Reykjavíkurhöfn fyllist af skipum

Örtröð er í gömlu Vesturhöfninni í Reykjavík og bíða mörg skip þess úti á sundum að komast inn. Þetta eru fiskiskip í eigu útgerðarfélaga innan LÍÚ og margir bátar í Landssambandi smábátaeigenda. Koma þeirra til Reykjavíkur er þáttur í svonefndum samstöðufundi á Austurvelli klukkan fjögur í dag, en að fundi loknum halda skipin beint á veiðar. Töluvert af smábátum er líka komið inn í höfnina og starfsmaður, sem er á vaktinni segist aldrei hafa séð annan eins fjölda á 33 ára starfsferli sínum hjá höfninni.

3772
03:31

Vinsælt í flokknum Fréttir