Gefið í botn í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli
Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ kynnast áhorfendur áskorunum í innanlandsfluginu. Við fylgjum fjögurra manna áhöfn Dash 8 Q400-vélar Icelandair í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar og í flugtakinu sitjum við í stjórnklefanum. Meðan við fljúgum norður fræðumst við um þær flugvélartegundir sem borið hafa uppi innanlandsflugið en einnig Færeyja- og Grænlandsflugið. Hér má sjá upphafsmínútur þáttarins.