Innlent

Niðurskurður til löggæslumála verður um 5%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir ekki hægt að halda uppi sömu þjónustu með minni fjárveitingum. Mynd/ Anton.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir ekki hægt að halda uppi sömu þjónustu með minni fjárveitingum. Mynd/ Anton.
Niðurskurður á fjárframlögum til löggæslu á næsta ári verður minni en gert hafði verið ráð fyrir, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Hún segir að nú sé gert ráð fyrir að niðurskurðurinn verði í kringum 5% en hann hafi verið í kringum 8% á þessu ári.

Árskýrsla Ríkislögreglustjóra var birt í gær. Þar kemur fram að þrátt fyrir að brotum í vissum brotaflokkum, til dæmis þjófnuðum og auðgunarbrotum, hafi fjölgað á undanförnum árum, hafi framlög til löggæslumála minnkað. „Í rauninni er það bara þannig að þegar að fjárveitingar minnka að þá minnkar þjónustan að sama skapi. Það er ekki hægt að halda úti sama þjónustustigi fyrir minni peninga," segir Ragna. Hún segir að það sem að sé hvað mest áberandi sé til dæmis það að akstur hafi minnkað. „Og minni akstur lögreglu þýðir einfaldlega minni löggæsla í víðfeðmum umdæmum, þar sem mikils aksturs er þörf," segir Ragna.

Ragna segir að það sé gott að fá þessa samantekt frá Ríkislögreglustjóra því að það hjálpi til við ákvarðanatöku. Þetta hjálpi löggjafanum og stjórnvöldum að taka ákvarðanir um fjárveitingar. Þá nefnir Ragna að búið sé að leggja til ákveðnar skipulagsbreytingar á lögreglunni til þess að hægt sé að nýta þá peninga sem fara til löggæslu betur.

Aðspurð segir Ragna að það hafi ekki verið mistök að auka fjárframlög til embættis sérstaks saksóknara þótt skera hafi þurft niður framlög til almennrar löggæslu á sama tíma. „Þetta er þannig að allur ríkisrekstur þarf að þola niðurskurð. Það er heilbrigðiskerfið, velferðarkerfið og allt. Í rauninni er það þannig að það þurfa allir að taka á sig lækkaðar fjárheimildir en síðan koma svona forgangsverkefni eins og sérstakur saksóknari," segir Ragna. Í því tilfelli hafi einfaldlega verið ákveðið að í stað þess að veita lægri upphæð í lengri tíma hafi verið ákveðið að veita hærri upphæð í styttri tíma. Um sé að ræða fimm ára áætlun og í stað þess að dreifa fjárveitingunum hafi þeim verið safna saman á þennan hátt. „Þannig að ég myndi nú ekki segja að það sé rangt að gera það enda er nauðsynlegt að sú rannsókn fari fram," segir Ragna.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×