Eilíf ferðalög tóku sinn toll og á endanum tók hún heilsuna fram yfir íþróttina Valdís Þóra Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukylfingur, segir að krónísk bakmeiðsli séu ástæða þess að hún hafi lagt kylfurnar á hilluna. Hún ákvað að taka andlega og líkamlega heilsu fram yfir golf, íþróttina sem var hennar atvinna. 12.4.2021 14:30
Karitas fimmti leikmaður KFR til að spila fyrir kvennalandsliðið Þegar Karitas Tómasdóttir kom inn af varamannabekk íslenska kvennalandsliðsins gegn Ítalíu á dögunum varð hún fimmti leikmaður Knattspyrnufélags Rangæinga til að landsleik. 12.4.2021 13:31
Keflavík semur við tvo erlenda leikmenn Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur verið iðinn við kolann undanfarið og sótt leikmenn fyrir bæði karla- og kvennalið félagsins en bæði lið eru nýliðar í Pepsi Max-deildunum í sumar. Kvennalið Keflavíkur samdi við tvo nýja leikmenn um helgina. 12.4.2021 12:31
Bæjarar horfa til Klopp ef Flick tekur við landsliðinu Nýjasta slúðrið erlendis er að Evrópu- og Þýskalandsmeistarar Bayern München horfi til Jürgen Klopp, þjálfara Englandsmeistara Liverpool, fari svo að Hansi Flick taki við þýska landsliðinu. 12.4.2021 11:01
Óvænt toppbarátta á Spáni Á meðan Manchester City er þegar farið að skipuleggja athöfnina er liðið tekur á móti Englandsmeistaratitlinum og Inter Milan er að stöðva einokun Juventus á Ítalíu þá virðist sem hörku titilbarátta sé fram undan á Spáni. 12.4.2021 09:31
Solskjær: Ef þetta væri sonur minn fengi hann ekki að borða Það var mikill hiti í leik Tottenham Hotspur og Manchester United er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gær. Fór það svo að Man United vann 3-1 en það var atvik í stöðunni 0-0 sem var helsta umræðuefnið að leik loknum. 12.4.2021 09:00
Telur að sigurinn á Masters gæti aukið vinsældir íþróttarinnar í heimalandinu Hideki Matsuyama varð í gær fyrsti karlkylfingurinn frá Japan til að vinna risamót í golfi er hann vann hið goðsagnakennda Masters-mót. Hann er einnig fyrsti kylfingurinn frá Asíu sem klæðist græna jakkanum. 12.4.2021 08:31
Vill tvo leikmenn til viðbótar en ekki tilbúinn að sækja hvern sem er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu, væri til í að fá tvo leikmenn til viðbótar í lið sitt en vill vanda valið. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 um helgina. 12.4.2021 08:01
Spurs unnu Mavericks í spennuþrungnum leik og Denver skoraði aðeins átta í síðasta leikhluta Alls fóru átta leikir fram í NBA-deildinni í nótt. Þar ber helst að nefna stórsigur Milwaukee Bucks á Orlando Magic, 124-87, og sigur San Antonio Spurs á Dallas Mavericks, 119-117. 12.4.2021 07:30
Umræðan um að sniðganga HM í Katar verður hærri og hærri Undanfarnar vikur hafa raddir verið á kreiki að ýmsar Evrópuþjóðir séu að íhuga að sniðganga HM í knattspyrnu sem fram fer í Katar undir lok árs 2022. Má þar nefna Danmörku, Noreg, Þýskaland og Holland. 10.4.2021 09:00