Bæta á vandræðin í Caldera Sjaldan er ein báran stök. Íbúar Caldera eiga við mörg vandamál að etja, eins og hátt orkuverð og verðbólgu en nú bætast stelpurnar í Babe Patrol við. 19.10.2022 20:54
Banaslys við Kirkjufell Þyrlu Landhelgisgæslunnar var flogið að Kirkjufelli við Grundarfjörð á Snæfellsnesi vegna banaslyss í hlíðum fjallsins í dag. Mikill viðbúnaður var við fjallið og komu lögregluþjónar og björgunarsveitarfólk að slysinu. 19.10.2022 19:15
„Skarpan kraft“ þurfti til að veita stungusárin Frekari rannsóknir þarf til að sýna fram á hvort maðurinn sem banaði öðrum á Ólafsfirði í byrjun mánaðarins gerði það í sjálfsvörn eða ekki. Hinn látni er talinn hafa átt upptökin og mætt með hnîf á vettvang. 19.10.2022 18:47
Hætta við að láta geðlækni skoða skilaboðin Lögreglan ætlar ekki að fá geðlækni til að leggja mat á það hvort mönnum tveimur sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna hryðjuverkarannsóknarinnar svokölluðu, hafi verið alvara í skilaboðum sem þeir sendu sín á milli. Þar eru þeir sagðir hafa rætt það að fremja hryðjuverk og tilræði við þekkta Íslendinga. 18.10.2022 23:40
Segir stöðu Rússa erfiða og ýjar að undanhaldi Nýr yfirmaður innrásar Rússa í Úkraínu sagði í dag að taka þyrfti „erfiðar ákvarðanir“ á næstunni í Kherson-héraði í Úkraínu. Leppstjórar Rússlands þar hafa sagt að til standi að flytja fólk frá Kherson-borg en ummælin þykja til marks um að Rússar muni mögulega hörfa yfir Dnipro-á. 18.10.2022 22:19
Samþykkja að styrkja rafíþróttir Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að vísa tillögu um að veita íþróttafélögum sem eru með rafíþróttadeildir styrk á næsta ári til fjárhagsáætlanargerðar. Um er að ræða tuttugu milljóna króna sem verja á til íþróttafélaganna. 18.10.2022 20:34
Skrímsli og hræðsla hjá Queens Stelpurnar í Queens ætla að láta reyna á laumupúkahæfileikana í kvöld. Þær munu spila hryllingsleikinn In Silence og reyna að sleppa undan kvikindinu The Rake. 18.10.2022 20:30
Stóra kókaínmálið komið til saksóknara Lögreglan hefur lokið rannsókn á stærsta kókaínmáli Íslands og er málið nú á borði héraðssaksóknara. Fjórir menn hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því sumar og eru grunaðir um að reyna að smygla tæpum hundrað kílóum af kókaíni til landsins. 18.10.2022 19:51
Senda dróna og eldflaugar til Rússa Ráðamenn í Íran hafa samþykkt að selja Rússum mikið magn eldflauga og dróna. Þau vopn munu Rússar væntanlega nota til að gera árásir á skotmörk í Úkraínu en þær árásir Rússa beinast að mestu gegn borgaralegum skotmörkum og hafa verið fordæmdar sem stríðsglæpir. 18.10.2022 18:17
Fordæma drónaárásir Rússa á óbreytta borgara Hvíta húsið fordæmdi í dag sjálfsprengidrónaárásir Rússa á borgaraleg skotmörk í borgum og bæjum Úkraínu. Talskona Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi að Bandaríkjamenn myndu standa áfram við bakið á Úkraínumönnum og að Rússar myndu gjalda fyrir stríðsglæpi þeirra í Úkraínu. 17.10.2022 23:54
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti