Páskaeggin að klárast

Það fer hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru við það að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaups og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld. Staðan er þessi þrátt fyrir að framleiðendur hafi lagt kapp á að hafa úrvalið sem mest og best, enda virðist metsala í páskaeggjum í ár.

141
00:25

Vinsælt í flokknum Fréttir