Fullnaðarsigur Eflingar í félagatalsdeilu við sáttasemjara Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Þetta staðfestir lögmaður Eflingar í samtali við fréttastofu. Innlent 13. febrúar 2023 15:30
Er ekki tímabært að tengja? Deila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur harðnað og engar viðræður hafa verið milli aðilanna um nokkurt skeið. Raunar hefur það einkennt þessa deilu frá byrjun að engar alvöru viðræður hafa farið fram við Eflingu að hálfu SA-manna. Skoðun 13. febrúar 2023 15:01
Efling boðar til atkvæðagreiðslu um verkfall tæplega 1700 manns Samninganefnd Eflingar samþykkti einróma á fundi sínum í gær 12. febrúar þrjár verkfallsboðanir. Þær ná til starfsfólks á hótelum, öryggisfyrirtækjum og ræstingarfyrirtækja. Innlent 13. febrúar 2023 12:38
Löng bið eftir bensíni hjá Costco Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni. Neytendur 13. febrúar 2023 11:28
Að ýta kerfinu fram yfir þolmörk þess Það eru blikur á lofti. Á örfáum árum hefur stóraukin harka færst í samskipti ólíkra samfélagshópa. Háværu raddirnar hafa hlotið mestan hljómgrunn á meðan skynsemisraddirnar hafa verið kaffærðar. Skoðun 13. febrúar 2023 10:01
Munu ekki ónáða gesti og öryggisverðir fylgi ekki verkfallsvörðum Forsvarsmenn Eflingar og Íslandshótela hafa náð samkomulagi um framkvæmd verkfallsvörslu á hótelum Íslandshótela. Innlent 13. febrúar 2023 09:46
Bensínið gæti klárast á fimmtudag Forstjóri Skeljungs segir að bensín bensínstöðva gæti klárast strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum. Neytendur 12. febrúar 2023 19:28
Segir verkföll Eflingar vera tilgangslaus Enn og aftur kom til orðaskipta milli lögreglu og verkfallsvarða Eflingar við Íslandshótel í gær. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir engan tilgang með verkföllum Eflingar. Hann bíður átekta eftir úrskurði Landsréttar, sem væntanlegur er á allra næstu dögum - á ögurstundu í kjaradeilunni. Innlent 12. febrúar 2023 13:13
Styður yfirlýsingu miðstjórnar ASÍ Forseti ASÍ segir havaríið við ráðherrabústaðinn í gær ekki tilefni yfirlýsingar sem miðstjórn ASÍ gaf út í gær þar sem orðræðan í kjaradeilu SA og Eflingar er gagnrýnd. Hann segist styðja baráttu Eflingar og er tilbúinn að sinna verkfallsvörslu þegar kallið kemur. Innlent 11. febrúar 2023 13:23
„Mun að sjálfsögðu þiggja gott boð um að mæta í verkfallsvörslu“ Kristján Þórður Snæbjarnason, forseti Alþýðusambands Íslands segist styðja Eflingu í kjarabaráttunni og hyggst mæta til verkfallsvörslu. Innlent 11. febrúar 2023 08:13
„Grátklökk millistéttarályktun“ Alþýðusambandsins Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar skýtur föstum skotum á Kristján Þórð Snæbjarnarsson forseta ASÍ og krefst þess að miðstjórn sambandsins skýri nánar ályktun sem birt var í dag. Hún segir réttast að forsetinn mætti einhvern tímann til verkfallsvörslu. Innlent 10. febrúar 2023 19:16
Tveir frá Eflingu fái að mæta á hótelin og frá því verði ekki hvikað Forstjóri Íslandshótela segir eftirlit Eflingar á hótelum í höfuðborginni stundum líkjast mótmælaaðgerðum og valdi starfsfólki og gestum vanlíðan og óöryggi. Í ljósi þess verði ekki fleiri en tveimur verkfallsvörðum Eflingar hleypt inn á hótelin. Innlent 10. febrúar 2023 16:32
Bauluðu á Bjarna en fengu fund með Katrínu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, varð við beiðni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, um fund í Ráðherrabústaðnum, eftir að Eflingarfélagar mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund. Baulað var á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, þegar hann hélt af fundi ríkisstjórnarinnar. Sólveig Anna sagði að Bjarni hefði ekki þorað að mæta félagsmönnum Eflingar og flúið undan þeum. Innlent 10. febrúar 2023 11:27
Liðsmenn Eflingar heftu för ráðherra í Tjarnargötu Félagsmenn Eflingar á Íslandshótelum, sem hafa verið í verkfalli síðan á þriðjudag, eru við mótmæli við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu. Hópurinn hittist á baráttufundi í Iðnó klukkan 10 áður en hann hélt að ráðherrabústaðnum. Innlent 10. febrúar 2023 10:57
Ber láglaunafólk ábyrgð á stöðugleikanum? Í þessari viku hófust verkföll á Íslandi. Og í þessari viku hækkuðu vextir, sem eru ekkert annað en verð á peningum. Matarkarfan okkar verður dýrari með hverjum mánuðinum. Verðbólgan er í tæpum 10% en með henni rýrnar virði peninganna okkar. Skoðun 10. febrúar 2023 08:30
Að berjast eða barma sér Allt frá því að kjarasamningar Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins voru kynntir í desember á síðasta ári hefur Efling haldið því fram að þessir samningar væru mistök. Skoðun 10. febrúar 2023 08:00
Fráleitt að lögmenn SA komi að verkfallsbrotum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vísar því á bug að samtökin hafi aðstoðað stjórnendur Íslandshótela við að brjóta lög, en formaður Eflingar sakaði lögmenn samtakana í dag um að hjálpa yfirmönnum og eigendum að stunda verkfallsbrot. Innlent 9. febrúar 2023 21:00
“These Kinds of Things Just Don’t Happen in Iceland” A quick look at the culture of exploitation of immigrants. Skoðun 9. febrúar 2023 16:31
Harðar ásakanir á víxl: Meint verkfallsbrot og Sólveig sögð áreita gesti Formaður Eflingar sakar lögmenn Samtaka atvinnulífsins um að hjálpa eigendum og yfirmönnum á Íslandshótelum við að stunda verkfallsbrot. Íslandshótel segja að um tilhæfulausar ásakanir sé að ræða og að gestir séu áreittir af forystufólki Eflingar. Innlent 9. febrúar 2023 15:41
Fjármálaráðherra segir Seðlabankann hafa vanmetið verðbólguna Fjármálaráðherra segir Íslendinga vera að taka út lífskjör sem ekki væru langtíma forsendur fyrir sem birtist meðal annars í mikilli einkaneyslu. Seðlabankinn sitji sennilega uppi með að hafa hækkað vexti of hægt og vanmetið verðbólguna of oft. Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina stinga höfðinu í sandinn og hún bjóði ekki upp á neinar aðgerðir gegn verðbólgunni. Innlent 9. febrúar 2023 12:08
„Leitin að sökudólgnum mun litlu skila fyrir landsmenn“ Leitin að sökudólgnum mun litlu skila fyrir landsmenn og árið 2023 væri betur nýtt til að þeir kjarasamningar sem framundan eru og þeir skammtímasamningar sem menn hafa þegar gert leggi grunn að nýju skeiði stöðugleika. Innlent 9. febrúar 2023 06:23
Verkalýðsfélög, eingöngu fyrir útvalda Í sérstakri bókun við nýjan kjarasamning VR og LÍV við Félag atvinnurekenda segir að félögin ætli að sameinast um að setja þrýsting á stjórnvöld til að afnema og lækka tolla í þágu neytenda. Í bókuninni er jafnframt fullyrt að slík aðgerð sé ein skilvirkasta leiðin til að bæta hag launþega. Skoðun 8. febrúar 2023 22:01
Óskiljanlegar boltalíkingar ekki Seðlabankanum sæmandi Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gerir athugasemdir við röksemdir Seðlabankans fyrir vaxtahækkunum. Það standist ekki skoðun að nýgerðir kjarasamningar séu ástæða hækkunar, þar sem seðlabankastjóri hafi lýst ánægju með þá fyrir skömmu. Viðskipti innlent 8. febrúar 2023 19:43
Seðlabankastjóri segir aðila vinnumarkaðarins hafa skorað sjálfsmark Seðlabankastjóri segir höfuðstól óverðtryggðra lána hafa lækkað um tíu prósent á einu ári þrátt fyrir vaxtahækkanir. Aðilar vinnumarkaðarins hafi skorað sjálfsmark með nýgerðum kjarasamningum. Jafnvel þurfi að hækka vexti meira í næsta mánuði vegna krafna um enn meiri launahækkanir en þegar hafi verið samið um. Viðskipti 8. febrúar 2023 19:20
Tilraun til að leiða deilur við Eflingu í jörð Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun ríkissáttasemjara, um að falla frá aðfararbeiðni til að fá kjörskrá Eflingar afhenta, tilraun til að leiða deilur embættisins við Eflingu í jörð. Innlent 8. febrúar 2023 18:22
Fellur frá aðfararbeiðni eftir fund með lögmanni Eflingar Ríkissáttasemjari hefur fallið frá aðfararbeiðni sinni til sýslumanns um að fá kjörskrá félagsmanna Eflingar afhenta. Þetta er niðurstaðan eftir fund lögmanns Eflingar með sáttasemjara síðdegis í dag. Efling hefur lofað að afhenda félagaskrána staðfesti Landsréttur úrskurð úr héraði um lögmæti miðlunartillögu sáttasemjara. Innlent 8. febrúar 2023 16:55
„Þetta er vítahringur sem maður óttast að sé hafinn“ Forseti ASÍ óttast að vítahringur vaxtahækkana sé hafinn. Miðstjórn sambandsins hafnar því að skýringuna á hárri verðbólgu sé að finna í kjarasamningum á almenna vinnumarkaðnum. Innlent 8. febrúar 2023 16:10
Segja verkfallsbrot framin á Grand Hótel Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir verkfallsbrot hafa verið framin á Grand Hóteli í dag. Hún segir að verið sé að mæta þeim sem sinna verkfallsvörslu með fordæmalausri hörku. Innlent 8. febrúar 2023 16:00
Munu ekki semja nema laun milli markaða verði jöfnuð Kennarasamband Íslands, BSRB og BHM hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna um ákveðna meginþætti en kjarasamningar renna út í mars. Helsta verkefnið er að jafna laun á milli markaða að sögn formanns BSRB og verður ekki samið án þess að það náist. Formaður Kennarasambandsins tekur undir og reiknar með að viðræðurnar hefjist af krafti fljótlega. Innlent 8. febrúar 2023 16:00
Saka Eflingu um hótanir og hleypa verkfallsvörðum ekki inn Forsvarsmenn Íslandshótela tóku þá ákvörðun nú eftir hádegi í dag að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín. Í tilkynningu frá Íslandshótelum segir að ástæðan sé sú að verkfallsverðir tóku að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem sannarlega séu ekki í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum. Innlent 8. febrúar 2023 14:53