Blótaði og braut kylfuna í bræðikasti Tyrrell Hatton á yfir höfði sér sekt eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu á Opna breska mótinu í golfi í dag. Hann er úr leik á mótinu. 16.7.2021 16:53
Tímabilinu lokið hjá Hrannari: „Einn mesti sársauki sem ég hef fundið“ Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður KA, hefur sett sér það markmið að vera klár í slaginn þegar nýtt Íslandsmót í fótbolta hefst næsta vor. Hann er með slitið krossband í hné. 16.7.2021 16:31
Félagi Sveins Arons bannað að kaupa leikmenn í tvö ár Ítalska knattspyrnufélagið Spezia hefur verið sett í kaupbann til næstu tveggja ára. Það þýðir að félagið má ekki kaupa leikmenn í næstu fjórum félagaskiptagluggum. 16.7.2021 14:31
Fékk þær fréttir á sex ára afmælinu að Djokovic kæmi á Ólympíuleikana Serbinn Novak Djokovic ætlar að vera með á Ólympíuleikunum í Tókýó og mun þannig freista þess að verða fyrsti karl sögunnar til að vinna „gullalslemmuna“ með því að vinna Ólympíugull og öll fjögur risamótin í tennis á sama ári. 16.7.2021 13:01
Hársbreidd frá vallarmeti og er með þriggja högga forskot Hinn 24 ára gamli Collin Morikawa er kominn í baráttuna um að vinna sitt annað risamót á ferlinum eftir stórkostlega spilamennsku á öðrum degi Opna breska meistaramótsins í golfi í dag. 16.7.2021 12:10
„Agla María og Áslaug Munda gera útslagið“ „Maður hefur varla vitað við hverju mátti búast í neinum leik í sumar en ég held að þetta verði töluvert eðlilegri fótboltaleikur en síðasta viðureign þessara liða,“ segir Mist Rúnarsdóttir um stórleik Breiðabliks og Vals í kvöld. 16.7.2021 11:31
Hjörtur kominn til Pisa Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson, landsliðsmaður í fótbolta, er orðinn leikmaður Pisa á Ítalíu en hann skrifaði undir samning við félagið sem gildir til næstu fjögurra ára. 16.7.2021 11:16
Íslensk fótboltalið á vergangi ef þeim gengur vel „Það er ljóst að ástandið er alvarlegt,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, um þá staðreynd að ef að íslenskum fótboltaliðum vegnar vel í alþjóðlegri keppni hafa þau engan stað til að spila á í vetur. 16.7.2021 09:01
Saka lætur kynþáttaníðið ekki stöðva sig en gagnrýnir samfélagsmiðlarisana „Ástin mun alltaf sigra,“ segir enski landsliðsmaðurinn Bukayo Saka í yfirlýsingu í kjölfar Evrópumótsins í fótbolta. Hann segir dapurlegt að samfélagsmiðlarisarnir skuli ekki geta stöðvað drulluna sem fær að fljóta á miðlunum. 15.7.2021 17:01
Leggur skóna aftur á hilluna eftir magnaðan feril Hollenska knattspyrnugoðsögnin Arjen Robben hefur lagt skóna á hilluna. Þessi 37 ára gamli kantmaður lék sína síðustu leiki með liðinu sem hann hóf ferilinn með; Groningen í Hollandi. 15.7.2021 16:30