Tækni

Fréttamaður spreytir sig á græjunni sem allir eru að tala um
Nokkur eintök af nýjum sýndarveruleikagleraugum Apple, sem tröllriðið hafa samfélagsmiðlum, eru komin til landsins og verða til sýnis í verslunum Nova. Tæknin sem notuð er til að stjórna gleraugunum er afar framúrstefnuleg, eins og fréttamaður komst að við prófun í dag.

Tók 0,3 sekúndur að búa til nektarmynd af sér
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, baráttukona gegn kynferðisofbeldi og stjórnarformaður Nordref, segir engan óhultan fyrir gervigreind og möguleikum sem henni fylgja til stafræns kynferðisofbeldis.

OpenAI þróar hugbúnað sem býr til myndskeið eftir textalýsingu
Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur þróað hugbúnað sem getur búið til allt að mínútu langt myndskeið eftir textalýsingu. Búnaðurinn hefur verið opnaður útvöldum til að prufukeyra hann og kanna hvort hann stenst kröfur.

Byltingarkennd en líka þung, einmanaleg og óhemju dýr
Sýndarveruleikagleraugu frá Apple, sem nýkomin eru í verslanir í Bandaríkjunum, eru táknmynd þess sem koma skal, að mati sérfræðings. Tæknin sé mun þróaðri en hjá keppinautum. En vandamál hafa einnig gert vart við sig; gleraugun hafa reynst bæði þung og verið einmannaleg.

Gjaldþrot Cyren upp á 238 milljónir
Lýstar kröfur í þrotabú netöryggisfyrirtækisins Cyren námu 238,5 milljónum króna auk dráttar vaxta. Tæpar tólf milljónir fengust greiddar upp í forgangskröfur eða um 5,2 prósent. Rekstur félagsins gekk að sögn yfirmanns afar vel en þrot erlends móðurfélags olli gjaldþrotinu.

Babelsturninn nýi
Ég fór á fund um daginn hjá alþjóðlegu hugbúnaðarfyrirtæki. Þar var fólk víðsvegar að úr heiminum að tala, allir á ensku. Enska er fyrirtækismálið. En enginn ræðumanna hafði ensku að móðurmáli, sem heyrðist auðvitað vel.

Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar krefst sérhæfðs mannauðs
Samtök iðnaðarins gáfu nýverið út greiningu á mannauðs- og færniþörf sem leiðir í ljós að enn er veruleg vöntun á hæfu starfsfólki til starfa í tækni- og hugverkaiðnaði. Þörfin mun aðeins fara vaxandi á næstu árum.

Nýtt app: „Það gat tekið mömmu hálfan daginn að hafa samband við alla“
„Með appi í símanum fá skjólstæðingar, fjölskyldur þeirra og allir sem koma að umönnun viðkomandi upplýsingar á einum stað um til dæmis þjónustu sem á að veita, hver sér um hvað, lyfjagjafir og fleira,“ segir Finnur segir Finnur Pálmi Magnússon, framkvæmdastjóri dala.care en fyrirtækið hefur þróað stafrænar lausnir fyrir heimaþjónustu.

Störfin að breytast: Laus við síendurtekin verkefni og spörum tíma og kostnað
„Áhrifin af sjálfvirknivæðingu felast ekki aðeins í möguleikanum á að spara tíma við endurtekin verkefni, aukna gæðastjórnun eða að halda launakostnaði í skefjum, heldur er hún oft liður í því að auka á starfsánægju þeirra sem við verkefnin sjálf starfa,“ segir Eyþór Logi Þorsteinsson framkvæmdastjóri Evolv.

Sýndarveruleikakappakstur og tæknilegt slím
UT-Messan fór fram í Hörpu um helgina í fjórtanda sinn. Um er að ræða stærsta árlega viðburð í tæknigeiranum á Íslandi en á Messunni bauðst gestum og gangandi að kynna sér það helsta sem íslensk tæknifyrirtæki eru að fást við þessa dagana - og prófa hin ýmsu tæki og tól.

Hægt að forrita og prófa kappakstursbíla á UT-messunni í dag
Um fimmtán þúsund manns hafa síðustu ár gert sé dagamun á Tæknidegi UT-messunnar. Framkvæmdastjóri á von á því sama í Hörpu dag. UT-messan er bæði ráðstefna og sýning fyrir fagfólk í upplýsingatækni.

„Fuglarnir átu fartölvuna!“
Eitthvað varð ég að gefa þeim. Smáfuglunum. Greyjunum. Vetrarfóðrun er víst nauðsynleg til að sem flestir þeirra lifi af. Ekki átti ég neitt meira kornmeti í húsinu. Af hverju setti ég gæsalappir utan um titilinn? Jú, það voru líka gæsaspor í snjónum svo mér fannst rétt að þær fengju að vera með.

Getum lært mikið af því að vinna með erlendum sérfræðingum
„Við erum íslenskir kúrekar sem er alveg skiljanlegt að mörgu leyti. En getum lært margt af öðrum,“ segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Island.is. Þar á meðal agaðri vinnubrögð.

Líka lausn að ráða erlenda sérfræðinga í fjarvinnu erlendis frá
„Það myndi ekki duga til þótt við legðum allt í að efla skólastigið hér þannig að fleiri gætu farið í tæknitengt nám. Sérstaklega með tilliti til þess sem er að gerast í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Þar sem við erum að sjá gríðarlega áhugaverðar og spennandi lausnir í þróun,“ segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson, framkvæmdastjóri Itera á Íslandi.

Heilaflaga Neuralink Musk grædd í fyrsta einstaklinginn
Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Elon Musk hefur greint frá því að fyrirtæki hans Neuralink hafi nú í fyrsta sinn grætt þráðlausa tölvuflögu í heila manneskju.

Hefur barnið þitt tíma til að leika sér?
Í nútíma samfélagi er alltaf nóg um að vera. Við höfum aðgang að öllum heimsins upplýsingum í gegnum snjalltækin okkar og getum náð í flesta hvenær sem er dagsins. Margir foreldrar tala í auknum mæli um streitu sem fylgir foreldra hlutverkinu í nútíma samfélagi enda að mörgu að hyggja.

Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma
Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma.

Apple veltir Samsung úr sessi
Bandaríska fyrirtækið Apple velti á síðasta ári tæknirisanum Samsung, frá Suður-Kóreu, úr sessi á toppi snjallsímamarkaðs heimsins. Þar hafði Samsung setið í tólf ár sem fyrirtækið sem seldi flesta snjallsíma í heiminum.

Svona notar þú smáforritið sem notað var í Skaupinu
Eitt atriði í Skaupinu í ár hefur vakið mikla athygli. Í atriðinu sem um ræðir mátti sjá þónokkra þjóðþekkta einstaklinga stíga á stokk, en þar má nefna Boga Ágústsson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Ólaf Ragnar Grímsson.

Hver er ráðherra stafrænnar innleiðingar?
Framtíðin er stafræn. Ef einhver skyldi efast um það þarf bara að fletta upp í nýjustu stefnumótun hinna ýmsu stofnana eða hlusta á hátíðarræður stjórnmálamanna.

Tungllending ekki möguleg vegna eldsneytisleka
Fyrsta tilraun Bandaríkjamanna til að lenda geimfari á tunglinu í rúm fimmtíu ár virðist ekki ætla að ganga eftir. Eldsneyti ku leka út úr lendingarfarinu Peregrine og er talið að farið muni missa getu til að endurhlaða rafhlöður sínar á miðvikudaginn.

Fyrsta geimskot nýrrar eldflaugar heppnaðist
Ný eldflaug bar í nótt fyrsta tunglfarið frá Bandaríkjunum út í geim frá árinu 1972. Eldflaugin ber nafnið Vulcan og er þróuð af starfsmönnum United Launch Alliance, sem er samstarfsverkefni Boeing og Lockheed Martin, en geimskotið heppnaðist fullkomlega.

„Salan var algjörlega háð því hvað Þórólfur sagði á fundum“
„Helgi var einkaþjálfari þegar að við kynntumst og í viðskiptafræði í háskólanum. Við gerðum samkomulag um að ég væri hjá honum í líkamsrækt þrisvar í viku og síðan kom hann til mín á mánudögum klukkan fimm og ég kenndi honum forritun og fleira fyrir tölvukúrsana hans. Síðan borðaði hann með okkur,“ segir Maron Kristófersson framkvæmdastjóri Aha.is þegar hann rifjar upp kynni hans og meðstofnanda hans, Helga Má Þórðarsonar.

Íslendingur hreppti Emmy-verðlaun
Íslendingurinn Sigurjón Friðrik Garðarsson hlaut Emmy-verðlaun ásamt félögum sínum í Stormborn Studios fyrir tæknibrellur í sjónvarpsþáttaröðinni Five Days at Memorial sem var framleidd af Apple TV.

Trendin 2024: Gervigreindin hræðir, uppsagnir áfram og mannlegi þátturinn mikilvægastur
Eitt það skemmtilega við áramótin er hvernig við eins og ósjálfrátt veltum fyrir okkur við hverju má búast á nýju ári. Eða setjum okkur markmið um hvað við ætlum okkur.

Gervigreind vekur Hemma til lífsins meðan löggjafinn sefur
Pétur Eggerz Pétursson hjá Overtune er maðurinn á bak við hið afar umdeilda atriði þar sem Hemmi Gunn vaknaði til lífsins í tónlistaratriði. Hann kallar eftir því að löggjafinn setji upp hanskana því framtíðin er mætt.

Leynilegt geimfar á hærri sporbraut en áður
Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX skutu í nótt leynilegu geimfari bandaríska hersins út í geim. Geimfarið X-37B er talið eiga að vera á braut um jörðu í að minnsta kosti tvö ár. Enginn er um borð en eins og áður ber geimfarið leynilegar tilraunir bandarískra vísindamanna.

Útsala ársins hafin í Tölvutek
Útsala ársins er hafin í Tölvutek þar sem hægt er að gera frábær kaup á fartölvum, leikjatölvum, snjallúrum og fjölda annarra tækja. Útsalan stendur til 7. janúar.

Óréttmætum hindrunum hafi enn ekki verið rutt úr vegi
Stjórnendur Hopp leigubíla telja stjórnvöld ekki hafa fjarlægt að fullu óréttmætar hindranir til aksturs leigubíla hér á landi. Erfiðlega hefur gengið að fá bílstjóra til aksturs og vill fyrirtækið að innviðaráðuneytið geri heildstæða úttekt á lögum um markaðinn.

New York Times stefnir OpenAI og Microsoft
Stjórnendur bandaríska dagblaðsins New York Times hafa höfðað mál gegn fyrirtækjunum OpenAI og Microsoft fyrir meintan þjófnað á höfundarréttarvörðu efni blaðsins.