Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi verður opnuð aftur á morgun eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir frá því í apríl. 10.6.2026 20:00
Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Matvara hefur hækkað meira á Íslandi en annars staðar í Evrópu undanfarin fimm ár, samkvæmt greiningu Samkeppniseftirlitsins. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir stjórnvöld geta gert mun meira til að bregðast við þróuninni. 10.6.2026 18:02
Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Útgerðarfélagið Brim hefur ráðist í uppsagnir í uppsjávarvinnslu á Vopnafirði. Fundur með starfsmönnum átti að hefjast klukkan eitt í dag. 10.6.2026 13:04
Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hopp hefur innleitt nýja lausn í appi sínu sem gerir notendum kleift að auðkenna sig með rafrænu ökuskírteini þegar þeir skrá sig fyrir deilibílaþjónustu fyrirtækisins. 10.6.2026 11:06
Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag. 9.6.2026 19:01
FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Félag íslenskra atvinnuflugmanna hvetur þá flugmenn Icelandair sem það geta til að hlaupa undir bagga með félaginu og styðja við rekstur þess. Þetta kemur fram í fréttabréfi FÍA sem sent var á flugmenn fyrr í dag. 5.6.2026 16:23
Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Icelandair hefur bókfært 110,2 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað frá ársbyrjun 2022 til loka mars á þessu ári. 4.6.2026 16:35
Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að stóri flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða liggi í því hvernig tengikostnaður nýrra virkjana er reiknaður. Hann boðar frumvarp næsta haust sem eigi að greiða leið fyrir Hvalárvirkjun, Austurgilsvirkjun og mögulega Skúfnavatnavirkjun. 4.6.2026 16:01
Kalla eftir skýrari stefnu um ETS Tuttugu stjórnendur úr íslensku atvinnulífi kalla eftir því að stjórnvöld beiti sér af meiri krafti fyrir íslenskum hagsmunum gagnvart viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, ETS-kerfinu. Þeir segja mikilvægt að kerfið taki betur mið af sérstöðu Íslands, samkeppnishæfni fyrirtækja og að aukið gagnsæi verði um tekjur ríkisins af kerfinu. 4.6.2026 12:46
Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í kjaradeilu aðilanna klukkan sjö annað kvöld. 3.6.2026 10:55