Fastir pennar

Sumarfrí Blairs, landið kvatt, ónýtar byggingar, Hugo Chavez

Tony Blair liggur undir ámæli fyrir að vilja ekki fórna fríum sínum sem hann tekur oft fjarri heimabyggð. Þetta þýðir að Blair þarf að fljúga langvegu, til staða eins og Bahamas eða Miami, með tilheyrandi útblæstri koltvísýrings. Breskir umhverfissinnar hafa látið skammirnar dynja á forsætisráðherranum fyrir þetta. Kannski ætti hann næst að fara til Brighton eða Bognor Regis í von um að komi sólarglenna til að skína á hvítan og krangalegan ráðherrakroppinn.

Varðmenn loftslagsins eru næstu fanatíkerar sem við þurfum að eiga í höggi við - þeir verða hálfu verri en liðið sem hefur hrellt reykingamenn svo þeir geta hvergi lengur stundað iðju sína.

Ég er heppinn. Í gær hitti ég starfsmann í umhverfisráðuneytinu og spurði hann hvort ég gæti kannski ekki framar flogið til fjarlægra áfangastaða? Hvort ég yrði framvegis að fara í frí í Munaðarnes? Hann sagði mér að vera rólegur, ég þyrfti bara að góðursetja trjáplöntur til að vega upp á móti skaðanum. Tré að andvirði svona 1000-2000 krónur myndu núlla út skaðann af einu flugfari til USA.

--- --- ---

Talandi um umhverfisöfga. Hvað á maður að halda um seremóníu þar sem Ung vinstri græn kveðja landið sem fer undir vatn eystra? Er þetta fullkomlega raunverulegt eða kannski einhvers konar mýstískt safnaðarstarf með létt ofsatrúarlegu ívafi? Landið er ekki annað en grjót, vita sálarlaust - og er þetta ekki svæðið sem sjálfur Hjörleifur Guttormsson sagði að væri ekkert sérstakt? Þar væri ekkert að sækja fyrir ferðamenn? Ég hef heldur ekki heyrt þetta fólk minnast einu orði á alla verkamennina sem hafa slasast eða beðið bana við Kárahnjúkavirkjun? Merkilegt hvað það virðist vekja lítinn áhuga meðal innfæddra í þessu landi. Það er bara ekki nokkur leið að starta umræðu um það.

--- --- ---

Maður var lengi búinn að heyra sögur af lélegum byggingum. Nú er þetta staðfest. Flísarnar eru að hrynja ofan á fólkið sem keypti rándýru íbúðirnar við Skúlagötuna, gólfin og svalirnar halla. Svona fer græðgin með okkur Íslendinga. Það kemur uppsveifla og menn ráða ekki við sig, alls konar sjoppukallar ætla að græða stórt. Þegar mestu braskararnir fóru að herja á byggingamarkaðinn mátti maður vita að ekki var von á góðu. Húsnæði byggt á árunum í kringum 2005 mun fá á sig svo slæmt orð að enginn vill kaupa það. Það fer allavega á útsölu.

Kunningjakona mín ein keypti íbúð í nýuppgerðu húsi í Þingholtunum. Staðsetningin er góð, en þegar hún fór að skoða nánar komst hún að því að allt í íbúðinni var ónýtt - eldhúsinnréttingar, parkett, lagnir. Allt þurfti að rífa burt. Þetta er síður en svo einsdæmi. Hvernig er þetta í ódýru nýbyggingunum í Norðlingaholti eða Áslandi?

--- --- ---

Vandinn með karla eins og Hugo Chavez er að þeir bilast á endanum. Fyrst eru þeir menn fólksins, velgjörðarmenn alþýðunnar, svo brestur eitthvað og þeir fyllast mikilmennskubrjálæði. Á endanum leiða þeir þjóðir sínar til einræðis, fátæktar og ömurðar. Fyrr en varir fer Chavez sömu leið og Mugabe, annað eftirlæti vinstrimanna á Vesturlöndum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×