Þjálfarinn farinn frá Skallagrími eftir 55 stiga tap fyrir Njarðvík Goran Miljevic er hættur sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfubolta. Hann stýrði því í síðasta sinn þegar það tapaði fyrir Njarðvík, 31-86, á heimavelli í Subway-deildinni í gær. 28.10.2021 06:58
Fyrsti atvinnufótboltamaðurinn sem kemur út úr skápnum Ástralinn Josh Cavallo greindi opinberlega frá því að hann væri hommi. Hann er fyrsti atvinnufótboltamaðurinn sem kemur út úr skápnum svo vitað sé. 27.10.2021 13:30
Skapari Squid Game svarar LeBron: Getur gert sitt eigið framhald Höfundur sjónvarpsþáttanna vinsælu, Squid Game, hefur svarað körfuboltastjörnunni LeBron James eftir að hann gagnrýndi hvernig þáttaröðin endaði. 27.10.2021 13:01
Vanda skoðar að láta landsliðsfólk skrifa undir samning Til skoðunar er að láta leikmenn landsliða Íslands í fótbolta skrifa undir samning þar sem það samþykkir að fara eftir ákveðnum reglum. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, ætlar að fara með karlalandsliðinu til Rúmeníu og Norður-Makedóníu í næsta mánuði og ræða við leikmenn þess. 27.10.2021 12:15
Hafa rætt við fjölda fólks við rannsókn málsins Ný gögn hafa komið fram í máli Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar. Frá þessu er greint í ítarlegri grein The Athletic um kynferðis- og ofbeldisbrot landsliðsmanna Íslands. 27.10.2021 11:44
Lýsir andrúmsloftinu á neyðarfundi KSÍ: „Fólk var leitt, sorgmætt og sumir grétu“ Í afar ítarlegri grein The Athletic um meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmanna karlalandsliðsins í fótbolta er meðal annars fjallað um andrúmsloftið á neyðarfundinum þar sem stjórn KSÍ sagði af sér. 27.10.2021 11:19
The Athletic fjallar ítarlega um KSÍ-málið: „Víkingaklappið er að eilífu eyðilagt“ Fjallað er ítarlega um meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í grein The Athletic sem birtist í morgun. 27.10.2021 10:51
Segist ekki hafa hunsað Solskjær: „Stórar lygar til að búa til fyrirsagnir“ Paul Pogba, leikmaður Manchester United, segir ekkert til í því að hann hafi hunsað knattspyrnustjórann Ole Gunnar Solskjær eftir tapið fyrir Liverpool. 27.10.2021 09:32
Ferguson mætti á æfingasvæði United til að passa upp á Solskjær Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, á enn hauk í horni í Sir Alex Ferguson. Skotinn gerði sér ferð á æfingu United í gær til að sýna Norðmanninum stuðning. 27.10.2021 08:01
Westbrook og Davis drógu Lakers-vagninn í fjarveru LeBrons Russell Westbrook átti sinn besta leik í treyju Los Angeles Lakers þegar liðið vann San Antonio Spurs, 121-125, eftir framlengingu í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 27.10.2021 07:30