Starfsáætlun Alþingis verður tekin úr sambandi að loknum eldhúsdegi á morgun
Starfsáætlun Alþingis verður tekin úr sambandi að loknum eldhúsdegi á morgun og verða þingfundir boðaðir jafnóðum. Munu því þingstörfin dragast inn í sumarið. Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis skoraði í morgun á þingmenn Miðflokksins að ljúka umræðu um þingsályktunartillögu um þriðja orkupakkann svo tillagan gæti gengið til atkvæða.