
Veiðitölur LV: Prýðileg veiði í Miðá í Dölum
Veiði er nú lokið í flestum ám. Nýjar veiðitölur sýna að veiðin í Miðá í Dölum og Jöklu var með ágætum í sumar en veiðin hefur aldrei verið lélegri í Laxá í Kjós og Víðidalsá.
Allt um stang- og skotveiði á Íslandi. Vetur, sumar, vor og haust.
Veiði er nú lokið í flestum ám. Nýjar veiðitölur sýna að veiðin í Miðá í Dölum og Jöklu var með ágætum í sumar en veiðin hefur aldrei verið lélegri í Laxá í Kjós og Víðidalsá.
Þorsteinn Þorsteinsson frá Skálpastöðum segir ljóst af þeim veiðitölum sem komnar séu í hús að laxveiðisumarið sé "afspyrnu slakt."
Áfram heldur gæsaveiðin að vera góð í Gunnarsholti að því er segir á agn.is, söluvef Lax-ár. Nálega allir sem þangað hafi komið í haust hafi veitt upp í kvótann sem er tólf gæsir á byssu.
Langá, Hítará, Straumar, Norðurá og Leirvogsá eru á meðal þeirra veiðisvæða sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur nú sett í forúthlutun fyrir sumarið 2013.
"Það má ekki gerast, enn eitt árið, að þið farið ekki að tilskipun Veiðimálastofnunarr, " segir í pistli á vef Lax-ár sem heldur áfram harðri gagnrýni á netaveiðibændur í Hvítá.
Alls veiddust 673 laxar í Stóru-Laxá í Hreppum á tímabilinu sem lauk núna um mánaðarmótin. Segist nýr leigutaki árinnar afar ánægður.
Laxveiðitímabilið er ekki búið því veitt er í þó nokkrum ám langt út október mánuð. Eru þetta allt hafbeitarár með töluverðri laxavon.
Sumarið 1858 kom til Íslands skoskur maður að nafni James Ritchie. Fátt er að finna um þennan Skota í íslenskum heimildum annað en að hann var eigandi niðursuðuverksmiðju í Peterhead á Skotlandi og að hann settist að í Borgarnesi með það að markmiði að sjóða niður íslenskan lax.
Guðrún Una Jónsdóttir, formaður Stangaveiðifélags Akureyrar, hefur verið að reyna fyrir sér í Hörgánni að undanförnu. Á sunnudaginn tók hjartað stóran kipp er hún landaði glæsilegum sjóbirtingi en síður gekk í fyrradag enda æði napurt við árbakkann þá.
Galdurinn við sjóbirtingsveiðina í Varmá við Hveragerði er að veiða andstreymis með púpum.
Sogsmenn veiddu 14 laxa á svæði IV í Stóru-Laxá í gær. Um síðustu helgi rifu þeir 61 lax upp á svæði I og II. Þeir félagar loka ánni um helgina.
Árnefnd Langár á Mýrum lokaði ánni í gær. Veiði sumarsins er 1.049 laxar. Fast að 50 laxar að auki veiddust á tilraunasvæðinu ofan Ármótafljóts og heildarveiðin því nálægt 1.100 löxum.
Setbergsá er hreinræktuð smálaxaá, og er allur aflinn frá fjórum upp í sex pund. Að sama skapi má segja að leitun sé að hærra hlutfalli maðkaveiddra laxa á landsvísu, enda hentar áin mun betur fyrir þá sem brúka það agn. Af 53 löxum veiddust einvörðungu tveir á flugu - aðrir féllu fyrir möðkum veiðimanna," segir á vef SVFR
Úr Bíldsfelli eru skráðir 135 laxar, úr Ásgarði eru skráðir til bókar 49 laxar, Alviðra er með 18 slíka og Þrastalundur aðeins 4 laxa í bók.
Á milli 60–70% af þeim laxi sem veiddur er í netin eru hinn verðmæti vorlax sem stendur undir meginhrygningunni í rússneskum ám á þessum slóðum, að sögn Orra. Bent hefur verið á að veiðar Norðmanna séu brot á 66. grein Hafréttarsáttmála Sameinuðu Þjóðanna, en alþjóðleg nefnd vísindamanna hefur staðfest að laxinn sem um ræðir sé af rússneskum uppruna.
Tveir áhugamenn um bryggjuveiði hafa sent stjórn Faxaflóahafna tillögur um það hvernig bæta megi aðstöðu til slíkra veiða í gömlu höfninni í Reykjavík.
"Þetta var alveg ótrúlegur túr," segir Valdimar Reynisson sem var í Fossálum um miðjan mánuðinn. Hollið náði tíu góðum fiskum í metlitlu vatni í ánni.
Eins sýnir tölfræðin að veiða/sleppa fyrirkomulagið í Skotlandi er að ná sífellt betri fótfestu en 73% af öllum laxi var sleppt árið 2011; 91% af vorveiddum laxi og 70% af öllum sjóbirtingi var sleppt.
“Síðastliðna viku hefi ég verið að athuga Fnjóská með hinum enska veiðimanni, Mr. Fortescue, sem leigir hana. Áin hefir verið alfriðuð í 6 ár og auk þess dálítill partur af sjónum báðum megin [við ósa]. Þá var einnig í upphafi friðunartímabilsins gerður fiskvegur upp yfir Laufásfossa. Árangurinn af þessari aðgerð á ánni og 6 ára friðun, er alveg stórkostlegur og mörgum sinnum meiri en bjartsýnustu kunnáttumenn þorðu að vona.”
Ekki náðist að fella þrettán hreindýr af útgefnum veiðikvóta í sumar, en veiðum lauk í gær. Kvótinn var 1.009 dýr. Helsta ástæðan er sú að veiðimenn skiluðu leyfum sínum þar sem þeir höfðu ekki þreytt skotpróf, sem er skilyrði fyrir veiðum. Þetta olli því að mörgum leyfum þurfti að úthluta aftur sem gekk illa.
Áætlaður veiðistofn nú er um 390.000 fuglar, en talið að veiðiþol sé 34.000 fuglar. Umhverfisstofnun leggur áherslu á að farið verði að ráðgjöf Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða veiði upp á 34.000 fugla, sem geri um sex rjúpur á veiðimann, miðað við þann fjölda veiðimanna sem að jafnaði fari til rjúpnaveiða. Telur Umhverfisstofnun einnig rétt að viðhalda sölubanni á rjúpu.