Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur. 18.2.2026 23:07
„Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Æðsti yfirmaður sænska hersins segir alltaf hættu á stigmögnun á Norður-Atlantshafi með þá utanríkismálastefnu sem Rússar reka. Æfingar flughersins hér á landi séu mikilvægar og Íslendingar sinni sínu hlutverki afar vel. 18.2.2026 22:01
Íhugar að leggja á sykurskatt Starfshópi verður falið að skoða fýsileika þess að leggja sérstakan skatt á vörur sem teljast óhollar, samkvæmt drögum að þingsályktunartillögu. Jafnframt verður kannaður möguleikinn á að lækka álögur á holl matvæli. Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að líta til reynslu annarra landa af slíkri skattheimtu og hvort hún hafi skilað jákvæðum árangri. 15.2.2026 19:59
„Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir alls konar hafa gengið á í kosningabaráttu til formanns flokksins. Hún segist þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk og nú sé mikilvægt að fylkja sér á bakvið nýja forystu og vinna saman. 15.2.2026 16:10
Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Lilja Alfreðsdóttir hefur verið kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og er hún fyrsta konan sem hlýtur kjör sem formaður í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Atkvæðagreiðsla fór fram á 38. flokksþingi Framsóknar sem haldið er um helgina. 15.2.2026 15:33
„Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Stjórnmálafræðingur segir málefnalegan mun á milli frambjóðenda til formanns Framsóknarflokkinn ekki mikinn. Munurinn liggi í stöðu þeirra innan flokksins og erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna í dag. 15.2.2026 12:52
Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins Nýr formaður Framsóknarflokksins verður kjörinn í dag en þær Lilja Alfreðsdóttir og Ingibjörg Isaksen eru í framboði. Við verðum í beinni frá flokksþingi Framsóknar í hádegisfréttum og ræðum bæði við fráfarandi formann sem og stjórnmálafræðing um stöðu mála. 15.2.2026 11:35
„Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. 14.2.2026 14:20
Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Valentínusardagurinn er í dag en hann skipar sífellt stærri og stærri sess í hugum Íslendinga. Deildarstjóri í Garðheimum segir sprengingu hafa orðið á síðasta ári og segir Íslendinga taka öllum gleðidögum fagnandi. 14.2.2026 13:02
Segir einkaaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að endurskoða þurfi hvernig bráðamóttaka Landspítala sé sett upp og rekin. Ákveða þurfi að breyta fyrirkomulaginu til að sýna starfsmönnum og skjólstæðingum meiri mannúð og virðingu. 14.2.2026 12:30