Víkingur sótti sigur í snjókomunni í Sandgerði Víkingar úr Reykjavík eru komnir í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir sigur á Reyni Sandgerði suður með sjó í dag. 1.5.2018 14:50
Bikarmeistararnir hefja titilvörnina á dramatík í Eyjum Bikarmeistarar ÍBV tryggðu sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag með dramatískum sigri á liði Einherja í Vestmannaeyjum þar sem þrjú mörk voru skoruð á síðustu mínútum leiksins. 1.5.2018 14:28
Lallana og Mane í hópnum gegn Roma Adam Lallana og Sadio Mane eru í leikmannahóp Liverpool sem mætir Roma í seinni undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. 1.5.2018 14:00
Samkomulag um að Mancini taki við Ítölum Roberto Mancini og ítalska knattspyrnusambandið hafa komist að samkomulagi um að Mancini taki við sem nýr landsliðsþjálfari karlalandsliðs Ítalíu. Heimildarmenn Sky á Ítalíu staðfesta þetta. 1.5.2018 13:15
Blaðamenn völdu Salah bestan Egyptinn Mohamed Salah heldur áfram að raða inn verðlaunum en hann var útnefndur leikmaður ársins af blaðamönnum á Englandi. Hann hafði þar betur gegn Belganum Kevin de Bruyne. 1.5.2018 12:30
Murty rekinn frá Rangers │ Gerrard kynntur á næstu dögum? Graeme Murty hefur verið vikið úr starfi sem bráðabirgðastjóri skosta liðsins Glasgow Rangers eftir stórtap gegn erkifjendunum í Celtic um helgina. 1.5.2018 12:00
Aðgerð Arons gekk vel Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson segir aðgerðina sem hann gekkst undir í gær hafa gengið vel. 1.5.2018 11:42
Arnar Sveinn lánaður í 3. deildina Arnar Sveinn Geirsson hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Vals til KH. 1.5.2018 11:30
Snævi þakinn Hásteinsvöllur │Spilað í hádeginu 32-liða úrslit Mjólkursbikars karla hófust í gær með tveimur leikjum. Fjórtán leikir eiga að fara fram í dag og sá fyrsti er leikur ÍBV og Einherja klukkan 12:30. 1.5.2018 11:05
Rozier og Tatum sáu um 76ers í fyrsta leik Boston Celtics tók forystuna í undanúrslitarimmunni gegn Philadelphia 76ers í austurdeild bandarísku NBA deildarinnar í körfubolta. 1.5.2018 10:54