Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Ferð Icelandair til Zürich í Sviss var aflýst í morgun þar sem ekki tókst að manna hana flugmönnum. Flugfélagið hefur nú þurft að aflýsa tuttugu brottförum frá Keflavík síðasta mánuðinn vegna þess að flugmenn fást ekki til þess að selja frídaga sína. Viðskipti innlent 1. júní 2026 08:53
Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Stjórn Brims hf. hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi hf.. Kaupverðið er 20 milljarðar króna sem er minna en kauptilboð Brims sem tilkynnt var um í september. Þá hefur Brim jafnframt tilkynnt um sölu á hlutum sínum í tveimur fyrirtækjum. Viðskipti innlent 1. júní 2026 06:31
Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð. Innlent 31. maí 2026 20:30
Í stormi reynir á leiðtogana Það eru blikur á lofti hjá Icelandair. Olíuverð hefur hækkað, samkeppnin á alþjóðlegum flugmarkaði harðnar og óleystar kjaradeilur við bæði flugmenn og flugvirkja eru nú komnar inn á borð ríkissáttasemjara. Á sama tíma hafa aflýsingar og tafir vegna áhafnaskorts sýnt hversu viðkvæmt rekstrarumhverfið er orðið þegar sumarvertíðin er að hefjast. Skoðun 31. maí 2026 12:00
Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Búið er að aflýsa sex flugferðum Icelandair í dag vegna áhafnaskorts í flugstjórnarklefa. Það staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 31. maí 2026 11:01
Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn. Innlent 30. maí 2026 22:20
Íslenskir fjárfestar verða fyrir tugmilljarða höggi við gengishrun Oculis Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll í kjölfarið um helming á Bandaríkjamarkaði en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni. Innherji 30. maí 2026 16:12
Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. Innlent 29. maí 2026 22:53
Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins. Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. Innlent 29. maí 2026 20:11
Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Fundi samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara lauk í dag án þess að boðað væri til nýs fundar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara verður ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina. Viðskipti innlent 29. maí 2026 17:56
Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjaness vísaði frá meiðyrðamáli sem foreldrar Sólons Guðmundssonar heitins höfðuðu gegn Icelandair. Lögmaður fjölskyldunnar segir til skoðunar að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 29. maí 2026 14:25
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. Viðskipti innlent 29. maí 2026 13:37
Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Snörp en verðmæt loðnuvertíð hafði ekki aðeins góð áhrif á afkomu útgerðanna heldur gaf hún vel í aðra hönd skipverja um borð í skipum útgerðanna. Viðskipti innlent 29. maí 2026 12:14
Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag. Innlent 29. maí 2026 12:02
Kjölur selur allan hlut sinn í Reitum fyrir nærri fjóra milljarða Fjárfestingafélagið Kjölur, einn stærsti einkafjárfestirinn í Reitum, hefur losað um allan eignarhlut sinn fyrir um 3,9 milljarða króna en salan kemur í kjölfar þess að annar af eigendum félagsins dró framboð sitt til stjórnar til baka vegna óánægju með að fá ekki stuðning til formennsku. Innherji 29. maí 2026 10:21
Tangarhald á lífæð samfélagsins Deila Icelandair og flugmanna hefur ekki farið framhjá neinum. Hún snýst ekki aðeins um kjör flugmanna heldur stærra álitaefni: hvort fámennur hópur eigi að geta haft tangarhald á einni mikilvægustu lífæð íslensks samfélags. Skoðun 29. maí 2026 09:47
Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Hagnaður Ísfélagsins í Vestmannaeyjum nam 2,8 milljörðum króna fyrsta ársfjórðung 2026, sem er umtalsverður viðsnúningur miðað við sama tímabil síðasta ár. Stjórn félagsins hefur ákveðið að greiða hluthöfum út arð vegna síðasta rekstrarárs sem nemur samtals 2,1 milljörðum króna. Viðskipti innlent 28. maí 2026 21:09
Fá að kaupa Pei og Motus Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á kaup Símans á Greiðslumiðlun Íslands ehf., sem á og rekur greiðslulausnina Pei og innheimtufyrirtækið Motus. Viðskipti innlent 28. maí 2026 17:55
„Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Verðbólga hjaðnaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og mælist 5,1 prósent. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir innflutta verðbólgu vegna átaka við Persaflóa reynast erfiða. Viðskipti innlent 28. maí 2026 13:13
Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, segir vandamál Icelandair ekki aðeins felast í núverandi samningum við flugmenn heldur í grunnrekstri félagsins, flóknum flugflota og skorti á skýrri stefnu. Hann telur að félagið þurfi að einfalda reksturinn, selja einingar utan kjarnastarfsemi og nota andvirðið til að endurnýja flugflotann. Viðskipti innlent 28. maí 2026 11:17
„Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. Innherji 28. maí 2026 11:06
Fljúga til Færeyja árið um kring Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. Viðskipti innlent 28. maí 2026 10:46
Uppgjör Brims framar væntingum en horfur framundan sagðar „blendnar“ Þrátt fyrir samdrátt í bolfisksafla þá þýddi hátt afurðaverð að rekstrarhagnaður Brims á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem var talsvert yfir væntingum greinenda, var sá næstmesti í sögu félagsins. Hlutabréfaverð Brims er núna í hæstu hæðum en stjórnendur segja að horfur framundan séu „blendnar“. Innherji 27. maí 2026 14:52
Eik talið verulega undirverðlagt á markaði í nýrri greiningu Eik er talið verulega undirverðlagt á markaði samkvæmt nýútgefinni frumskýrslu og er fasteignafélagið metið á ríflega sextíu prósent hærra verði en núverandi markaðsgengi. Kaupin á fasteignasafni Festingar, sem eru sögð á hagstæðari verðmargfaldara en önnur sambærileg viðskipti á undanförnum árum, eru talin geta orðið mikilvægur drifkraftur vaxtar hjá félaginu á komandi árum. Innherji 27. maí 2026 14:46
Fundi frestað til morguns Fundi hjá Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur verið frestað til klukkan tíu í fyrramálið. Deilan virðist í nokkrum hnút og viðræður þokast lítið áfram að sögn sáttasemjara. Viðskipti innlent 27. maí 2026 14:24
Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu á mánudag ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips sem stendur enn. Eimskip segir það miður að ekki hafi náðst samningar og ekki liggi fyrir umfang tjóns af aðgerðum. Unnið hafi verið að því að lágmarka áhrif verkfallsins á viðskiptavini. Innlent 27. maí 2026 11:54
Þögull sem gröfin Ríkissáttasemjari er þögull sem gröfinn um framhaldið í dag þegar fulltrúar flugmanna og Icelandair funda vegna kjarasamningsviðræðna. Hann vill ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins. Innlent 27. maí 2026 10:10
Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn taka Icelandair „í gíslingu“ Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins. Innherji 27. maí 2026 09:38
Skipulagsbreytingar hjá Símanum Stjórn Símans hf. hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Eins og áður hefur verið upplýst er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi. Viðskipti innlent 27. maí 2026 08:59
Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Icelandair hefur beðið í nærri tvö ár eftir því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að nota Reykjavík sem varavöll fyrir nýjar Airbus-þotur félagsins. Í síðustu viku neyddist félagið til að skrá Glasgow sem varavöll fyrir Airbus sem þýddi að þotan þurfti að bera fjórum tonnum meira af eldsneyti yfir hafið. Innlent 26. maí 2026 22:12