Þrír ákærðir fyrir manndráp
Fimm hafa verið ákærðir í tengslum við manndrápið á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, sem lést eftir að hann var numinn á brott af heimili sínu í Þorlákshöfn 11. mars síðastliðinn. Fram kemur í ákæru að hann hafi verið beittur hrottafengnu ofbeldi í fimm klukkustundir áður en hann lést.