Flugáætlun Icelandair dregst mikið saman
Icelandair gerir ráð fyrir að flugáætlun félagsins muni dragast saman um að minnsta kosti 25% yfir sumartímann. Nú þegar er áætlun félagsins komin undir 10% af áætlun sem gefin var út fyrir yfirstandandi tímabil. Lausafjárstaða félagsins er að nálgast viðmiðunarmörk.