Ólympíuleikar

Ólympíuleikar

Fréttir af Ólympíuleikum, bæði sumar- og vetrarleikum.

Fréttamynd

„Besta tap ævi minnar“

Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær.

Sport
Fréttamynd

Skandall í krullu og ljót orð látin falla

„Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls.

Sport
Fréttamynd

Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“

Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni.

Sport
Fréttamynd

Fínasta fyrri ferð Jóns Eriks

Jón Erik Sigurðsson mætti til leiks á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun er hann tók þátt í risasvigi í Stelvio brekkunni í Ölpunum.

Sport
Fréttamynd

Dagur gaf vel í eftir ró­lega byrjun

Dagur Benediktsson lauk 10 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á 24 mínútum og 18,1 sekúndu og var í 69. sæti. Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullið eftir mikla samkeppni.

Sport
Fréttamynd

Lá hreyfingar­laus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið

Hin sautján ára gamla Choi Ga-on kom í veg fyrir að bandaríska goðsögnin Chloe Kim skráði sig á spjöld sögunnar í snjóbrettaheiminum þegar sú suðurkóreska hristi af sér byltu í byrjun og vann gull í hálfpípu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina.

Sport
Fréttamynd

Gómaður á ÓL eftir sex­tán ár á flótta

Maður á fimmtugsaldri frá Slóvakíu ætlaði sér að horfa á íshokkíleik Slóvakíu og Finnlands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann hafði verið sextán ár á flótta.

Sport
Fréttamynd

„Klúðraði þessu svo­lítið vel í dag“

„Ég var bara brjáluð,“ segir Kristrún Guðnadóttir um það hvernig var að átta sig á því að hún hefði gert afar dýrkeypt mistök á Vetrarólympíuleikunum í dag. Röng beygja þýddi að hún var dæmd úr keppni, í 10 kílómetra skíðagöngunni.

Sport
Fréttamynd

Krist­rún dæmd úr leik en Svíar áttu sviðið

Skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir keppti í seinni grein sinni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð. Hún var hins vegar dæmd úr keppni.

Sport
Fréttamynd

Hent út af ÓL vegna hjálmsins

Mikil sorg ríkti við sleðabrautirnar í Cortina á Vetrarólympíuleikunum í dag, þegar tilkynnt var að búið væri að taka keppnisleyfið af hinum úkraínska Vladyslav Heraskevych. Hann hafði neitað að skipta út hjálmi sínum sem sýndi fórnarlömb stríðsins í heimalandinu.

Sport
Fréttamynd

Sturla bað allt liðið af­sökunar í kvöld­verði

Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu.

Sport
Fréttamynd

Vonn á bata­vegi eftir þriðju að­gerðina

Lindsey Vonn sendi fylgjendum sínum kveðju á samfélagsmiðlum og segist vera á batavegi en hún hefur gengist undir þrjár aðgerðir eftir að hafa fótbrotnað á Vetrarólympíuleikunum.

Sport
Fréttamynd

Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag

Bandaríski rapparinn og skemmtikrafturinn Snoop Dogg er staddur á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu þar sem hann er „aðalpeppari“ bandaríska landsliðsins, svokallaður heiðursþjálfari liðsins.

Sport