Fleiri fréttir

Hótar því að kaupa ekki ítölsk skuldabréf

Evrópski seðlabankinn varaði í dag við því að ef Ítalía mun ekki standa við gefin fyrirheit um umbætur í efnahagsmálum muni bankinn hætta að kaupa ítölsk skuldabréf. Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), sagði að áætlun ítalskra stjórnvalda um umbætur sé ekki trúverðug. Hún lofaði því að AGS myndi fylgjast sérstaklega með landinu í framtíðinni.

Telur líkur á að evrusamstarfið liðist í sundur

Framkvæmdastjóri eignastýringar bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs telur líkur á því að evrusamstarfið muni liðast í sundur. Jim O'Neill er framkvæmdastjóri eignastýringar Goldman Sachs. Hann sagði í viðtali við The Sunday Telegraph að þörf evrusvæðisins á auknum fjárhagslegum samruna ríkjanna sem að öllum líkindum verði leiddur af Þýskalandi og framkvæmdur af landlægum járnaga geri samstarfið minna spennandi fyrir önnur lönd.

Hættan á dómínó-áhrifum í Evrópu er raunveruleg

Hættan á því að skuldavandinn í Evrópu, einkum sunnanverðri álfunni, breytist í mun meiri vanda vegna dómó-áhrifa þvert á landamæri eru raunveruleg. Sérstaklega er staðan slæm á Ítalíu og það er ekki útlit fyrir að hún batni á skömmum tíma.

Stjórnarandstaðan vill ekki samsteypustjórn

Leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Grikklandi, Antonis Samaras, lýsti því yfir í dag að flokkur hans myndi ekki styðja eða taka þátt í myndun samsteypustjórnar með núverandi forsætisráðherra, Papandreu.

AGS með Ítalíu undir smásjánni

Stærsta ákvörðunin sem tekin var á leiðtogafundi 20 stærstu iðnríkja heims, G20, var að fela Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eins konar yfirumsjón með efnahagsvanda Ítalíu. Þetta kemur fram í fréttaskýringu breska ríkisútvarpsins BBC.

Sarkozy: Við munum berjast fyrir Evrópu

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagði að loknum G20 fundinum í Frakklandi, þar sem þjóðhöfðingjar 20 stærstu iðnríkja heims voru saman komnir, að þjóðir Evrópu myndu berjast fyrir álfunni og evrunni.

Grikkir reyna að mynda þjóðstjórn um björgunina

Papandreú lét undan þrýstingi í gær og hætti við þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunarpakka. Hóf viðræður við stjórnarandstöðuna um þjóðstjórn. Framtíð Grikklands innan evrusvæðisins hangir á bláþræði.

Mikil dramatík í Grikklandi

Mikil dramatík er nú í stjórnmálalífi Grikklands og er ekki ljóst enn hvernig landið liggur fyrir vantrausttillögu á ríkisstjórnina sem tekin verður fyrir á morgun.

Apple viðurkennir galla í iPhone 4S

Talsmenn tölvurisans Apple hafa virðurkennt að galli sé í nýjasta snjallsíma fyrirtækisins, iPhone 4S. Frá því að síminn fór í almenna sölu hafa notendur kvartað yfir stuttum líftíma rafhlöðunnar.

Barack Obama krefst aðgerða

Barack Obama forseti Bandaríkjanna krafðist þess í dag að þjóðhöfðingjar Evrópusambandsins gripu tafarlaust til aðgerða vegna skuldavanda á evrusvæðinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi Obama á G20 fundinum sem nú stendur yfir í Frakklandi.

Vinsældir Internet Explorer dala

Netvafri Microsoft, Internet Explorer, hefur verið sá vinsælasti í áraraðir. Núna, hins vegar, þarf þessi fyrrum konungur internetsins að sætta sig við helmings hlutdeild.

Kallaður á fund evruleiðtoga

Leiðtogar evruríkjanna kölluðu í gær á sinn fund í Cannes í Frakklandi Georg Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, til að rekja úr honum garnirnar varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hefur boðað. Leiðtogafundur G20-ríkjanna, tuttugu helstu efnahagsvelda heims, hefst í Cannes í dag.

Upplausn í ríkisstjórn Grikklands, neyðarfundur í hádeginu

Ríkisstjórn Grikklands er í upplausn eftir að nokkrir ráðherrar innan hennar hafa lýst sig mótfallna ákvörðun George Papandreou forsætisráðherra landsins að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um samkomulagið við Evrópusambandið um skuldavanda landsins.

Í tísku meðal fjárfesta að skortselja Kína

Helsta tískan í alþjóðlegum fjármálum þessa dagana er að skortselja Kína. Vogunarsjóðir og áhættufjárfestar telja að loftið sé byrjað að leka úr kínversku bólunni.

Bernanke: Ég skil mótmælin vel

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist í dag um margt skilja vel þá reiði og gremju sem endurspeglaðist ekki síst í Wall Street-mótmælunum (Occupy Wall Street). Þau hafa haft víðtæk áhrif um allan heim, en þó hvergi eins mikil og í Bandaríkjunum. Stuðningur við þau mælist mikill í könnunum, þvert á pólitískar línur.

Vilja koma böndum á fjármálastarfsemi

Leiðtogar helstu efnahagsvelda heims hittast í Cannes í Frakklandi á morgun og föstudag. Til stendur að samþykkja aðgerðir, sem eiga að halda aftur af bönkum og fjármálafyrirtækjum og draga verulega úr hættunni á að önnur eins kreppa endurtaki sig og sú sem hófst fyrir þremur árum og enn sér ekki fyrir endann á.

Óróleiki á mörkuðum heimsins

Ákvörðun Georgs Papandreús, forsætisráðherra Grikklands, um að vísa björgunarpakka evrusvæðisins til þjóðaratkvæðagreiðslu olli mikilli ókyrrð á mörkuðum heimsins í gær.

Dýrasti iPad veraldar

Gullsmiðurinn Stuart Hughes hefur að öllum líkindum framleitt dýrasta iPad í heimi. Spjaldtölva Hughes er þakin 12.5 karata demöntum og Apple merki tölvunnar er samansett úr 53 gimsteinum. Öll bakhlið tölvunnar er mynduð úr 24 karata gulli og er tvö kíló að þyngd.

Segja Papandreú varpa frá sér ábyrgðinni

Grikkir virðast margir líta svo á að Georg Papandreú forsætisráðherra ætli sér að kúga þjóðina til hlýðni með því að bera samkomulag stjórnarinnar við Evrópusambandið undir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Neyðarfundur hjá ríkisstjórn Grikklands

Ríkisstjórn George Papandreou forsætisráðherra Grikklands er nú á neyðarfundi vegna vaxandi pólitískrar óvissu í landinu í kjölfar tilkynningar um niðurskurðaráform stjórnvalda muni fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC.

Grikkland á leið út úr evrusamstarfinu?

Það er mat sérfræðinga á fjármálamarkaði að raunverulega hætta sé á því að Grikkir yfirgefi Evrópska myntbandalagið og þar með evrusamstarfið fari svo að björgunarpakki til handa Grikkjum verði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hrun á hlutabréfamörkuðum

Mikil lækkun hefur einkennt alla hlutabréfamarkaði í Evrópu það sem af er degi. Samkvæmt markaðsvakt Wall Street Journal hefur DAX vísitalan lækkað umk 5,6% og Stoxx 600 Europe, samræmdri vísitölu hlutabréfamarkaða í Evrópu, lækkað um 4,6%.

Gefur lítið fyrir gagnrýni Steve Jobs

Bill Gates, einn af stofnendum Microsoft, gefur lítið fyrir gagnrýni Steve Jobs í nýlegri ævisögu sem varpar ljósi á samstarf og samkeppni Gates og Jobs. Ævisagan var gefin út stuttu eftir að Jobs lést.

Pete Townshend ekki sáttur með iTunes

Pete Townshend, gítarleikari The Who, biðlaði til Apple um að nota úrræði sín og fjármuni til að hjálpa nýjum hljómsveitum að komast á framfæri. Hann sagði að margmiðlunarforritið iTunes væri einungis til þess gert að blóðga listamenn eins og stafræn vampíra.

Danske Bank ætlar að segja upp 2.000 starfsmönnum

Danske Bank, stærsti banki Danmerkur ætlar að segja upp um 2.000 starfsmönnum á tímabilinu 2012 til 2014. Með þessu er ætlunin að spara um 2 milljarða danskra króna eða rúm 42 milljarða króna í rekstrarkostnaði.

Þjóðaratkvæði um skuldamál

Nýgert samkomulag um skuldavanda Grikklands verður sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkomulagið felur í sér skuldaafskrift og nýtt lán, en niðurskurðaraðgerðirnar sem því fylgja eru illa séðar meðal almennings. Papandreú forsætisráðherra segist fullviss um að þjóðin muni taka rétta ákvörðun um framtíð landsins. Ekki er vitað hvenær kosið verður en líklegt er talið að það verði í næstu viku. - þj

Sjá næstu 50 fréttir