Silfur Egils

Fréttamynd

Leiður misskilningur Víkverjans

Ég las að á einu ári hefði John McCain öldungadeildarþingmaður komið fimmtíu sinnum í helstu sunnudagsmorgunsþættina í Bandaríkjunum. Þeir gátu einfaldlega ekki fengið nóg af þessum áhugaverða manni...

Fastir pennar
Fréttamynd

Flókinn heilaþvottur

The Manchurian Candidate gæti í rauninni heitið The Haliburton Candidate og varaforsetaefnið djöfullega væri þá Dick Cheney...

Gagnrýni
Fréttamynd

Auðmenn fólksins

Það hefur risið ný kynslóð auðmanna sem nýtur aðdáunar. Hún þarf ekki að mæta á fundi hjá stjórnmálaflokkum; það er miklu sennilegra að stjórnmálamennirnir bíði í röðum eftir að fá áheyrn hjá þeim. Hún hefur ítök í fjölmiðlum og afþreyingariðnaði nútímans; býður fólki skemmtun, ódýrar flugferðir, meiri neyslu, endalaust úrval...........

Fastir pennar
Fréttamynd

Mætti lemja mann í trúnaði?

Umboðsmaður Alþingis hefur sett reglur um samskipti sín við ráðamenn. Þar er meðal annars kveðið á um að þeir eigi ekki að tala við hann í trúnaði. Vilji þeir geta athugasemdir við störf umboðsmanns verði það að vera skriflega eða á sérstökum fundi......

Fastir pennar
Fréttamynd

Sauðvitlausir fulltrúar fólksins

Eiríkur lýsir því hvernig sveitarstjórnir landsins glæptust til að taka að sér grunnskólann - létu ríkið plata sig vill hann meina. Lýsingar Eiríks á samningaviðræðunum þar sem þetta gerðist eru heldur betur skrautlegar....

Fastir pennar
Fréttamynd

Össur, Guðni og JBH í Silfri

Össur Skarphéðinsson, Guðni Ágústsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Jacques Juillard eru meðal gesta í Silfrinu á sunnudag. Einhverjir fleiri munu svo bætast við þetta einvalalið....

Fastir pennar
Fréttamynd

Repúblikanar og demókratar á Fróni

Íslensk stjórnmál eru svo langt til vinstri við allt sem tíðkast í Bandaríkjunum að erfitt er að taka það alvarlega þegar fólk hér fer að leika repúblikana  og demókrata. Mér skilst að menn hafi samt verið að skipast í slíkar fylkingar á fundi sem ungir sjálfstæðismenn héldu um síðustu helgi....

Fastir pennar
Fréttamynd

Ákaflega jákvætt skref

"Það að sé hægt að nálgast þáttinn á vefnum er bara tærasta snilld," skrifar Sigfús Þ. Sigmundsson og lofar gæðin á vefsjónvarpinu...

Skoðun
Fréttamynd

Iðrunarför ritstjóra til Liverpool

Johnson sagði að efnahagsleg hnignun og það hversu háðir borgarbúar séu velferðarkerfinu hafi gert sálarlíf þeirra ókræsilegt. Hvenær sem þeir hafi tækifæri til líti borgarbúar á sig sem fórnarlömb...

Fastir pennar
Fréttamynd

Skítakaffi og Svínastíur

Fyrir nokkrum árum var þetta ógæfulið flæmt af Keisaranum, skuggalegri búllu á Hlemmi, og niður í sjálft hjarta miðbæjarins. Búllunni var lokað. Hún þótti spilla ásýnd Hlemmsins. Nú heldur það til á stað sem er steinsnar frá Austurvelli, Alþingishúsinu, Dómkirkjunni og Ráðhúsinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Flottasti bókaflokkur á Íslandi

Þetta er allt mjög menningarlegt, vandað og metnaðarfullt. Lærdómsritin eru svo fallega hönnuð að þau eru á algjörum heimsmælikvarða - ég held að það sé enginn vafi á að þetta er flottasti bókaflokkur sem hefur komið út á Íslandi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Silfrið - Jón Baldvin næst

Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra og fyrrverandi utanríkisráðherra, ætlar að vera gestur í Silfri Egils um næstu helgi. Annar maður stórmerkur verður einnig gestur í þættinum. Það er franski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Jacques Juillard...

Fastir pennar
Fréttamynd

Hagsmunir og hugsjónir

Þarna voru flennistórar myndir af starfsfólki sjónvarpsstöðvarinnar í árdaga - þarmeðtalið allnokkrar af sjálfum mér - og lýsingar á samkvæmislífi starfsmanna. Gott ef ekki var minnst á orgíur. Ég sótti nokkur partí hjá Skjá einum á þessum tíma en man samt ekki eftir að hafa lent í stóðlífi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hörkulið í Silfrinu á sunnudag

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, Gísli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi og sjónvarpsmaður, Siv Friðleifsdóttir alþingismaður, Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og Mikael Torfason ritstjóri DV. Að auki kemur í þáttinn Kristinn R. Ólafsson, hinn nafntogaði fréttaritari Útvarpsins á Spáni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kynni mín af Nóbelshöfum

Ég lýsi ekki vonbrigðunum sem færðust yfir mig þegar Halldór og Svavar ræddu mestallt kvöldið um vísur sem kerlingar í Skaftafellssýslu höfðu yfir þegar þær skvettu úr koppum á tún...

Fastir pennar
Fréttamynd

Smávegis um hlutleysi

Því þarf að stilla upp eins og í lið - það þarf að passa vel upp á að valda alla mjög nákvæmlega, rétt eins og í boltanum. Svo alls hlutleysis sé gætt og enginn rífi sig nú lausan...

Fastir pennar
Fréttamynd

Um ofsafengnu framfaratrúna

"Ég er ekki endilega viss um að grimmdarverk frjálshyggjunnar sem fyrirbæris séu neitt skárri en grimmdarverk Sovétríkjanna eða þriðja ríkisins, þó þau séu ekki skipulögð með miðstýringu," skrifar Eiríkur Örn Norðdahl...

Skoðun
Fréttamynd

Á Lækjartorgi í rigningu

Ráðherrabílar stóðu í röðum fyrir utan Stjórnarráðið, það var greinilega ríkisstjórnarfundur. Ég taldi ellefu bifreiðar, allar svartar, mestanpart jeppa. Bílarnir voru allir í gangi þó ráðherrarnir væru inni á fundi. Það þykir ekki sérlega umhverfisvænt á þessum síðustu tímum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hamingjusamastir og ríkastir

Daniel Hannan segir í greininni í Spectator að á Íslandi hafi átt sér stað efnahagslegt kraftaverk. Því hafi hann fylgst með á þeim tíu árum sem hann hafi sótt Ísland heim. Íslendingar bókstaflega velti sér upp úr peningum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Í minningu Derridas

Derrida og félagar fylltu upp í gatið sem marxismi skildi eftir sig í háskólum í Bandaríkjunum - þar varð speki hans að torskiljanlegu runki í hæsta gæðaflokki. En það var svosem ekki karlinum að kenna - það er ekki hægt að kenna lærimeisturum um alla vitleysuna í aðdáendum sínum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fyrir viðskiptavininn

"Vissirðu að það kostar 12 þúsund krónur á dag í leyfisgjöld til að fá að setja upp sölubás á Lækjartorgi og selja lopapeysur eða tálgaða lunda," skrifar Sigurður Sigurbjörnsson og gagnrýnir skrif Egils um stórmarkaði...

Skoðun
Fréttamynd

Hr. Ibrahim og blóm Kóransins

Þetta er saga sem er einföld í stíl og framsetningu, en hún hefur að geyma ýmsar laglegar vangaveltur um umburðarlyndi, náungakærleik og tilgang jarðvistarinar. Bókinn er stutt og auðveld aflestrar, fjallar um indæl samskipti ráðvillts gyðingadrengs og smákaupmans sem er arabi

Gagnrýni
Fréttamynd

Hin ofsafengna trú á framfarir

Maðurinn er settur í miðju alheimsins, Það má rekja þúsundáraríkishugsjónir í gegnum húmanisma nítjándu aldar yfir í kommúnisma, nasisma - haldið ykkur fast - frjálshyggju síðustu áratuga...

Fastir pennar
Fréttamynd

Bolir með Che - eða Thatcher?

Ég hef samt ekki séð marga í bolum með mynd af Járnfrúnni. Ganga stuðningsmenn hennar ekki frekar í jakkafötum - kannski í bol innan undir skyrtunni? Þegar ég var í námi í París fyrir mörgum árum bjó ég í sama húsi og ógurlega sæt íslensk stúlka. Hún gekk í mjög smart gallajakka með risastórri mynd af Maó formanni aftan á. Mér varð á að spyrja hana hver þetta væri?

Fastir pennar
Fréttamynd

Silfur á netinu

Nú hefur vefurinn semsagt fengið inni hér á vísi.is sem er gott og þakkarvert. Hér er kraftur og metnaður í mönnum. Og þá er varla ástæða til annars en að reyna að gera þetta með stæl...

Fastir pennar
Fréttamynd

Forkostulegur forsetavinur

Ætli megi ekki fullyrða að hann hneigist fremur til gamaldags persónusögu. Stóra hetjan í huga hans er Churchill og raunar má segja að hann sé búinn að herma svo mikið eftir breska stjórnmálaskörungnum að hann sé farinn að líkjast honum ansi mikið....

Fastir pennar
Fréttamynd

Allir á Saga Class

En ef það er satt að hinir ungu bisnessjöfrar fari um heiminn og kaupi fyrirtæki sem þeir svo skíra nöfnum amerískra klámstjarna - ja, þá veit ég ekki á hvaða plani þetta er...

Fastir pennar
Fréttamynd

Síðasta öld mannkynsins

Ekki beinlínis bók sem eykur manni bjartsýni. Martin Rees telur um það bil helmingslíkur á að mannkynið komist í gegnum þessa öld án þess að verða fyrir meiriháttar katastrófu...

Gagnrýni