
Bjarni gengur fram af fólki með klíkuráðningum
Bjarni Benediktsson var varla sestur í stól utanríkisráðherra þegar hann tók til við að skipa samherjum sínum á mikilvæga pósta í utanríkisþjónustunni. Ýmsir hafa þetta til marks um að Bjarni sé á útleið úr pólitík, jafnvel að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum og það sé verið að hafa það úr húsinu sem nýtilegt er.