Íþróttafréttamaður

Andri Broddason

Andri Broddason er íþróttafréttamaður á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ó­sann­gjörn bar­átta um Gullskóinn

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu kláraðist í gær og er hörð barátta um Gullskóinn. Baráttan er þó ekki sanngjörn þar sem leikmenn í neðri hluta deildarinnar spila færri leiki en liðin í efri hlutanum og fá þá sumir leikmenn fleiri leiki til að skora mörk.

Treyjur Liverpool taka breytingum

Liverpool hefur gert fimm ára samning við flugfélagið Turkish Airlines um að merki félagsins verði framan á treyjum Liverpool á næsta tímabili. Turkish Airlines mun koma í stað Standard Chartered sem mun vera á treyjum Liverpool út tímabilið.

Ruglaðist á mót­herja og komst að því í miðju við­tali

Carlos Alcaraz tryggði sig í 8-liða úrslit Opna bandaríska risamótsins í tennis á sunnudaginn en hann var ekki búinn að kynna sér dráttinn í mótinu. Hann ruglaðist á mótherja og fékk að vita hverjum hann gæti mætt í 8-liða úrslitum í viðtali eftir sigurinn í 16-liða úrslitum.

Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar

Edu Gaspar gekk í raðir Nottingham Forest sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu á síðasta tímabili en virðist hafa verið bolað úr starfi. Hann kom til félagsins frá Arsenal þar sem hann var íþróttastjóri félagsins.

Ætlar að taka sér pásu út tíma­bilið

Ólympíumeistarinn í langstökki, Tara Davis-Woodhall, hefur ákveðið að keppa ekki meira á þessu tímabili eftir árekstur. Hún fékk slæman heilahristing sem hefur haldið henni frá æfingum.

Enn ein von­brigðin fyrir Hadjar

Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst.

Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik

Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar heiðruðu Ratko Mladic sem er einnig þekktur sem „Slátrari Bosníu“ (e. Butcher of Bosnia). Hann lést fyrir tveim vikum í fangelsi í Hollandi þar sem hann sat inni eftir að hafa verið dæmdur fyrir þjóðarmorð.

Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton

Ferrari átti ekki góðan kappakstur á heimavelli liðsins á Ítalíu um helgina en liðið fékk aðeins átta stig. Ökumennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton slá á sögusagnir um að samband þeirra sé orðið þungt.

Sjá meira