Fulham - Everton 1-2

Mark Fulham skráist sem sjálfsmark. Raul Jimenez átti skot sem var varið, en boltinn skoppaði svo í varnarmanninn Vitaliy Mykolenko og þaðan í netið. Mykolenko bætti upp fyrir óheppilega sjálfsmarkið með því að leggja upp jöfnunarmark Everton, fyrir Kiernan Dewsbury-Hall sem kláraði af krafti. Bernd Leno, markmaður Fulham, varð síðan skúrkur dagsins þegar hann ætlaði að kýla hornspyrnu burt undir lok leiks en setti boltann óvart í eigið net.

<span>16</span>
03:59

Vinsælt í flokknum Enski boltinn