Sabitzer kominn í hóp þeirra sem hafa verið á mála hjá Dortmund og Bayern Austurríkismaðurinn Marcel Sabitzer er genginn í raðir Borussia Dortmund frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Hann er langt því frá fyrsti leikmaðurinn sem fer á milli liðanna á undanförnum árum. 24.7.2023 23:00
Jason Daði fyrir stórleikinn gegn FCK: Held að við ætlum bara að hlaupa yfir þá „Bara mjög spenntur, get eiginlega ekki beðið og hlakka til að fá þá hingað í heimsókn,“ sagði Jason Daði Svanþórsson, einn skæðasti leikmaður Íslandsmeistara Breiðabliks, um heimsókn FC Kaupmannahafnar annað kvöld. 24.7.2023 22:31
Telja að Barcelona-stjörnur Noregs verði bekkjaðar gegn Sviss Eftir óvænt tap gegn Nýja-Sjálandi í fyrstu umferð HM kvenna í knattspyrnu virðist Hege Riise, þjálfari norska landsliðsins, ætla að sýna hver ræður og bekkja tvær af helstu stjörnum Noregs. 24.7.2023 19:30
KA fer til Belgíu eða Danmerkur sigri það Dundalk KA mætir Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Takist KA að komast í gegnum FH-banana frá árinu 2016 þá bíða þeirra mótherjar frá annað hvort Belgíu eða Danmörku. 24.7.2023 18:46
Birnir Snær eftirsóttur Birnir Snær Ingason, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, verður samningslaus síðar í ár og er gríðarlega eftirsóttur. 24.7.2023 17:30
Sky Sports: Chelsea, Man Utd, Tottenham, Inter og Barcelona hafa áhuga á Mbappé Sky Sports heldur því fram að Chelsea, Manchester United, Tottenham Hotspur, Inter Milan og Barcelona hafi öll áhuga á að fá Kylian Mbappé í sínar raðir. Þá hefur verið greint frá því að Al Ahli í Sádi-Arabíu vilji gera Mbappé að dýrasta leikmanni í heimi. 24.7.2023 17:00
Oliver fyrir einvígið gegn FCK: Þeir hafa í rauninni öllu að tapa „Gífurlega spenntir, þetta er eitthvað sem manni langar að gera og við getum eiginlega ekki beðið að sýna okkar gæði gegn gæðum þessara leikmanna,“ sagði Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, um viðureign morgundagsins gegn FC Kaupmannahöfn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. 24.7.2023 16:00
Trevor Francis látinn Enski landsliðsmaðurinn fyrrverandi Trevor Francis er látinn. Hann var á sínum tíma fyrsti leikmaður Bretlandseyja sem keyptur var fyrir eina milljón punda. Hann var aðeins 69 ára gamall. 24.7.2023 14:30
Háttsettur maður innan ensku úrvalsdeildarinnar ásakaður um að nauðga táningsstelpu Lögreglan í Bretlandi yfirheyrði nýverið háttsettan mann innan ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu vegna ásakana um að hann hefði nauðgað stelpu sem var þá aðeins 15 ára gömul. 24.7.2023 14:15
Borges frá Brasilíu með fyrstu þrennu HM í ár Brasilía vann þægilegan 4-0 sigur á Panama í síðasta leik dagsins á HM kvenna í knattspyrnu. Ary Borges var allt í öllu í sigri Brasilíu en hún skoraði fyrstu þrennu mótsins sem og hún lagði upp fjórða mark liðsins. 24.7.2023 13:00