Box

Abdusalamov er haldið sofandi eftir bardagan gegn Perez
Hnefaleikakappinn Magomed Abdusalamov var fluttur á sjúkrahús eftir bardaga gegn Mike Perez í Madison Square Gardan á aðfaranótt sunnudags en Abdusalamov tapaði bardaganum eftir tíu lotur á stigum.

Klitschko vill verða forseti Úkraínu
Hnefaleikappinn og heimsmeistarinn í þungavigt, Vitali Klitschko, hefur hug á að skipta um starfsvettvang því hann hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Úkraínu árið 2015.

Það kostar 12 milljarða að fá Lewis aftur í hringinn
Lennox Lewis, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, myndi glaður snúa til baka í hringinn og mæta Wladimir Klitschko en aðeins fyrir rétt verð.

Risabardagi á besta tíma
Wladimir Klitschko og Alexander Povetkin berjast um heimsmeistaratignina í þungavigt í bardaga í Moskvu í dag klukkan 18.

Klitschko gerir lítið úr Haye og Chisora fyrir stóru stundina
Wladimir Klitschko líkti bresku hnefaleikaköppunum David Haye og Dereck Chisora við geltandi hunda fyrir heimsmeistaratitilvörn sína í þungavigt gegn Alexander Povetkin á morgun.

Bandaríska hnefaleikasambandið kvartar yfir Tyson
Mike Tyson er búinn að gerast umboðsmaður fyrir hnefaleikakappa og er þegar kominn á svarta listann hjá bandaríska hnefaleikasambandinu.

Haye og Fury mætast ekki um helgina | Bardaginn fer fram í febrúar
Hnefaleikakapparnir David Haye og Tyson Fury munu mætast þann 8. febrúar næstkomandi í Manchester en áður áttu þeir að mætast á laugardagskvöldið.

Bardagi Mayweather og Alvarez skilaði ótrúlegum peningum
Þeir sem stóðu að bardaga Floyd Mayweather Jr. og Canelo Alvarez lögðu mikið undir og þeir uppskáru eins og þeir sáðu enda keyptu milljónir sér aðgang að bardaganum.

Gerði grín að vímuefnavanda De la Hoya
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. hefur þurft að biðjast afsökunar eftir að miður falleg mynd var sett á Instagram-síðuna hans.

Maðurinn sem kjálkabraut Ali er látinn
Ken Norton, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, er látinn sjötugur að aldri. Hann lélst á spítala í Arizona í gær en hann hafði lengi verið heilsuveill.

Umdeildur hnefaleikadómari hættir
Hnefaleikadómarinn Cynthia J. Ross hefur ákveðið að hætta að dæma hnefaleika en allt hefur verið vitlaust síðan hún dæmdi bardaga Floyd Mayweather og Canelo Alvarez um helgina.

45. sigurinn í röð hjá Mayweather
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather bar sigur úr býtum gegn Mexíkananum Saul "Canelo“ Alvarez í léttvigtarviðureign þeirra kappa í Las Vegas í nótt.

Mayweather: Hann myndi ekki vinna mig einu sinni í 42 bardögum
Floyd Mayweather og Saul Canelo Alvarez berjast í Las Vegas á laugardagskvöldið og vilja margir meina að nú loksins sé kominn maður fram sem getur lagt Mayweather af velli.

De la Hoya farinn í meðferð
Oscar de la Hoya mun ekki verða viðstaddur bardaga Floyd Mayweather Jr. og Canelo Alavarez um helgina. Gulldrengurinn er farinn í meðferð.

Það vilja allir sjá Mayweather tapa
Oscar de la Hoya, skipleggjandi bardagans á milli Floyd Mayweather og Saul Canelo Alvarez, vill meina að framundan sé einn stærsti bardagi sögunnar.

Tyson: Ég er alkahólisti við dauðans dyr
Hnefaleikakappinn Mike Tyson hefur viðurkennt að hann hafi logið því undanfarin ár að hann sé edrú. Þess í stað segist heimsmeistarinn fyrrverandi vera við dauðans dyr eftir misnotkun á áfengi og öðrum vímuefnum.

Mayweather gerði lítið úr De la Hoya
Þó svo Floyd Mayweather sé í samstarfi við gulldrenginn Oscar de la Hoya og fyrirtæki hans, Golden Boy Promotions, þá er honum augljóslega ekki vel við De la Hoya. Hann kom því klárlega til skila á blaðamannafundi í gær.

Klitschko mætir Povetkin í Moskvu
Úrúgvæinn Wladimir Klitschko mun mæta hinum rússneska Alexander Povetkin í Moskvu þann 5. október næstkomandi.

Kynna bardagann í ellefu borgum
Það er enn langt í bardaga Floyd Mayweather Jr. og Saul Alvarez. Það aftrar köppunum þó ekki frá því að byrja að auglýsa hann en þeir munu gera það í ellefu borgum. Bardaginn sjálfur fer fram 14. september.

Mayweather ætlar að berjast við Alvarez
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. hefur tekið ákvörðun um sinn næsta bardaga en hann ætlar að berjast við Canelo Alvarez þann 14. september næstkomandi.

Tyson verður teiknimyndapersóna
Sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum ætlar næsta vetur að fara með í loftið teiknimyndaseríu þar sem Mike Tyson, fyrrum hnefaleikakappi, er í aðalhlutverki.

Pabbi hans kenndi honum að lemja konur | Myndband
Að rífa kjaft á blaðamannafundum fyrir boxbardaga er hluti af sýningunni. Robert Guerrero er búinn að setja ný viðmið í þessum efnum eftir ótrúlega ræðu sem hann hélt í gær.

Andstæðingur Mayweather handtekinn með byssu á flugvelli
Það verður væntanlega ekkert af því að Floyd Mayweather Jr. berjist við Robert Guerrero þann 4. maí. Guerrero var handtekinn á JFK-flugvellinum í New York með byssu.

Haye á höttunum eftir Klitschko-bræðrunum
Breski hnefaleikakappinn David Haye tilkynnti í dag að hann væri búinn að rífa hanskana niður úr hillunni. Hann ætlar að keppa næst þann 29. júní. Andstæðingurinn liggur þó ekki fyrir.

Mayweather skrifaði undir risasamning
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather hefur skrifað undir samning sem gæti gert hann að ríkasta íþróttamanni heims á næstu árum.

Pacquiao vill spila með Boston Celtics
Hnefaleikakappinn Manny Pacquiao var í skemmtilegu viðtali á dögunum þar sem hann svaraði mörgum óhefðbundnum spurningum. Þar kom margt skemmtilegt í ljós.

Móðir og eiginkona Pacquiao vilja að hann hætti
Hnefaleikakappinn magnaði Manny Pacquiao var rotaður illa um helgina í bardaga gegn Juan Manuel Marquez. Þetta var annað tap hans í röð. Sjálfur segist hann ætla að halda áfram að boxa en bæði eiginkona hans og móðir vilja að hann hætti.

Marquez steinrotaði Pacquiao
Juan Manuel Marquez vann frekar óvæntan sigur á Manny Pacquiao í nótt. Það sem meira er þá tókst Marquez að rota Pacquiao.

Ricky Hatton leggur hanskana á hilluna eftir slæmt tap
Hnefaleikakappinn Ricky Hatton tilkynnti í gær að hann væri endanlega hættur í boxi eftir að hann tapaði fyrir Vyacheslav Senchenko í Manchester.

Camacho er heiladauður
Fyrrum heimsmeistarinn í hnefaleik, Hector "Macho" Camacho, var skotinn í andlitið í bíl á dögunum og var fluttur í lífshættu á spítala í heimalandinu Púertó Ríkó.