Árin þegar samkeppni ríkti í innanlandsflugi
Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. Þetta var á mesta blómaskeiði innanlandsflugsins, sem fjallað er um í þætti Flugþjóðarinnar um innanlandsflotann á Sýn+. Hér er sjö mínútna kafli.