Silfur Egils

Fréttamynd

Fjögur ár í viðbót?

Það skyldi þó ekki fara svo að ríkisstjórnin héldi velli í haust og við fengjum fjögur ár í viðbót af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum?

Fastir pennar
Fréttamynd

Gráðugir bankar, vaxtamunur, vandi óánægjuframboða

Mér þykir mikilvægt að umræðan um okrið hér á landi lognist ekki út af. Það er ágætt að menn séu farnir að beina sjónum sínum að bönkunum, þeir hafa skotið sér bak við að mikið af ofurhagnaðinum komi frá útlöndum – en er endilega víst að það sé satt?

Fastir pennar
Fréttamynd

Félagaskelfar, bænarskrá til útlendra banka, áhangendur handboltaliðsins

Er það rétt sem Mogginn segir að væntanleg séu tvö framboð aldraðra og öryrkja? Og hóparnir þegar byrjaðir að kýta sín á milli. Liðsmaður úr öðrum hópnum segir að sér hafi verið neitað að sitja fund hjá hinum, en eftir forsvarsmanni annars framboðsins er haft: "Eftir því sem gremjan er meiri verða framboðin fleiri."

Fastir pennar
Fréttamynd

Fuglalíf á Tjörninni, framboð aldraðra, handbolti

Nú erum við Kári búnir að ná einu helsta baráttumáli okkar í gegn. Við fögnum því náttúrlega. Við höfum um árabil tuðað yfir því að ekkert ungviði komist á legg á Reykjavíkurtjörn – þannig hefur það verið ár eftir ár. Eitt árið töldum við að átta andarungar hefðu lifað...

Fastir pennar
Fréttamynd

Lilló leggur út af Lobba

Viðtal mitt við Guðmund Ólafsson hagfræðing í síðasta Silfri hefur vakið mikla athygli – en kannski ekki nóga. Ég er eiginlega þeirrar skoðunar að heill stjórnmálaflokkur gæti byggt kosningabaráttu sína á málflutningi hans...

Fastir pennar
Fréttamynd

Veislugleði, öfund og leiðindi

Ólafur Ólafsson í Samskipum segir í Blaðinu í dag að hann hafi svosem vitað hvernig þjóðin myndi bregðast við innflutningi hans á söngvaranum Elton John – með öfund og leiðindum. Af þessu tilefni ætla ég að sýna eina frægustu fréttamynd síðari ára, úrklippu úr Morgunblaðinu...

Fastir pennar
Fréttamynd

Gjafmildi, Elton John, handbolti, Evrovision, þjóðarkarakter

Ólafur í Samskip slær öll met í því að gefa peninga til góðgerðarmála og menningar. Það er samt skrítið að tilkynna þetta sama dag og hann lætur fljúga með Elton John hingað í einkaþotu til að spila í partíi. Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2. Þeir náðu meira að segja myndum af Elton...

Fastir pennar
Fréttamynd

Alræði, þorrablót, málþóf

Tilgangurinn var að fjölga Rúmenum. Afleiðingin var geysileg óhamingja, fleiri svangir munnar að metta mitt í fátæktinni, ótrúlegur fjöldi barna sem enginn kærði sig um – lokapunkturinn voru svo hin skelfilegu munaðarleysingjahæli sem voru uppgötvuð eftir fall Ceausecuhjónanna...

Fastir pennar
Fréttamynd

Byrgið, kvenskörungar, Skuggahverfi, stjórnarskrá

Það er dálítið erfitt að vera í bendileik með Byrgið – að finna einhvern sérstakan sökudólg í kerfinu. Menn hafa staðnæmst við Birki Jónsson, en ég held að hann muni sleppa með skrekkinn. Ég man ekki betur en að flestir pólitíkusar og mestöll kjaftastéttin hafi tekið andköf af hneykslun...

Fastir pennar
Fréttamynd

Mýrargatan, bleik blöð, Kaupthing

Svæðið í kringum Mýrargötuna er eitt hið ljótasta í Reykjavík – raunar er mestöll norðurströnd borgarinnar til skammar. Afsprengi endalausra skipulagsslysa. Ég verð líka að játa að ég hef aldrei séð neinn sjarma við Slippinn – og er þó alinn upp vestur í bæ...

Fastir pennar
Fréttamynd

Við borgum ekki!

Frægt leikrit eftir Nóbelsverðlaunahafann Dario Fo heitir Við borgum ekki. Ég velti fyrir mig hvort sé komið að þeim punkti að við Íslendingar eigum að hætta að borga. Við búum við langhæsta matarverð í heiminum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Barbabrella í Háskólanum

Markmiðið að koma Háskóla Íslands í hóp hundrað bestu háskóla í heimi er auðvitað brandari. Svona eins og fíkniefnalaust Ísland árið tvö þúsund. Að halda svona fram er svo sjálfhælið að maður fer hjá sér. Þetta er dvergháskóli, frekar snauður af fé, hæfileikum, hefð og bókakosti...

Fastir pennar
Fréttamynd

Bush grætur, hvalkjöt, skrítinn dómsdagur, könguló

Hvaða kenndir vekja myndir af Bush grátandi? Samúð? Varla? Ekki þegar maður hugsar um afleiðingarnar af gerðum hans, ónýtt land þar sem áður ríkti einræði en þó einhvers konar stöðugleiki, fjölda látinna þar, heilan heimshluta sem er í uppnámi...

Fastir pennar
Fréttamynd

Pamuk, skáld Borgarinnar

Kannski er Pamuk merkilegasti rithöfundur í heimi um þessar mundir, ekki bara vegna þess að hann sé svona góður, heldur líka vegna þess að hann situr þvert á aðalátakalínu heimsins, milli austurs og vesturs. Viðfangsefni hans eru stór og skipta máli...

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýriki Nonni og stórfyrirtækin

Maður getur ekki annað en dáðst að útsjónarsemi nýju millanna – sem eru auðvitað miklu ríkari en hinir gömlu. Þeir eru afar duglegir í fjárfestingum í útlöndum. En á sama tíma virðist þeim vera sama þótt þeir blóðmjólki íslenskan almenning í gegnum fyrirtæki sín, verslanir, banka og flugfélög...

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvað gerir Samfylkingin?

Hér er spurt hvort Samfylkingin muni brátt einhenda sér í að berja á Vinstri grænum í staðinn fyrir að láta Steingrím taka af sér fylgið möglunarlaust, en síðan er rætt um grein eftir einn helsta leiðtoga Samfylkingar þar sem er boðuð sameining við Framsóknarflokkinn...

Fastir pennar
Fréttamynd

Vofa Víkverja gengur ljósum logum

Þetta hljómar auðvitað eins og víkverjatuð hjá mér, en það er einmitt lóðið. Þessi svokallaði bloggheimur er að verða eins og einn gígantískur víkverjapistill. Ég verð að viðurkenna að eftir sjö ár á netinu er mér skapi næst að hætta þessu...

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki meiri Cleese, plís!

Okurvextirnir hérna eru þjóðarböl. Það er ekki hægt að láta eins og bankarnir beri ekki þar sök á, að þeir séu bara að starfa innan ramma þess sem er leyfilegt og löglegt. Eitt sinn var talað um það sem er löglegt en siðlaust – þannig er einmitt farið um starfsemi bankanna á Íslandi...

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki blogg – gleðilegt ár

Nú þegar árið er að renna sitt skeið langar mig að taka fram að ég hef aldrei skrifað blogg. Sögu mína á internetinu má rekja til 1. febrúar árið 2000, sem er sirka fimm árum áður en bloggið var fundið upp...

Fastir pennar
Fréttamynd

Davíð í pólitík, okurvextir, Dómínós

Hér er fjallað um afskipti Davíðs Oddssonar af pólitíkinni sem virðast fremur færast í vöxt, hið hryllilega vaxtaokur sem virðist þykja sjálfsagt á Íslandi og þrífst í skjóli fákeppni og viðskiptahindrana, en að lokum er vikið að Dómínós pítsum og hinu ógurlega sms-máli...

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýr lögreglustjóri, Gerald Ford, skattar

Hér er fjallað um nýjan lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Gerald Ford Bandaríkjaforseta sem sagt var að gæti ekki tuggið og gengið á sama tíma og það fyrirkomulag að þeir sem hafa millitekjur og þar undir skuli borga skatta en ríkt fólk sé undanþegið...

Fastir pennar
Fréttamynd

Gleðileg jól

Ég óska lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla. Myndin sem fylgir með er ekki af gestum í Silfri Egils heldur jólasveinum og er teiknuð af Kára fjögurra ára. Hafið það gott yfir hátíðarnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Útrásarvíkingar, Manuela, Dunkleosteus

Hér er enn fjallað um þá ákvörðun Straums-Burðaráss að skipta yfir í evrur, afskipti Davíðs af efnahagsstjórninni og viðbrögð KB-banka, en einnig er fjallað um flautuleikarann góða Manuelu Wiesler og hræðilegt skrímsli sem eitt sinn synti um höfin...

Fastir pennar