

Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir

Sjálfstraust leikmanna vex stöðugt
Arsene Wenger segir að 2-0 sigur Arsenal á Porto í kvöld beri þess merki að sjálfstraust leikmanna sé að vaxa til muna og að liðið sé nú að finna taktinn eftir fremur dapra byrjun á leiktíðinni.

Mark Saha var frábært
Sir Alex Ferguson sá aðeins það jákvæða við leik sinna manna í sigrinum á Benfica í meistaradeildinni í kvöld og hrósaði frábæru einstaklingsframtaki Louis Saha sem á endanum réði úrslitum í leiknum.

Einstaklingsframtak Saha tryggði United sigur
Franski framherjinn Louis Saha skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United náði fram hefndum á Benfica og kom sér í góð mál í riðli sínum með 1-0 sigri. Enska liðið var fjarri sínu besta í leiknum, en Cristiano Ronaldo var maður vallarins og í raun eini maðurinn sem spilaði vel í kvöld.

Real í góðum málum
Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeildinni. Ekkert mark hefur verið skorað í leik Benfica og Manchester United, þar sem gestirnir frá Englandi hafa verið hreint út sagt lélegir. Betur gengur hjá Arsenal, þar sem fyrirliðinn Thierry Henry hefur komið liðinu yfir gegn Porto á Emirates vellinum. Þá hafa þeir Ruud van Nistelrooy, Jose Antonio Reyes og Raul komið Real Madrid í 3-0 gegn Dynamo frá Kænugarði.

CSKA lagði Hamburg
Rússneska liðið CSKA frá Moskvu lagði þýska liðið Hamburg 1-0 í kvöld í fyrsta leiknum sem fram fór í meistaradeildinni. Það var Brasilíumaðurinn Dudu sem skoraði sigurmark CSKA á 59. mínútu og varamaðurinn Benjamin Lauth fékk að líta rauða spjaldið í liði Hamburg aðeins 6 mínútum eftir að honum var skipt inn á. Hamburg hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í G-riðlinum, þar sem liðið leikur ásamt CSKA, Arsenal og Porto.

Tvær breytingar hjá United
Sir Alex Ferguson hefur gert tvær breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Reading fyrir einvígið gegn Benfica í Portúgal sem er að hefjast í beinni á Sýn nú klukkan 18:45. John O´Shea og Louis Saha koma inn í liðið á ný og þá er Alan Smith á varamannabekknum og gæti spilað sinn fyrsta leik síðan hann fótbrotnaði illa á síðustu leiktíð.

Á von á stórleik frá Rooney og Ronaldo
Alex Ferguson á von á stórleik frá þeim Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney í meistaradeildinni í kvöld þegar Manchester United sækir Benfica heim, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30.

Ég verð að dreifa álaginu
Rafa Benitez hefur nú enn á ný þurft að bera hendur fyrir höfuð sér vegna sífelldra breytinga sem hann gerir á byrjunarliði Liverpool, en ljóst þykir að hann muni stokka upp í hópnum fyrir leikinn gegn Galatasaray annað kvöld og verður það 93. leikurinn í röð þar sem Liverpool teflir fram breyttu byrjunarliði.

Benfica - Man Utd í beinni á Sýn í kvöld
Það verður mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld eins og venjulega þegar spilað er í meistaradeild Evrópu. Aðalleikur kvöldsins verður viðureign Benfica og Manchester United sem sýndur er á Sýn, en auk þess verða leikir Arsenal - Porto og Real Madrid og Dynamo Kiev sýndir beint á aukarásum Sýnar klukkan 18:30.

Meistaradeildin er óklárað verkefni
Arsene Wenger segir hungur í velgengni í meistaradeildinni svo mikið að það yrði ekki nóg fyrir sig að vinna keppnina þrjú ár í röð. Arsenal krækti í silfurverðlaun á síðustu leiktíð, en það er fjarri því að nægja Wenger. Arsenal mætir Porto í keppninni í kvöld og verður leikurinn í beinni á Sýn Extra klukkan 18:30.

Ósigurinn í París hjálpar okkur
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir þá staðreynd að lið hans var aðeins 13 mínútum frá því að sigra Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, hjálpi liðinu nú til að ná enn betri árangri í keppninni. Viljinn til að ná árangri gegn líkunum hafi meðal annars fengið Thierry Henry til að vera áfram hjá félaginu.

Aðgangur að öllum mörkum í farsímanum
Og Vodafone hefur nú aukið þjónustu sína við knattspyrnuáhugamenn til muna en nú geta farsímanotendur séð öll mörkin úr meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni í gegn um netið í farsímum sínum.

Tapið var mér að kenna
Danski landsliðsmaðurinn Thomas Gravesen hefur viðurkennt að eiga stóran þátt í tapi Glasgow Celtic gegn Manchester United í meistaradeildinni í gær, en segja má að tvö marka United á Old Trafford hafi komið í kjölfar lélegra sendinga frá Gravesen.

Lyon tók okkur í kennslustund
Fabio Capello reyndi ekki að beina athygli frá þeirri staðreynd að hans menn í Real Madrid voru yfirspilaðir af franska liðinu Lyon í meistaradeildinni í kvöld og sagði heimamenn hafa verið betri á öllum sviðum leiksins, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Við vorum nokkuð heppnir
Arsene Wenger viðurkenndi að hans menn hefðu verið nokkuð heppnir í kvöld þegar þeir báru sigurorð af Hamburg 2-1 á útivelli í meistaradeildinni. Hamburg missti markvörð sinn af velli með rautt spjald strax í upphafi leiks og sagði Wenger atvikið hafa minnt sig mikið á úrslitaleikinn í meistaradeildinni í vor.

Carlos spilaði 100. leikinn
Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos hjá Real Madrid vill eflaust gleyma leiknum gegn Lyon í meistaradeildinni í kvöld sem fyrst, en hann náði þó merkum áfanga í leiknum. Carlos spilaði í kvöld sinn 100. leik í meistaradeildinni, en leikjahæstur frá stofnum deildarinnar er félagi hans Raul með 102 leiki.

Hrósaði baráttuglöðum löndum sínum
Sir Alex Ferguson var að vonum ánægður með góðan sigur sinna manna í Manchester United á Celtic í kvöld, en tók sér tíma til að hrósa löndum sínum fyrir að gefast aldrei upp. United vann leikinn verðskuldað 3-2, en skoska liðið stóð sig þó með mikilli prýði.

United vann baráttuna um Bretland
Manchester United hafði betur í baráttunni um Bretland í meistaradeildinni í kvöld þegar liðið lagði Glasgow Celtic 3-2 í æsilegum leik á Old Trafford. Louis Saha skoraði tvö mörk fyrir United og Ole Gunnar Solskjær skoraði sigurmark liðsins í upphafi síðari hálfleiks. Arsenal vann sigur á Hamburg á útivelli eftir að vera manni fleiri allan leikinn og Real Madrid steinlá gegn Lyon í Frakklandi.

Solskjær kemur United yfir
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær kom Manchester United yfir 3-2 í byrjun síðari hálfleiks gegn Celtic á Old Trafford. Louis Saha átti fast skot að markinu sem var varið, en Solskjær fylgdi vel eftir. Arsenal er komið í 2-0 gegn Hamburg, þar sem Tomas Rosicky skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið með frábærum þrumufleyg. Lyon er að yfirspila Real Madrid gjörsamlega og hefur enn yfir 2-0.

Frábær fyrri hálfleikur á Old Trafford
Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Mesta fjörið hefur klárlega verið á Old Trafford, þar sem staðan í leik heimamanna Manchester United og Celtic er jöfn 2-2 eftir stórkostlegan fyrri hálfleik - allt í beinni á Sýn.
Saha jafnar fyrir United
Franski sóknarmaðurinn Louis Saha er búinn að jafna metin fyrir Manchester United gegn Celtic á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Markvörður Celtic var sakaður um að hafa brugðið Ryan Giggs í teignum og Lubos Michel dæmdi vítaspyrnu, en í endursýningu mátti sjá að dómurinn var út í hött. Leikurinn er engu að síður í hæsta gæðaflokki og hefur United sótt án afláts síðan liðið lenti undir.
Celtic komið yfir á Old Trafford
Hollendingurinn Jan Vennegoor of Hesselink hefur komið skoska liðinu Glasgow Celtic yfir gegn Manchester United á Old Trafford í leik liðanna í meistaradeildinni sem sýndur er beint á Sýn. Markið kom eftir skyndisókn skoska liðsins og ekki laust við að Rio Ferdinand hafi farið illa að ráði sínu í vörninni þegar hann lét Hollendinginn leika á sig.

Arsenal komið yfir gegn Hamburg
Nú er aðeins liðinn um stundarfjórðungur af leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu, en þar er strax farið að draga til tíðinda. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Hamburg í Þýskalandi, þar sem markverði þýska liðsins var vikið af leikvelli eftir brot á Robin Van Persie og Gilberto skoraði mark Arsenal úr víti í kjölfarið. Fred hefur komið Lyon yfir gegn Real Madrid og Inzaghi hefur komið AC Milan yfir gegn AEK. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér neðar á síðunni.

Byrjunarlið Arsenal gegn Hamburg
Leikur Hamburg og Arsenal í meistaradeild Evrópu er nú hafinn á Sýn Extra 2 og byrjunarlið Arsenal má sjá hér fyrir neðan. Fyrirliði enska liðsins, Thierry Henry, er ekki með liðinu í Þýskalandi í kvöld vegna meiðsla.

Man Utd - Celtic að hefjast
"Baráttan um Bretland" eins og leikur Manchester United og Celtic hefur verið kallaður, er nú senn að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney koma inn í lið Manchester United eftir leikbann.

Veislan heldur áfram í kvöld
Knattspyrnuveislan sem fylgir meistaradeild Evrópu heldur áfram á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, þegar áskrifendur geta valið um þrjá stórleiki til að fylgjast með í beinni útsendingu. "Baráttan um Bretland" - leikur Manchester United og Celtic, verður sýndur beint á Sýn. Leikur Lyon og Real Madrid er sýndur beint á Sýn Extra og þá verður slagur Hamburg og Arsenal í beinni á Sýn Extra 2. Útsending frá öllum leikjunum hefst klukkan 18:30.

Líkir Gravesen við Kaka
Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic, gat ekki farið leynt með hrifningu sína á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik með skoska liðinu um helgina.

Verðum að vera þolinmóðir í kvöld
Arsene Wenger segir að þolinmæði verði lykillinn að góðum úrslitum í kvöld þegar hans menn fá það erfiða verkefni að sækja þýska liðið Hamburg heim í meistaradeild Evrópu, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30.

Ánægður með markalaust jafntefli
Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru.

Ánægður með sigur á sterku liði Bremen
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var mjög ánægður með sigur sinna manna á Werder Bremen í meistaradeildinni í kvöld, en viðurkenndi að þýska liðið hefði verið betri aðilinn á köflum.