Fleiri
Nýr iPad á markað Smærra útgáfa iPad væntanleg í október. 4.7.2012 10:13 Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka sökum vaxandi spennu að nýju í samskiptum Vesturveldanna og Írans. 4.7.2012 06:36 Gjaldeyrisforði Danmerkur tólffalt stærri en forði Íslands Nettógjaldeyrisforði Danmerkur er nú orðinn um tólffalt stærri en brúttógjaldeyrisforði Íslands. 4.7.2012 06:30 Manchester United sækir um skráningu í Kauphöllina í New York Fótboltafélagið Manchester United hefur sótt um skráningu í Kauphöllina í New York. Stjórnendur félagsins vonast til að safna um 64 milljónum evra eða um 12.5 milljörðum króna með sölu á hlutabréfunum. 3.7.2012 23:06 Segja bresk yfirvöld hafa þrýst á um að lækka vaxtaálag Barclays Bob Diamond, sem sagði af sér sem forstjóri Barclays bankans í dag, hefur nú lagt fram skjöl, sem innihalda meðal annars samskipti milli starfsmanna Barclays og Seðlabanka Bretlands, Englandsbanka, frá árinu 2008 þar sem meðal annars er rætt um leiðir til þess að lækka vaxtaálag Barclays bankans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Barclays bankinn birti á vefsíðu bankans seinni partinn í dag. 3.7.2012 22:54 Hreinlætisvörufyrirtæki kærir Apple Enn á ný neyðist Apple til að standa í málaferlum í Kína. Nú hefur kínverskt fyrirtæki kært tæknirisann fyrir að hafa notað vörumerkið Snow Leopard í leyfisleysi. 3.7.2012 22:30 Miklar verðsveiflur á áli á síðustu tveimur árum Miklar sveiflur hafa verið á álverði undanfarin ár, en staðgreiðsluverð á markaði er nú 1.867 dalir á tonnið, eða sem nemur um 233 þúsund krónum miðað við núverandi gengi. Fyrir ári síðan fór verðið í 2.800 dali á tonnið og hefur það því lækkað um 30 prósent á einu ári. Undanfarna daga hefur það verið að þokast lítið eitt upp á við, samhliða hækkunum á olíu eftir skarpa lækkun. 3.7.2012 10:30 Bankastjóri Barclays segir af sér Bob Diamond bankastjóri Barclays bankans hefur sagt upp störfum og hættir hann strax hjá bankanum. 3.7.2012 07:47 GlaxoSmithKline greiðir 376 milljarða í sekt Bandaríska lyfjarisanum GlaxoSmithKline hefur verið gert að greiða þrjá milljarða dollara eða um 376 milljörðum króna í sekt í Bandaríkjunum í stærsta lyfjamisferlismáli sem upp hefur komið þar í landi. 3.7.2012 06:28 Paris Hilton vill stofna eigin hótelkeðju Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton hefur áhuga á að stofna sína eigin hótelkeðju og ganga þar með í fótspor langafa síns Conrad Hilton. 3.7.2012 10:12 Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað nokkuð í morgun eða um tæpt prósent hjá bæði Brent olíunni og bandarísku léttolíunni. 3.7.2012 09:48 Metsala á notuðum bílum í Danmörku Sala á notuðum bílum hefur aldrei verið meiri í sögunni í Danmörku. Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að á fyrstu fimm mánuðum ársins hafi um 217.000 notaðir bílar verið seldir í Danmörku eða að jafnaði 1.400 bílar á hverjum degi. 3.7.2012 06:39 David Cameron segir framferði Barclays manna hneyksli David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir framferði starfsmanna Barclays-bankans, og eftir atvikum annarra bankamanna, er varðar vaxtasvindl bankans vera hneyksli og tilkynnti um það í breska þinginu í dag að ítarleg rannsókn myndi fara fram á starfsháttum banka í landinu. 2.7.2012 16:11 Stjórnarformaðurinn yfirgefur Barclays Barclays bankinn staðfesti í morgun fréttir breska ríkisútvarpsins, BBC, um að stjórnarformaðurinn, Marcus Aguis, myndi láta af störfum. Ástæðan er sú að bankinn var á dögunum sektaður um það sem samsvarar 57 milljörðum íslenskra króna fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á stýrivexti með ólöglegum aðgerðum. Bob Diamond, framkvæmdastjóri Barclays, mun gefa skýrslu fyrir fjármálanefnd breska þingsins á miðvikudag vegna hneykslisins. Aguis mætir svo fyrir nefndina á fimmtudaginn. 2.7.2012 09:18 Olíuverðið gefur eftir í kjölfar gífurlegrar hækkunnar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur aðeins gefið eftir í morgun en það hækkaði gífurlega seinnipartinn á föstudag. 2.7.2012 07:00 Apple greiðir 7,5 milljarð króna Apple borgar 7,5 miljarð króna til að sætta mál í Kína um eignarétt á iPad vörumerkinu. 2.7.2012 11:08 Atvinnuleysi á evrusvæðinu eykst áfram Atvinnuleysi á evrusvæðinu heldur áfram að aukast. Atvinnleysið mældist 11,1% í maí samanborið við 11% í apríl og hefur aldrei verið meira í sögu evrusvæðisins. 2.7.2012 09:35 Sjá næstu 50 fréttir
Lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna áfram á neikvæðum horfum Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna sem Aaa en einkunnin er áfram á neikvæðum horfum. 11.7.2012 06:43
Arabískur milljarðamæringur kaupir Nottingham Forest Enska fótboltaliðið Nottingham Forest er komið í eigu arabíska milljarðamæringsins Fawaz Al Hasawi sem búsettur er í Kúwæt. Hasawi tilheyrir einni af auðugustu fjölskyldum landsins. 11.7.2012 06:42
Afsalar sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu Bob Diamond, fyrrverandi forstjóri breska bankans Barclays, mun þiggja 400 milljónir króna í laun fyrir árið. Hann mun hins vegar afsala sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu sem hann hafði áunnið sér fyrir störf sín í bankanum. Diamond sagði upp störfum hjá bankanum á dögunum vegna vaxtahneykslis sem skekið hefur Bretland. 10.7.2012 13:49
Olíuverkfallið í Noregi stöðvað með neyðarlögum Norska stjórnin greip til neyðarlaga seint í gærkvöldi til að stöðva verkfallið sem verið hefur meðal norskra olíustarfsmanna undanfarnar tvær vikur og koma í veg fyrir boðað verkbann olíuframleiðenda landsins sem átti að hefjast um miðnættið. 10.7.2012 06:30
Danske Bank dottinn af Fortune 500 listanum Danske Bank er dottinn af hinum virðingarmikla Fortune 500 lista sem nær yfir 500 stærstu fyrirtæki heimsins. 10.7.2012 09:40
Lítilsháttar tap á rekstri Alcoa á öðrum ársfjórðungi Bandaríski álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, skilaði lítilsháttar tapi, eða tveimur milljónum dollara, á öðrum ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var 322 milljóna dollara hagnaður af rekstri Alcoa á sama tímabili í fyrra. 10.7.2012 07:34
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað nokkuð á mörkuðum í morgun eftir að ljóst varð að norsk stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir að olíuframleiðsla landsins stöðvaðist seint í gærkvöldi. 10.7.2012 06:45
Spænskir bankar fá 30 milljarða evra fyrir mánaðarmótin Fjármálaráðherrar evrusvæðisins samþykktu í gærkvöldi að veita 30 milljörðum evra í neyðaraðstoð til spænskra banka fyrir næstu mánaðarmót. 10.7.2012 06:41
Norðmenn stöðva olíuframleiðslu í vikunni Olíu- og gasframleiðsla mun stöðvast í Noregi í vikunni. Ástæðan er sú að hart er deilt um eftirlaunamál og virðist lausn á deilunni ekki vera í sjónmáli. 9.7.2012 11:25
Vextir á spænskum skuldabréfum aftur yfir 7% markið Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til 10 ára fóru aftur yfir 7% markið í morgun. Vextir á samsvarandi ítölskum bréfum hækkuðu einnig og standa í 6,1% þessa stundina. 9.7.2012 10:01
Fleiri bankahneyksli vegna vaxtasvindls í farvatninu Fleiri bankar en Barclays munu liggja undir grun um vaxtasvindl. Í blaðinu The Guardian segir að hátt í 20 bankar blandist inn í rannsókn málsins sem unnin er af bæði breska og bandaríska fjármálaeftirlitinu. 9.7.2012 09:01
Niðursveifla á mörkuðum Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Nikkei vísitalan í Tókýó lækkaði um 1,4% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 1,7%. 9.7.2012 06:58
Roubini telur að Finnar yfirgefi evruna á undan Grikkjum Hagfræðingurinn Nouriel Roubini telur að Finnland muni yfirgefa evrusamstarfið á undan Grikklandi. 9.7.2012 06:29
Apple endurbætir nýjasta iPad Talið er að tæknirisinn Apple undirbúi nú endurbætta útgáfu af þriðju kynslóð iPad spjaldtölvunnar sem nýlega kom á markað. Notendur hafa margir kvartað yfir því að tækið hitni afar mikið og nú leitast Apple við að lækka hitamyndunina. 7.7.2012 22:00
Amazon þróar snjallsíma Talið er að vefverslunarrisinn Amazon sé nú að þróa sinn eigin snjallsíma. Fyrirtækið, sem lengst af seldi rafbækur, og það með góðum árangri, hefur á síðustu árum aukið umsvif sín verulega á raftækjamarkaðinum með vörum eins og Kindle lesbrettinu og Kindle Fire spjaldtölvunni. 7.7.2012 10:48
Einkennilegasti dúett allra tíma? - Warren Buffett og Jon Bon Jovi Einkennilegasti dúett í tónlistar- og viðskiptasögunni hefur mögulega verið myndaður. Það gerðist á árlegri ráðstefnu Forbes tímaritsins þar sem kastljósinu er beint að líknarstarfsemi og mannúðarmálum. Þá tóku fjárfestirinn Warren Buffett, sem almennt er álitinn meðal virtustu fjárfesta heimsins, og rokksöngvarinn Jon Bon Jovi, sem mörgum finnst skemmtilegur tónlistarmaður, lagið á blaðamannafundi. 7.7.2012 10:05
Umfang leikmannaviðskipta minna nú en í fyrra Knattspyrnufélög á heimsvísu hafa dregið mikið úr viðskiptum með leikmenn á undanförnum mánuðum miðað við árið á undan, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Tæplega 10 prósent færri leikmannasamningar vegna kaupa félaga á nýjum leikmönnum voru kláraðir á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við í fyrr. Upphæðirnar sem um ræðir féllu hins vegar um ríflega þriðjun, eða 34 prósent. Heildarupphæðin að baki 4.973 leikmannasamninga nam um 571 milljón dala, eða sem nemur ríflega 70 milljörðum króna, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC. Upplýsingarnar voru teknar saman í gegnum sérstakt kerfi á vegum FIFA, sem heldur utan um alla leikmannasamninga á heimsvísu, TMS (Transfer Matching System). 6.7.2012 10:12
Harrods hótel í bígerð víða um heiminn Eigandi hinnar þekktu Harrods stórverslunnar í London hefur í hyggju að opna hótel víða um heiminn undir nafni Harrods. 6.7.2012 09:22
Forseti Kýpur í pókerspili þar sem mikið er lagt undir Forseti Kýpur hefur att Evrópusambandinu og Rússlandi gengt hvort öðru í pókerspili þar sem mikið er lagt undir. 6.7.2012 06:58
Ítalska stjórnin samþykkir mikinn niðurskurð Ítalska stjórnin samþykkti í nótt umfangsmikinn niðurskurð á ríkisútgjöldum. Alls verður skorið niður um 26 milljarða evra, eða um 4.100 milljarða króna á næstu þremur ár. 6.7.2012 06:35
Engir innlánsvextir hjá Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu hefur lækkað stýrivexti úr 1% í 0,75% og hafa stýrivextir aldrei verið lægri. Með þessu er brugðist við þeim mikla slaka sem er á evrusvæðinu. Innlánsvextir hjá seðlabankinn lækkaði líka innlánsvexti úr 0,25% í 0. Þessi stýrivaxtalækkun er í samræmi við aðrar breytingar sem aðrir bankar hafa gert. 5.7.2012 13:35
Moody's segir horfurnar neikvæðar fyrir Barclays Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's breytti horfum í mati sínu á stöðu Barclays bankans í neikvæðar vegna áhrifa vaxtasvindlsins bankans á starfsemi hans. Bankinn samþykkti að greiða 290 milljónir punda í sekt, jafnvirði um 57 milljarða króna, vegna lögbrota sem framin voru í október 2008 þegar starfsmenn Barclays fölsuðu vaxtaálag á skuldir bankans með markaðsmisnotkun. 5.7.2012 11:20
Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi. 5.7.2012 09:57
Kreppan lækkar fæðingartíðini í 25 af 30 Vesturlöndum Efnahagskreppan í heiminum hefur haft þau áhrif að fæðingartíðni hefur lækkað í 25 af 30 vestrænum löndum þar á meðal Íslandi. 5.7.2012 07:19
Volkswagen kaupir Porsche að fullu Bílaframleiðandinn Volkswagen hefur ákveðið að kaupa rétt rúmlega 50% hlut í Porsche og eignast Porsche þar með að fullu. Árið 2009 keypti Volkswagen rúmlega 49% hlut í Porsche. 5.7.2012 06:55
Kínverjar byggja draugaborg í Angóla Draugaborgir eru þekkt fyrirbrigði í Kína en nú hafa Kínverjar byggt eina slíka í Angóla í Afríku. 5.7.2012 06:40
Daimond: Ég er sorgmæddur, vonsvikinn og reiður "Ég er sorgmæddur, vonsvikinn og reiður yfir því sem gerðist,“ sagði Bob Diamond, sem sagði upp störfum í gær sem forstjóri Barclays, frammi fyrir breskri þingnefnd í dag sem spurði hann ítarlega út í það hvernig stóð á því að bankinn falsaði vaxtakjör sín haustið 2008 með lögbrotum sem falla undir markaðsmisnotkun. Sérstaklega sagði hann að honum liði illa yfir upplýsingum um það, að miðlarar bankans hefðu rætt um það sín á milli að skála í kampavíni ef þeim tækist "vel upp“ í því að ná niður vöxtum bankans. 4.7.2012 16:51
Forsætisráðherra Frakklands ætlar að skattleggja auðuga Nú stendur til að leggja aukna skatta á auðugt fólk og stór fyrirtæki í Frakklandi. Reynt verður að verja hina efnaminni sagði forsætisráðherra Frakklands í þingræðu í gær. 4.7.2012 15:54
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka sökum vaxandi spennu að nýju í samskiptum Vesturveldanna og Írans. 4.7.2012 06:36
Gjaldeyrisforði Danmerkur tólffalt stærri en forði Íslands Nettógjaldeyrisforði Danmerkur er nú orðinn um tólffalt stærri en brúttógjaldeyrisforði Íslands. 4.7.2012 06:30
Manchester United sækir um skráningu í Kauphöllina í New York Fótboltafélagið Manchester United hefur sótt um skráningu í Kauphöllina í New York. Stjórnendur félagsins vonast til að safna um 64 milljónum evra eða um 12.5 milljörðum króna með sölu á hlutabréfunum. 3.7.2012 23:06
Segja bresk yfirvöld hafa þrýst á um að lækka vaxtaálag Barclays Bob Diamond, sem sagði af sér sem forstjóri Barclays bankans í dag, hefur nú lagt fram skjöl, sem innihalda meðal annars samskipti milli starfsmanna Barclays og Seðlabanka Bretlands, Englandsbanka, frá árinu 2008 þar sem meðal annars er rætt um leiðir til þess að lækka vaxtaálag Barclays bankans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Barclays bankinn birti á vefsíðu bankans seinni partinn í dag. 3.7.2012 22:54
Hreinlætisvörufyrirtæki kærir Apple Enn á ný neyðist Apple til að standa í málaferlum í Kína. Nú hefur kínverskt fyrirtæki kært tæknirisann fyrir að hafa notað vörumerkið Snow Leopard í leyfisleysi. 3.7.2012 22:30
Miklar verðsveiflur á áli á síðustu tveimur árum Miklar sveiflur hafa verið á álverði undanfarin ár, en staðgreiðsluverð á markaði er nú 1.867 dalir á tonnið, eða sem nemur um 233 þúsund krónum miðað við núverandi gengi. Fyrir ári síðan fór verðið í 2.800 dali á tonnið og hefur það því lækkað um 30 prósent á einu ári. Undanfarna daga hefur það verið að þokast lítið eitt upp á við, samhliða hækkunum á olíu eftir skarpa lækkun. 3.7.2012 10:30
Bankastjóri Barclays segir af sér Bob Diamond bankastjóri Barclays bankans hefur sagt upp störfum og hættir hann strax hjá bankanum. 3.7.2012 07:47
GlaxoSmithKline greiðir 376 milljarða í sekt Bandaríska lyfjarisanum GlaxoSmithKline hefur verið gert að greiða þrjá milljarða dollara eða um 376 milljörðum króna í sekt í Bandaríkjunum í stærsta lyfjamisferlismáli sem upp hefur komið þar í landi. 3.7.2012 06:28
Paris Hilton vill stofna eigin hótelkeðju Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton hefur áhuga á að stofna sína eigin hótelkeðju og ganga þar með í fótspor langafa síns Conrad Hilton. 3.7.2012 10:12
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað nokkuð í morgun eða um tæpt prósent hjá bæði Brent olíunni og bandarísku léttolíunni. 3.7.2012 09:48
Metsala á notuðum bílum í Danmörku Sala á notuðum bílum hefur aldrei verið meiri í sögunni í Danmörku. Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að á fyrstu fimm mánuðum ársins hafi um 217.000 notaðir bílar verið seldir í Danmörku eða að jafnaði 1.400 bílar á hverjum degi. 3.7.2012 06:39
David Cameron segir framferði Barclays manna hneyksli David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir framferði starfsmanna Barclays-bankans, og eftir atvikum annarra bankamanna, er varðar vaxtasvindl bankans vera hneyksli og tilkynnti um það í breska þinginu í dag að ítarleg rannsókn myndi fara fram á starfsháttum banka í landinu. 2.7.2012 16:11
Stjórnarformaðurinn yfirgefur Barclays Barclays bankinn staðfesti í morgun fréttir breska ríkisútvarpsins, BBC, um að stjórnarformaðurinn, Marcus Aguis, myndi láta af störfum. Ástæðan er sú að bankinn var á dögunum sektaður um það sem samsvarar 57 milljörðum íslenskra króna fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á stýrivexti með ólöglegum aðgerðum. Bob Diamond, framkvæmdastjóri Barclays, mun gefa skýrslu fyrir fjármálanefnd breska þingsins á miðvikudag vegna hneykslisins. Aguis mætir svo fyrir nefndina á fimmtudaginn. 2.7.2012 09:18
Olíuverðið gefur eftir í kjölfar gífurlegrar hækkunnar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur aðeins gefið eftir í morgun en það hækkaði gífurlega seinnipartinn á föstudag. 2.7.2012 07:00
Apple greiðir 7,5 milljarð króna Apple borgar 7,5 miljarð króna til að sætta mál í Kína um eignarétt á iPad vörumerkinu. 2.7.2012 11:08
Atvinnuleysi á evrusvæðinu eykst áfram Atvinnuleysi á evrusvæðinu heldur áfram að aukast. Atvinnleysið mældist 11,1% í maí samanborið við 11% í apríl og hefur aldrei verið meira í sögu evrusvæðisins. 2.7.2012 09:35