Rithöfundar lepji dauðann úr skel
Rithöfundar eru í auknum mæli hættir að setja bækur sínar inn á streymisveituna Storytel vegna óánægju með kostnaðarskiptingu. Þetta segir formaður Rithöfundasambandsins sem lýsir því yfir fullum fetum að íslenskir rithöfundar lepji dauðann úr skel.