Halla Signý Kristjánsdóttir

Að vera vinur í raun
Fæst okkar hefðu trúað því að árið 2022 væri stríð í Evrópu og undirbúa þyrfti komu flóttamanna frá Úkraínu til landsins. Í einum vettvangi er lífi fjölda fólks snúið á hvolf. Í upphafi árs áttu þau venjulegt líf, keyptu í matinn, mættu í skóla og vinnu, héldu barnaafmæli, elskuðu og voru elskuð.

Tölum um endómetríósu
Já! tölum um endómetríósu. Eitthvað sem var hreinlega ekki þekkt fyrir nokkrum áratugum eða fáir töluðu um.

Loftslagsváin kallar á aukna og græna raforkuframleiðslu
Í síðustu viku kom út skýrsla um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum. Í henni er gerð grein fyrir orkuþörf þjóðarinnar með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum. Í skýrslunni er einnig er farið yfir stöðuna á flutningskerfinu og orkumarkaði, framboði og eftirspurn á raforku sem og hvernig fyrirséð er að þau mál geta þróast næstu mánuði og ár.

Eignarhald í laxeldi á Íslandi
Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein í örum vexti en mikill uppgangur hefur verið í fiskeldi á heimsvísu undanfarna áratugi. Gríðarleg framþróun hefur einnig orðið í laxeldi í nágrannalöndum okkar í Norður-Atlantshafi; laxeldi er til að mynda umfangsmeira í hagkerfi Noregs en hefðbundinn sjávarútvegur.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir misræmi í tollflokkun landbúnaðarafurða
Þrátt fyrir gríðarlega aukningu á innflutningi landbúnaðarafurða síðustu ára, sérstaklega mjólkurafurða, hefur eftirlit með innflutningi ekki aukist að sama skapi, því miður. Þó þessi mál hafi verið nokkuð í kastljósinu undan farin misseri virðist sem ekkert hafi verið reynt til að bæta úr né að gera hana skilvirkari.

Hvetjum ungt fólk til að ná sér í reynslu erlendis
Mig grunar að flestir Íslendingar telji að við búum í landi sem uppfyllir flestar okkar þarfir, hér er friður og farsæld og fjölbreytt mannlíf. Þó er okkur alltaf hollt að hleypa heimdraganum og kynnast nýjum tækifærum, sérstaklega ungu fólki.

Samfylkingin á villigötum
Verðtrygging er mannanna verk, ekki náttúrleg þótt hún virðist haga sér þannig. Þegar henni var komið á hér á landi var um neyðarástand um að ræða. Það átti að tryggja sparifé landsmanna, lánsfé og laun. Vextir voru ekki frjálsir og vandinn óx, en núna erum við á öðrum stað á öðrum tíma.

Farðu varlega, það gæti komið snjóflóð
Þorrinn er á næsta leiti með öllum sínum tilbrigðum í veðri sem okkur býðst á þessu landi. En það þarf ekki þorrann til að vá liggi yfir á vegum landsins. Í þessari viku urðu öfgar í veðrabrigðum þess valdandi að vegir um Súðavíkur- og Eyrarhlíð lokuðust vegna snjóflóða.

Lokað vegna rafmagnsleysis
Fréttir vikunnar þar sem Landsvirkjun tilkynnti að skerða þyrfti nú þegar afhendingu á raforku til fyrirtækja vegna raforkuskorts og annmarka á flutningsgetu hafa væntanlega ekki farið fram hjá mörgum. Þurfum við að vera hissa Nei! Þetta getur ekki komið á óvart. Það er staðreynd að raforkuöryggi víða um land er ábótavant.

Jafna þarf aðgengi að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Nokkuð hefur verið rætt um heilbrigðiskerfið síðustu misseri, hvernig skuli byggja það upp og hvort auka eigi þátt einkageirans. Í dag er fjórðungur kerfisins rekin af einkaaðilum, kerfið sjálft fer sístækkandi með fjölgun íbúa og hækkandi lífaldri ásamt aukum fjölda ferðamanna. Framsóknarflokkurinn styður blandað kerfi og telur að það sé farsæll kostur til að efla heilbrigðiskerfið í heild.

Miðflokkurinn hafnar eflingu á móttöku flóttamanna
Það er gömul saga og ný að sum góð mál klárist ekki fyrir þinglok á Alþingi. Í ár var engin undantekning á því, en sum góð mál komust því miður ekki til framkvæmda.

Velferð barna – framtíðin krefst þess
Í síðustu viku mælti undirrituð fyrir þremur frumvörpum í þingsal sem koma til með að skipta veigamiklu máli fyrir velferð barna.

Breytingar í barnavernd
Frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum frá Ásmundi Einari Daðasyni félags- og barnamálaráðherra hefur verið samþykkt úr velferðarnefnd. Nái frumvarpið fram að ganga munu meðal annars barnaverndarnefndir eins og við þekkjum þær lagðar af og umdæmi barnaverndarþjónustu stækkuð.

Farsóttin hefur gefið nýju byltingunni vængi
Langþráðar afléttingar á samkomutakmörkunum í vikunni veittu okkur mikið frelsi. Við lögðum grímunni á flestum stöðum og urðum nánari í bókstaflegum skilningi. Í faraldrinum, sem er þó ekki alveg liðinn undir lok, höfum við með hæfni mannsins færst áfram, tekið breytingum og lært margt.

Klárum leikinn - fyrir fjölskyldur
Fjölskyldan skipar stóran sess í íslensku samfélagi. Fjölskyldur eru jafn mismunandi eins og þær eru margar. Til þess að skapa gott samfélag er lykilatriði að hlúa vel að fjölskyldum landsins.

Framsókn kveikir kertin í svefnherberginu
Það má segja að Framsóknarflokkurinn hafi hvatt íbúa landsins til fjölgunar, enda hafa aðstæður barnafjölskyldna stórbatnað á yfirstandandi kjörtímabili.

Það er komið vor
Því miður erum við enn á ný að hlaupa í skjól. Við fórum úr jólakúlunni í að halda okkur í páskaeggi næstu þrjár vikur. Íslenska þjóðin er vön því að búa við óútreiknanlegt veður. Þessi faraldur hagar sér með svipuðu móti. Nú er ekkert annað í boði en að tryggja aðstæður, fara í skjól og standa af sér veðrið.

Hinn þögli faraldur
Ákominn heilaskaði og afleiðingar hans hafa ekki fengið mikið pláss í umræðunni hér á landi. Það sinnuleysi hefur leitt af sér skilningsleysi á afleiðingum hans, bæði innan velferðar- og menntakerfisins sem og á vinnumarkaðnum.

Nýr Menntasjóður landsbyggðinni í vil
Frumvarp Lilju D. Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um Menntasjóð námsmanna var samþykkt á Alþingi sl. vor. Hér er um að ræða heildarendurskoðun námslánakerfisins og miðar að því að jafna stuðning ríkisins til námsmanna.

Ef við viljum í alvöru standa með neytendum og innlendri framleiðslu þá er til leið
Í útvarpsþættinum á Sprengisandi fyrr í vikunni var rætt við Pál Gunnar Pálsson forstjóra Samkeppniseftirlitsins um samkeppnismál. Páll Gunnar ræddi m.a. um mikilvægi þess að samkeppnislögin væru virt, það væri mikilvægt fyrir heildarhagsmuni neytenda.