Óvenju mörg útköll hjá Landhelgisgæslunni

Þyrla Landhelgisgæslunnar var þrisvar sinnum kölluð út í dag ýmist vegna vélsleða- eða fjórhjólaslysa. Í morgun flutti þyrlan slasaðan mann frá Langjökli og á Landspítalann eftir fjórhjólaslys og nú síðdegis fór þyrlan aðra ferð á svipaðar slóðir vegna manns sem lenti í vélsleðaslysi. Þegar þyrlan lenti í Reykjavík fór hún rakleiðis norður í land til að sækja þann þriðja sem slasaðist í dag einnig á vélsleða.

20
00:42

Vinsælt í flokknum Fréttir