KR-ingar skikkaðir í sóttkví fram yfir helgi Leikmenn, þjálfarar og aðrir úr starfsliði KR í 1-0 sigrinum gegn HK í Kórnum á mánudag eru komnir í sóttkví. Ástæðan er sú að leikmaður úr byrjunarliði KR greindist með kórónuveirusmit. 19.8.2021 13:00
Alfreð hættir á Selfossi Alfreð Elías Jóhannsson hættir sem þjálfari kvennaliðs Selfoss í fótbolta í haust. Hann greindi frá þessu sjálfur á Facebook. 19.8.2021 11:55
Segir Guðna og forystu KSÍ vita af umræddu kynferðisofbeldi „Í mínum huga eru viðbrögð KSÍ sorgleg. Börn og ungmenni eiga meira skilið en að alast upp við það gildi og menningu að ofbeldi sé ekki ámælisvert.“ Þetta segir í grein frá Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, framhaldsskólakennara og forkonu jafnréttisnefndar KÍ. Undir greinina skrifa einnig meðlimir í femínistahópnum Öfgum og hópnum Aktívismi gegn nauðgunarmenningu. Segja þær KSÍ þurfa að taka gerendur ofbeldis úr íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. 19.8.2021 10:46
Skýtur á ÍSÍ og segir boltann rúlla hægt „Er ekki kominn tíminn á að láta verkin tala? Ég vil sjá aðgerðir svo það náist loksins að styðja og styrkja afreksíþróttafólkið okkar eins og það á skilið.“ Þetta segir Kjartan Ásmundsson, markaðs- og þróunarstjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem er orðinn langeygður eftir íslenskri afreksíþróttamiðstöð. 19.8.2021 09:31
Amanda lagði upp í stórsigri og Blikar mæta heimakonum Amanda Andradóttir lagði upp eitt af mörkum Vålerenga og Ingibjörg Sigurðardóttir stóð vaktina í vörn liðsins þegar það sló út Mitrovica í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í dag. 18.8.2021 16:51
Sjáðu sigurmark Karenar Maríu, martröð Guðnýjar og hvernig Þróttur komst í þriðja sæti Sex mörk voru skoruð í gærkvöld í þremur leikjum í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta. Keflavík vann ÍBV 2-1 í Eyjum, Þór/KA vann Norðurlandsslaginn við Tindastól 1-0 og Þróttur vann 2-0 sigur gegn Stjörnunni. 18.8.2021 15:50
Leikmaður KR smitaðist Leikmaður úr byrjunarliði KR sem mætti HK á mánudagskvöld, í Pepsi Max-deild karla í fótbolta, hefur greinst með kórónuveirusmit. Því gæti allur leikmannahópur KR þurft að fara í sóttkví. 18.8.2021 11:16
Tekjur Íslendinga: Hafþór Júlíus mokaði inn milljónum Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson þénaði hátt í tíu milljónir króna á mánuði á síðasta ári og var langtekjuhæstur í hópi íþróttamanna og þjálfara á Íslandi, samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar. 18.8.2021 10:44
Umfjöllun og viðtöl: HK - KR 0-1 | Tíu KR-ingar héldu Evrópudraumnum á lífi KR hélt góðu lífi í Evrópudraumi sínum með því að landa sigri í Kórnum í fyrsta sinn, 1-0 gegn HK. KR missti mann af velli með rautt spjald eftir tíu mínútna leik en landaði samt sigri, svipað og gegn KA á Dalvík fyrr í sumar. 16.8.2021 23:00
Kristján fékk sig fullsaddan og sparkaði í keilu „Framlagið var geggjað og það sýndi sig að ef að menn leggjast á eitt um að hlaupa og berjast, og spila fyrir KR-merkið sitt, þá geta þeir spilað góðan leik og náð í þrjú stig,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir 1-0 sigurinn gegn HK í Kórnum í kvöld. 16.8.2021 21:54