Hætta við að halda risamót á velli Trumps Samtök atvinnukylfinga í Bandaríkjunum, PGA of America, hafa ákveðið að hætta við að halda PGA meistaramótið á næsta ári á golfvelli í eigu Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. Er það vegna atburðanna í síðustu viku þegar stuðningsmenn Trumps réðust inn í bandaríska þinghúsið. 11.1.2021 07:55
Vandræðin aukast vegna veirunnar en NBA heldur áfram Þó að leikmannahópar nokkurra NBA-liða hafi þynnst og að í gær hafi þurft að fresta leik Boston Celtics og Miami Heat, vegna kórónuveirusmita eða gruns um smit, stendur ekki til að stöðva keppni í deildinni. 11.1.2021 07:30
Æfa tvisvar í viku, eignuðust bjórkæli og fá nú Mourinho og hans menn til Krossabæjar Leikmenn Marine æfa fótbolta tvisvar í viku, hafa ekki spilað leik síðan á öðrum degi jóla og eru einum bjórkæli ríkari vegna áhuga heimsins á stærsta leik lífs þeirra. Sá leikur er í dag þegar áhugamennirnir fá Jose Mourinho og hans menn í Tottenham í heimsókn, í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. 10.1.2021 09:01
Meira kemur til með að mæða á Gylfa í bikarslagnum Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í stóru hlutverki hjá Everton síðustu vikur og útlit er fyrir enn meira mæði á honum í dag þegar liðið freistar þess að komast áfram í ensku bikarkeppninni í fótbolta. 9.1.2021 09:00
Kallar eftir skýrari áætlun lendi lið í sóttkví Darri Freyr Atlason, þjálfari karlaliðs KR í körfubolta, segir vissulega gleðiefni að keppni geti hafist að nýju í Dominos-deildunum í næstu viku. Fyrirvarinn sé hins vegar skammur og því verði KR ekki með fullskipað lið í fyrstu leikjunum eftir hléið langa. 8.1.2021 15:23
Keppni í íþróttum leyfð án áhorfenda Frá og með næsta miðvikudegi, þegar tæplega hundrað dagar verða liðnir frá síðasta leik í íslenskri deildakeppni í íþróttum, verður keppni heimiluð á nýjan leik. 8.1.2021 12:41
Eyþóra tilbúin að fórna ÓL vegna framgöngu fimleikasambandsins Ólympíufarinn Eyþóra Þórsdóttir stendur í stappi við hollenska fimleikasambandið sem vill losa sig við þjálfarann Patrick Kiens. Hún er tilbúin að fórna Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar breyti sambandið ekki afstöðu sinni. 8.1.2021 12:30
Arna Sif barnshafandi Landsliðskonan þrautreynda Arna Sif Pálsdóttir verður ekki með Val þegar, já eða ef, tímabilið í Olís-deildinni í handbolta heldur áfram. 7.1.2021 16:40
Diallo orðinn leikmaður Man Utd Kantmaðurinn Amad Diallo er formlega orðinn leikmaður Manchester United en enska knattspyrnufélagið greindi frá þessu síðdegis. 7.1.2021 16:26
Óvissa um Alexander sem er enn aumur í höfðinu „Það var ekki séns að hann gæti spilað áfram,“ segir Guðmundur Guðmundsson um Alexander Petersson. Hann sé enn aumur í höfðinu eftir brotið fólskulega í gær og framhaldið hjá honum sé óljóst. 7.1.2021 12:00