Hætta við eina stærstu leikjasýningu ársins Ekkert verður af tölvuleikjasýningunni E3 2023. Þetta var tilkynnt í gær eftir að ljóst var að stærstu leikjaframleiðendur heimsins myndu ekki mæta á ráðstefnuna. Sýningin, sem halda átti í júní, hefði verið sú fyrsta frá 2019 þar sem gestur hefðu fengið að mæta. 31.3.2023 11:19
Minnst þrjátíu og fimm létust þegar gólf gaf sig og tugir féllu í brunn Að minnsta kosti þrjátíu og fimm létu lífið þegar gólf í musteri Hindúa á Indlandi gaf sig í morgun. Fólkið féll ofan í vatnsbrunn sem var undir gólfinu og drukknaði en vatnið mun hafa verið um átta metrar á dýpt. 31.3.2023 10:23
Trump ákærður í New York Meðlimir ákærudómstóls í New York hafa lagt til að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verði ákærður. Nákvæmlega fyrir hvað liggur ekki fyrir enn en búist er við því að Alvin Bragg, umdæmissaksóknari í Manhattan, opinberi ákæruna á næstu dögum. 30.3.2023 21:37
Fuglaflensan mætir aftur til Gameverunnar Gameveran fær Fuglaflensu aftur í heimsókn í kvöld. Saman ætla þau að rífa í lyklaborðin og spila leiki. 30.3.2023 20:31
Gögnum um tölvuárásir Rússa lekið til fjölmiðla Rússneska netöryggisfyrirtækið Vulkan hefur hjálpað herafla og leyniþjónustum Rússlands náið við netárásir og gagnaöflun. Auk þess hafa starfsmenn fyrirtækisins þjálfað starfsmenn leyniþjónusta Rússlands og tekið þátt í að dreifa falsfregnum og ýta undir upplýsingaóreiðu. 30.3.2023 19:00
Rýma fleiri hús á Eskifirði Búið er að lýsa yfir hættuástandi vegna ofanflóða á Eskifirði og verið að rýma hús þar. Rýmingin gildir frá klukkan fjögur í dag, þar til hún er felld niður. 30.3.2023 15:24
Fimm ára skaut sextán mánaða bróður sinn til bana Sextán mánaða drengur var skotinn til bana af fimm ára systkini sínu í Indiana í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Eldra barnið mun hafa komist í skammbyssu sem var á heimili þeirra og notaði hana til að skjóta ungabarnið til bana. 30.3.2023 15:11
Eldur kviknaði er lest með etanól og síróp fór af sporinu Lest sem verið var að nota til að flytja etanól og síróp fór af sporinu í Minnesota í morgun. Við það kviknaði mikill eldur svo stór hluti lestarinnar stóð í ljósum logum. Íbúar bæjarins Raymond, sem bú nærri slysinu, þurftu að flýja heimili sín. 30.3.2023 13:46
Minnst þrjátíu og einn látinn eftir eldsvoða í ferju Minnst 31 er látinn og sjö er saknað eftir að eldur kviknaði í ferju við Filippseyjar í nótt. Eldurinn logaði í um átta klukkustundir en björgunaraðilum tókst að bjarga rúmlega tvö hundruð manns. 30.3.2023 12:11
ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. 30.3.2023 11:06