Lærin stöðvuðu Sveindísi eftir tvennuna en Wolfsburg á toppinn Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2022 15:02 Sveindís Jane Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik með Wolfsburg í lok janúar. vfl-wolfsburg.de Sveindís Jane Jónsdóttir gat ekki fylgt eftir tvennu sinni um helgina fyrir Wolfsburg í dag, vegna stífleika í lærvöðva, þegar liðið kom sér á topp þýsku 1. deildarinnar í fótbolta.
Sveindís var í fyrsta sinn í byrjunarliði Wolfsburg um helgina og skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, í 5-1 sigri gegn Köln. Samkvæmt heimasíðu Wolfsburg varð hún hins vegar að sleppa leiknum við Sand í dag en markmiðið er að hún snúi aftur á völlinn eins fljótt og mögulegt er. Án Sveindísar lenti Wolfsburg undir gegn Sand í dag en Hollendingurinn Dominique Janssen og Svíinn Rebecka Blomqvist tryggðu Wolfsburg 2-1 sigur. Þar með komst Wolfsburg stigi upp fyrir Bayern München í einvígi liðanna um þýska meistaratitilinn. Liðin hafa nú leikið 16 leiki hvort og er Wolfsburg með 41 stig. Bayern, með Íslendingatríóið Glódísi Perlu Viggósdóttur, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Cecilíu Rán Rúnarsdóttur innanborðs, getur komist aftur á toppinn á föstudaginn þegar liðið mætir Frankfurt, liðinu í 3. sæti deildarinnar. Wolfsburg á svo sömuleiðis erfiðan leik við Hoffenheim á laugardaginn.
Þýski boltinn Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Sjá meira