
NPA-aðstoðin orðin hindrun
Aðalmeðferð fór fram í máli Freyju Haraldsdóttur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti í gær. Í málinu er tekist á um rétt Freyju til að sitja námskeið þar sem hæfni umsækjenda um fósturforeldri er metin.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Aðalmeðferð fór fram í máli Freyju Haraldsdóttur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti í gær. Í málinu er tekist á um rétt Freyju til að sitja námskeið þar sem hæfni umsækjenda um fósturforeldri er metin.
Már Guðmundsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri sem gerði samninginn umtalaða við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits hjá bankanum, segir samninginn alls ekki óeðlilegan.
Kona hefur verið dæmd í sex mánaða fangelsi, þar af eru þrír mánuðir skilorðsbundnir, fyrir að hafa ráðist á sambýlismann sinn vopnuð tveimur eldhúshnífum í júlí árið 2017. Konan sagðist iðrast gjörða sinna mjög.
Engilbert Runólfsson sem hefur verið umsvifamikill verktaki á Akranesi hefur verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti. Félag sem hann hefur verið í forsvari fyrir hyggur meðal annars á milljarða framkvæmdir við hótel og verslunarkjarna á Akranesi.
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot. Var hann ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum um þúsund ljósmyndir og annað eins af myndskeiðum sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir nauðgun, frelsissviptingu og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa föstudagskvöld í júní 2018 og inn í nóttina brotið á fyrrverandi kærustu sinni.
Dómari taldi ákvörðun lögreglumanns um að þvinga ölvaðan ökumanna út af veginum í fyrra eðlilega miðað við aðstæður. Lögreglumaðurinn var sýknaður af ákæru um brot í starfi.
Lögreglumaðurinn Bjarni Ólafur Magnússon var sýknaður af ákæru um brot í starfi í morgun.
Lögreglumaður hefur verið sýknaður af ákæru um brot í starfi.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu saksóknara í umfangsmiklu fíkniefnamáli þess efnis að sakborningar gæfu skýrslu hver fyrir sig við aðalmeðferð málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í morgun. Saksóknari gerði kröfuna til að koma í veg fyrir að ákærðu gætu samræmt frásögn sína.
Tveir karlmenn á Austfjörðum hafa verið dæmdir í tíu mánaða fangelsi, skilorðsbundið að stærstum hluta, fyrir ræktun á kannabisplöntum, sölu og dreifingu á fíkniefnum og peningaþvætti.
Dómsmálaráðherra lagði fram lagafrumvarp um bætur vegna ærumeiðinga á Alþingi í gær.
Fasteignafélagið FM-hús hefur verið dæmt til að greiða Húsfélaginu Norðurbakka 1-3 í Hafnarfirði 27, 3 milljónir í skaðabætur fyrir að hafa ekki staðið við samning um lokafrágang á sameign fjöleignarhússins. Húsfélagið krafðist þess að fá greiddar 43 milljónir króna.
Verður áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að taka kærustuna hálstaki svo hún missti meðvitund.
Seðlabanki Íslands byggði stefnu sína gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanns Fréttablaðsins, m.a. á því að "sanngjarnt væri og eðlilegt“ að fjárhagsmálefni Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, færu leynt.
Hollenska félagið This is City Attractions hefur stefnt Esju Attractions móðurfélagi FlyOver Iceland sem býður upp á sýndarflugferð yfir stórbrotna náttúru Íslands.
Hagsmunir almennings af því að efni námssamnings Seðlabanka Íslands við lykilstarfsmann hans, verði gert opinbert eru ríkari en hagsmunir bankans og starfsmannsins af því að efni hans fari leynt.
Sakfellt hefur verið í sextán málum af tuttugu og einu þar sem ákært var fyrir nauðgun síðan Landsréttur tók til starfa þann 1. janúar í fyrra
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag skaðabótamálum Samtaka sparifjáreigenda frá dómi, sem þau höfðuðu vegna hruns Kaupþings og annarra mála því tengdu. Málin höfðuðu samtökin gegn Hreiðari Má Sigurðssyni og Ólafi Ólafssyni og kröfðu þau hvorn þeirra um 900 milljónir króna í skaðabætur.
Landsréttur hefur staðfest þriggja og hálfs árs fangelsi yfir karlmanni fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega gegn barnabarni sínu. Brotin voru framin er drengurinn var níu til tólf ára á árunum 2010 til 2013.
Íslenska ríkið hafnaði 64 milljóna bótakröfu Annþórs Kristjáns Karlssonar.
Lögmaður Ara Brynjólfssonar, blaðamanns Fréttablaðsins, mun mögulega fara fram á það í dag að Seðlabankinn afhendi Ara gögn um starfslokasamning Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans.
Seðlabanki Íslands var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur til að afhenda Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, upplýsingar um starfslokasamning sem Már Guðmundsson, þáverandi Seðlabankastjóri, gerði við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans.
Dómur verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins.
Segir Svein Andra í nauðvörn og vilji snúa vörn í sókn með vafasömum yfirlýsingum.
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær yfir Árna Gils Hjaltasyni. Árni var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Málið hefur lengi dvalið í dómskerfinu og hefur í tvígang fallið dómur yfir Árna, fyrst árið 2017. Í fyrstu atrennu ómerkti Hæstiréttur hins vegar dóm héraðsdóms og vísaði málinu aftur heim í hérað.
Sveinn Andri Sveinsson mun endurgreiða hundrað milljónir en þar með er ekki öll sagan sögð.
Karlmaður nokkur hefur stigið fram og lýst yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Borgarfirði. Um er að ræða umfangsmikið mál sem komið er til kasta dómstóla.
Hæstaréttarlögmanninum Sveini Andra Sveinssyni hefur verið gert að greiða þrotabúi félagsins EK1923 um 100 milljónir króna.
Árni Gils Hjaltason var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til manndráps.