Fjögur ár frá allsherjarinnrás Rússa

Fjögur ár eru í dag liðin frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu en átökin eru þau mannskæðustu í Evrópu frá lokum seinni heimstyrjaldar. Víglínan hefur lítið breyst undanfarið, hún er um tólf hundruð kílómetrar - eða álíka löng og þjóðvegur eitt á Íslandi. Þá er um fimmtungur landsins nú á valdi Rússa. Bandalag hinna viljugu fundaði í Úkraínu í dag. Á blaðamannafundi eftir fundinn sagði Vólódómír Selenskí Úkraínuforseti meðal annars að hann vilji að Úkraína fái flýtileið inn í Evrópusambandið. Úkraínumenn á Íslandi söfnuðust saman á Kænugarðstorgi við Túngötu í miðbænum.

2
07:03

Vinsælt í flokknum Fréttir