Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Lög­reglan í Kaup­manna­höfn stendur í ströngu

Mótmæli fara fram víða um Kaupmannahöfn í dag og þar á meðal hefur hópur sem kallar sig „Danska fólkið“ staðið fyrir mótmælagöngu þar sem þau segjast hafna „trúarlegum öfgum, íslamvæðingu, sjaríalögum, pólitískum öfgum“ meðal annars. Gagnmótmæli hófust á sama tíma en þau eru gegn kynþáttafordómum.

Jólin gengin í garð í verslunum Bónus

Einhverjir ráku eflaust upp stór augu á dögunum þegar við þeim blöstu staflar af jólapiparkökukössum en þeir fóru að birtast í Bónus-verslunum þann 1. september. Framkvæmdastjórinn segir söluna hafna fyrr en tíðkast hefur en það sé tilkomið vegna mikillar eftirspurnar.

Elti blóðugan brotaþola inn á lög­reglu­stöðina

Tveir menn voru handteknir í gær eftir að einn hljóp blóðugur inn á lögreglustöð en árásarmaður hafði veist að honum með hníf. Áverkar voru mest á höndum en þeir voru ekki taldir alvarlegir. Mönnunum hafði lent saman vegna þess að annar átti að hafa stolið munum af hinum.

Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýr­keypt

Mál fyrrverandi hjúkrunarfræðingsins Lindsay Clancy hefur vakið gríðarlega athygli fólks um allan heim og þá sérstaklega í Bandaríkjunum en þar hefur almenningur skipst í tvær fylkingar, þeir sem telja hana seka og þeir sem telja svo ekki vera. Athyglin hefur verið slík að sjálfur forseti Bandaríkjanna lagði orð í belg.

Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist.

Rýmdi grunn­skólann augna­blikum áður en skyndiflóð skall á

Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni.

Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýska­landi

Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést en hún hafði hlotið mjög alvarlega áverka. Maður sem er grunaður um verknaðinn verður leiddur fyrir dómara á eftir.

Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki

Þau Finneas O´Connell og Claudia Sulewski gengu í það heilaga á dögunum en sá fyrrnefndi er bróðir söngkonunnar Billie Eilish, sem gaf hjónin einmitt saman. Herlegheitin, sem fóru fram á búgarði í Kaliforníu, voru vel sótt og meðal gesta voru þau Justin og Hailey Bieber, Jason Sudeikis, Kristen Bell og fleiri. 

Piparúða beitt við hand­töku í Hafnar­firði

Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna.

Sjá meira