Lög og regla

Fréttamynd

Hraðakstur orsökin?

Verið er að rannsaka banaslysið við Varmahlíð í Skagafirði í fyrrakvöld og bendir flest til þess að hálka og of hraður akstur miðað við aðstæður hafi valdið því. 

Innlent
Fréttamynd

600 kindur drápust í eldi

Um það bil sex hundruð lömb og kindur drápust þegar stórt fjárhús og hlaða brunnu til kaldra kola að bænum Knerri í Breiðuvík á sunnanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi og nótt. Ábúendur kölluðu á aðstoð slökkviliðs laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi og héldu slökkvilið Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar á vettvang.

Innlent
Fréttamynd

Krefst tveggja ára fangelsisdóms

Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu.

Innlent
Fréttamynd

Ótrúlegri slysaalda í Langadal

Þrír bílar lentu utan vegar og einn árekstur varð í norðanverðum Langadal í gærdag. Enginn slaðasist alvarlega en tveir bílar eru nokkuð skemmdir.

Innlent
Fréttamynd

2 1/2 árs fangelsi hæfilegt

Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi.

Innlent
Fréttamynd

Tveir af fjörtíu voru í bílbeltum

Mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast lífshættulega þegar rúta með fjörtíu manns innanborð fauk út í kant og valt út af veginum undir Akrafjalli um klukkan sjö í gærmorgun. Rútan endaði á toppnum fyrir neðan veginn.

Innlent
Fréttamynd

Logandi kindur í veðurofsa

Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoða á bænum Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi á mánudagskvöld. Mikið eignatjón varð þegar hlaða, fjárhús og skemma með fjölda tækja urðu eldi að bráð. Slökkvistarfi lauk í gær.

Innlent
Fréttamynd

Strokufangi handtekinn

Nítján ára gamall fangi sem strauk úr fangelsinu á Skólavörðustíg að morgni mánudags var handtekinn á veitingastað í miðbæ Hafnarfjarðar síðar um daginn. Hann hefur nú verið vistaður í fangelsinu að nýju. Lögreglan í Hafnarfirði handtók manninn seint á mánudagskvöldið eftir að hann réðst á starfsmann veitingastaðar í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Refsingu frestað

Refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en hann var ákærður fyrir að hafa tekið eiginkonu sína hálstaki og hrint henni til og frá þannig að hún tognaði á hálsi.

Innlent
Fréttamynd

Tuga milljóna tjón

Víst þykir að kviknað hafi í út frá heyi þegar 600-700 fjár brunnu inni á bænum Knerri á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Fjárhús, hlaða og vélageymsla, og margar vinnuvélar, brunnu þar til kaldra kola. Tjón er metið á tugi milljóna króna. Menn lögðu sig í mikinn háska við að reyna að bjarga sauðfénu.

Innlent
Fréttamynd

Héraðsdómur viðurkennir kröfuna

Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag stærstan hluta kröfu Jónasar Kristjánssonar í þrotabú DV sem forgangskröfu. Jónasi var sagt upp störfum sem ritstjóra blaðsins í desember árið 2001 og telur hann sig eiga inni ógreidd laun, bæði frá tímabili uppsagnarfrests og fyrri hluta árs 2001.

Innlent
Fréttamynd

Braust inn í Kjarvalsstaði

Lögreglumenn handtóku innbrotsþjóf á vettvangi í gærkvöldi eftir að hann hafði brotist inn í Kjarvalsstaði. Ólíklegt er talið að hann hafi haft listaverkaþjófnað í huga heldur hafi hann frekar verið að leita að peningum eða smáhlutum til að koma í verð því hann hafði rótaði í hirslum á skrifstofunni þegar lögregumenn komu að honum.

Innlent
Fréttamynd

Einn lést og annar á gjörgæslu

Pólskur karlmaður á fertugsaldri beið bana og landi hans slasaðist alvarlega þegar jeppi sem þeir voru í valt skammt frá Varmahlíð í Skagafirði í gærkvöldi. Bíllinn var á sumardekkjum en fljúgandi hálka var á svæðinu. Fjórir voru í bílnum en enginn í bílbeltum.

Innlent
Fréttamynd

Hressir eftir að Vaidas dó

Jónas Ingi Ragnarson og Tomas Malakauskas virtust hressir og kátir og alls ekki áhyggjufullir, eftir að Vaidas Jucevicius lést í Kópavogi og þar til honum var komið fyrir í sjóinn við netagerðabryggjuna í Neskaupstað, að sögn vitna í aðalmeðferð Líkfundarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys í Skagafirði

Banaslys varð í nótt þegar bíll valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og voru þrír fluttir á Fjórðungssjukrahúsið á Akureyri. Fréttastofunni er ekki kunnugt um líðan þeirra né tildrög slyssins, nema hvað hálka var á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Einn látinn og annar á gjörgæslu

Pólskur karlmaður að nafni Lukas Zewicz Rafal Maciej lést þegar jeppabifreið fór út af þjóðvegi eitt við bæinn Brekku í Skagafirði skömmu fyrir klukkan hálf ellefu á sunnudagskvöldið.

Innlent
Fréttamynd

Útlendingar látnir í bílslysum

Það sem af er ári hafa fjórir útlendingar látist í umferðarslysum hér á landi, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Tveir í júlí og svo tveir í þessum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Jónas neitar allri sök

Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Vissi ekki af líkinu

Einn sakborninganna í líkfundarmálinu segist ekki hafa haft hugmynd um að lík væri vafið í teppi og geymt aftur í, í jeppa sem hann ók um 700 kílómetra leið austur á firði. Hinir sakborningarnir tveir staðhæfa að allir þrír hafi átt þátt í að koma líkinu fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ákærðir fyrir hasssmygl

22 ára maður er ákærður af Ríkissaksóknara fyrir innflutning á samtals fimmtán kílóum af hassi í þremur skipaferðum frá Danmörku frá júní í fyrra þar til í janúar á þessu ári. Þrír menn eru ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningnum að hluta með manninum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Einn enn handtekinn

Maður á fimmtugsaldri var handtekinn á fimmtudagsmorgun og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær. Handtakan var í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnasmygli hingað til lands þar sem fíkniefnum var smyglað í tveimur sendingum með Dettifossi auk þess sem um tvö þúsund e-töflum var smyglað til landsins í pósti.

Innlent
Fréttamynd

Hélt hnífi að hálsi konu

Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir vopnað rán, ásamt óþekktum samverkamanni, í myndbandaleigu í mars 2002. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Sagðist vera systir sín

Tæplega þrítug kona var dæmd, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka ölvuð og þykjast vera systir sín þegar lögreglan stöðvaði hana.

Innlent
Fréttamynd

Fangar fela einelti

Breytingar hafa orðið á einelti á Litla-Hrauni, að sögn Atla Helgasonar, trúnaðarmanns fanga, eftir að forstjóri Fangelsismálastofnunar sendi bréf til allra fanga þar sem segir að tekið verði á einelti og þeir sem gerast sekir um slíkt eigi von á agaviðurlögum. Eineltið beinist helst gegn kynferðisafbrotamönnum.

Innlent
Fréttamynd

Hótaði lögreglu með hníf

Innbrotsþjófur í bíla dró upp hníf og hótaði lögreglumönnum þegar hann var kominn í sjálfheldu lögreglunnar í Bústaðahverfi í nótt. Ekki kom þó til þess að hann beitti hnífnum því þegar lögreglumenn dróu upp kylfur, og skipuðu honum að leggja frá sér hnífinn, gerði hann það.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan bendluð við dópsalalista

Annar tveggja lögreglumanna, sem nefndur er á vefsíðu þar sem talin eru upp nöfn dópsala, hefur óskað eftir að rannsakað verði af hverju hans nafn sé á síðunni. Ingimundur Einarsson, aðstoðarlögreglustjóri í Reykjavík segist ekki hress með að lögreglan sé bendluð við eitthvað misjafn og rannsókn muni hefjast eins fljótt og verða megi.

Innlent
Fréttamynd

Þarf að ákæra á ný

Hæstiréttur vísaði líkamsárásarmáli frá héraðsdómi þar sem talið var að ákæran í málinu væri ekki í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir þegar hún var gefin út. Þarf því að hefja málsmeðferð að nýju með nýrri ákæru.

Innlent
Fréttamynd

Barði annan með bjórflösku

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir manni sem sló annan mann með glerflösku í höfuðið.

Innlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir heimilisofbeldi

Maður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa beitt sambýliskonu sína miklu ofbeldi í þremur líkamsárásum á hana en hún hlaut varanlega áverka vegna einnar árásarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan afhendir ekki myndband

Barnaverndarstofa hefur óskað eftir umsögn Persónuverndar vegna tregðu Lögreglustjórans í Reykjavík við að afhenda myndbandsupptökur af skýrslutökum í kynferðisafbrotamálum.

Innlent