika í lífeyrissjóðakerfinu. Hann segir að staða kerfisins sé almennt góð og telur að Íslendingar hafi farið rétta leið í ellilífeyrismálum.

Ávallt best að halda drottningarfórnum í lágmarki
Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir að fyrstu fjárfestingar fólks á hlutabréfamarkaði eigi að vera varfærnar og best sé að þær séu að stórum hluta í vel dreifðum sjóðum. Þá sé mikilvægast að taka aldrei meiri áhættu en fólk hefur efni á að taka.

Það versta líklega afstaðið og útlit fyrir bjartari tíma
Ný þjóðhagsspá Íslandsbanka gerir ráð fyrir 3,2% hagvexti á þessu ári sem megi að stærstum hluta þakka vexti í ferðaþjónustu ásamt hóflegum vexti neyslu og fjárfestingar. Sem fyrr eru stærstu einstöku óvissuþættir efnahagsþróunarinnar á Íslandi sagðir vera hvenær faraldurinn tekur enda og ferðavilji tekur að aukast á ný.

Tímakaup á Íslandi áttunda hæsta í Evrópu
Ísland skipar áttunda sætið á lista yfir miðgildi tímakaups í ríkjum Evrópu í október 2018 að teknu tilliti til verðlags. Tímakaup var hæst í Danmörku, hvort sem litið sé til tímakaups í evrum eða jafnvirðisgildum, en lægst í Albaníu.

„Útsalan er í fullum gangi“ – eða þannig
Margar verslanir – sérstaklega þó húsgagnaverslanir – eru með útsölur og tlboð alla daga ársins. En hvernig er það hægt? Útsala snýst jú um að selja vöru á lækkuðu verði frá fyrra verði. Hámark útsölu má vera 6 vikur, eftir það telst útsöluverðið fullt verð. Engu að síður eru sömu vörurnar auglýstar á útsölu mánuðum og árum saman og „útsöluverðið“ er sífellt það sama.

Þurfti að færa fórnir þegar hann stóð á krossgötum 27 ára gamall
Þegar Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari var 27 ára stóð hann á krossgötum. Hann var þá nýbúinn að skilja við barnsmóður sína og þurfti að velja milli þess að flytja aftur til foreldra sinna eða fara á leigumarkaðinn.