Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Nítján sóttu um stöðu forstjóra Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna sem auglýst var laus til umsóknar fyrr á árinu. 18.4.2024 11:46
Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Sigurður Amlín Magnússon hefur verið ráðinn í nýtt hlutverk rekstrarstjóra hjá Stöð 2. 18.4.2024 09:19
Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila Breski rithöfundurinn Sophie Kinsella, sem þekktust er fyrir Shopaholic-bækur sínar, hefur greinst með skætt krabbamein í heila. 18.4.2024 08:55
Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson tók í gær sæti í stjórn UN Women á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Hann kemur inn í stjórn í stað Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, sem hverfur úr stjórn eftir fjögurra ára stjórnarsetu. 18.4.2024 07:40
Vantrauststillagan felld Alþingismenn tókust um vantrauststillögu þingflokka Flokks fólksins og Pírata á ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar í kvöld. Tillagan var felld að loknum löngum umræðum. Greiddu allir viðstaddir þingmenn stjórnarflokkanna atkvæði gegn tillögunni og allir viðstaddir þingmenn stjórnarandstöðunnar með. 17.4.2024 18:13
Tekur við stöðu forstjóra Securitas Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri Securitas. Hann hefur verið í hlutverki forstjóra frá því að Ómar Svavarsson lét af störfum síðastliðinn febrúar en var áður fjármálastjóri félagsins. 17.4.2024 16:15
Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Tilnefningar til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar, vegna ljóðabóka útgefinna árið, 2023 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Sex bækur eru tilnefndar að þessu sinni. 17.4.2024 16:01
Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR ÁTVR hefur lagt blessun sína yfir uppfært útlit bjórs úr smiðju Brewdog sem væntanlegur er í vínbúðir á næstu vikum þar sem límmiða hefur verið límt yfir teiknaðan fugl. Á límmiðanum stendur „Ritskoðað af ÁTVR“, en ríkisfyrirtækið hafði áður hafnað að setja bjórinn í sölu þar sem varan væri talin höfða sérstaklega til barna eða ungmenna. 17.4.2024 07:01
Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Kristjana Sunna Erludóttir hefur verið ráðin sem deildarstjóri þjónustu og ráðgjafar hjá Advania og Ingibjörg Edda Snorradóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra hugbúnaðarþróunar eftir sex ára starf sem forritari hjá fyrirtækinu. Stöðurnar eru á sviði Skólalausna og rafrænna viðskipta. 16.4.2024 11:50
„Taktlaust og ósmekklegt“ „Okkur þykir það einstaklega slæm skilaboð að það að axla ábyrgð sé að komast upp með það að fara ekki eftir neinum reglum sem um störf þessara aðila gilda eins og þau hafa sýnt og sannað. Við teljum það ekki vera að axla ábyrgð á ganga á milli ráðuneyta í stað þess að stíga til hliðar og viðurkenna að það að maður hafi gerst brotlegur í starfi.“ 16.4.2024 11:40