Fleiri fréttir

Norðmaður gerir stólpagrín að íslenskum bankamönnum

Háð og spott skín í gegnum grein norska fjármálasérfræðingsins Pål Ringholm um íslenska bankamenn sem hann hitti á fundum fyrir fimm árum. Raunar gerir Ringholm stólpagrín að Íslendingunum sem þá stjórnuðu stóru bönkunum þremur, Kaupþingi, Landsbankanum og Glitni.

Eggert er hættur við málsókn gegn Björgólfi

Eggert Magnússon fyrrum stjórnarformaður West Ham tekur til varna í blaðinu The Sun í dag fyrir stjórn sín á liðinu meðan það var í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Í viðtali við The Sun kemur m.a. fram að Eggert hafi neyðst til þess að hætta við málsókn sín gegn Björgólfi.

Kína réttir duglega úr kútnum

Hagvöxtur í Kína á síðasta ári fór fram úr björtustu vonum og er útlit fyrir að landið verði næst öflugasta efnahagsveldi jarðar innan tíðar.

FIH bankinn spáir fjöldadauða meðal danskra banka

Henrik Sjögren bankastjóri FIH bankans í Danmörku spáir því að dönskum bönkum og fjármálastofnunum muni fækka um helming á þessu ári. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Sjögren í blaðinu Jylands Posten í dag.

Stórbankinn Wells Fargo flaug í gegnum kreppuna

Bandaríski stórbankinn Wells Fargo fór á fljúgandi siglingu í gegnum fjármálakreppuna. Uppgjörið fyrir fjórða ársfjórðung í fyrra sýnir að árið 2009 var það besta í sögu bankans hvað hagnað og veltu varðar.

Bank of America tapaði 660 milljörðum

Stærsti banki Bandaríkjanna, Bank of America, tapaði 5,2 milljörðum dollara eða um 660 milljörðum kr. á síðasta ársfjórðungi í fyrra. Inni í þessu tapi eru endurgreiðslur á ríkisaðstoð þeirri sem bankinn hlaut á síðasta ári frá bandarískum stjórnvöldum.

Fyrrum klámkóngar stjórna nú West Ham liðinu

Viðskiptafélagarnir David Sullivan og David Gold sem nú hafa tekið við rekstri West Ham eiga fleira sameiginlegt en áhuga á fótbolta. Báðir hófu þeir feril sinn í klámiðnaðinum og þar myndaðist grundvöllurinn að auði þeirra síðar meir.

Actavis og EQT með í lokatilboðum í Ratiopharm

Actavis og sænski fjárfestingarsjóðurinn EQT eru meðal þriggja aðila sem fá að gera lokatilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Hinir tveir tilboðsgjafarnir verða bandaríski lyfjarisinn Pfizer og Teva frá Ísrael sem er stærsti samheitalyfjaframleiðandi heimsins.

Lengi lifi kreppan, kampavín á útsöluverðum

Fjármálakreppan hefur haft þau hliðaráhrif að verð á ekta kampavínum frá Frakklandi hefur hríðfallið og fást kampavínsflöskur nú á útsöluverðum í frönskum stórmörkuðum.

Sænsk kirkja tapaði 300 milljónum í kauphöllinni

Bein tengsl við almættið er greinilega engin trygging fyrir árangri í kauphallarviðskiptum. Það mátti söfnuðurinn við Karlstad kirkju í Svíþjóð upplifa eftir að kirkjusjóðurinn var notaður í hlutabréfaviðskiptum. Árangurinn var að sjóðurinn tapaði rúmlega 300 milljónum kr.

Sjaldgæf 1 penny mynt seld á rúmar 160 milljónir

Sjaldgæf bandarísk 1 penny mynt var nýlega seld á uppboði fyrir 1,3 milljónir dollara eða rúmar 160 milljónir kr. Myntin sem er frá árinu 1795 er ein af sjö slíkum sem vitað er um í heiminum.

Stjórn Cadbury´s samþykkti kauptilboð Kraft

Stjórn breski sælgætisframleiðandans Cadbury´s samþykkti seint í gærkvöldi kauptilboð bandarísku matvælasamsteypunnar Kraft. Kauptilboð Kraft hljóðar upp á 12 milljarða punda eða tæplega 2.500 milljarða kr.

Gold og Sullivan keyptu 50% hlut í West Ham

Það voru viðskiptafélagarnir David Gold og David Sullivan sem keyptu 50% hlut í enska úrvalsdeildarliðinu West Ham af Straumi. Fyrir hlutinn borguðu þeir rúmlega 50 milljónir punda og er liðið þar með verðmetið á 105 milljónir punda eða um 21.5 milljarða kr.

Microsoft: Ekki nota Internet Explorer 6

Microsoft hefur gefið út aðvörun til viðskiptavina sinna og almennings um að nota ekki vafrann Internet Explorer 6. Jafnframt er hvatt til þess að allir sem séu með þennan vafra í notun uppfæri strax útgáfur sínar til nýjustu gerðar vafrans, Internet Explorer 8.

Vanskilaskuldir Dana tvöfaldast milli ára

Vanskilaskuldir Dana tvöfölduðust milli áranna 2008 og 2009. Samkvæmt vanskilaskrá (RKI) Danmerkur námu þessar skuldir 5,1 milljarði danskra kr. árið 2008 en stóðu í 10,5 milljörðum danskra kr., eða rúmlega 250 milljörðum kr., um síðustu áramót.

Rússneskir auðmenn fela auðæfi sín í Danmörku

Danmörk er orðin að himnaríki fyrir miljarðamæringa, félög og aðra einstaklinga frá Rússlandi og öðrum fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna sálugu sem vilja leyna eignum sínum. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun viðskiptablaðsins Börsen í dag.

BBC: Nýr eigandi West Ham líklega tilkynntur í dag

Nýr eigandi að enska úrvalsdeildarliðinu West Ham verður líklega tilkynntur í dag. Þetta kemur fram á BBC sem segir að Tony Fernandes sé líklegastur til að taka við liðinu af Straumi.

Þýska stjórnvöld vara við Internet Explorer

Þýsk stjórnvöld vara netnotendur við því að nota Internet Explorer til að vafra um á veraldarvefnum og ráðleggja fólki að finna sér annan vafra. Viðvörunin var send út eftir að Microsoft viðurkenndi að forritið væri veiki hlekkurinn í nýlegum árásum á Google leitarsíðuna í Kína.

Hækkun hugsanleg á árinu

Seðlabanki Evrópu ákvað í vikunni að stýrivöxtum yrði haldið í einu prósentustigi. Stýrivextir voru færðir niður í eitt prósent í maí í fyrra og hafa þeir aldrei verið lægri.

Undirbúa rannsókn á starfsemi írsku bankanna

Stjórnvöld á Írlandi hafa ákveðið að láta undan þrýstingi frá stjórnarandstöðunni sem hefur krafist þess að opinber rannsókn fari fram á starfsemi írsku bankanna í aðdraganda fjármálakreppunnar. Undirbúningur er hafin að rannsókninni.

JPMorgan hnyklar vöðvana, hagnaðurinn fjórfaldast

Hagnaður bandaríska stórbankans JPMorgan á fjórða ársfjórðungi síðasta árs nam 3,3 milljörðum dollara eða um 412 milljarðar kr. Er þetta meir en fjórfaldur hagnaður miðað við sama tímabil árið 2008.

Joly skammar Norðmenn fyrir lítinn stuðning við Ísland

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, skammar Norðmenn í blaðagrein í dag fyrir að styðja ekki við bakið á Íslendingum í Icesave deilunni. Joly segir að Norðmenn beri sögulegar skyldur gagnvart Íslendingum og eigi að uppfylla þær.

Fjármálaeftirlit Dana bjargaði landinu frá íslensku bankahruni

Fjármálaeftirlit Danmerkur bjargaði landinu frá íslensku bankahruni og það gerðist þegar fyrir fimm árum. Þá setti eftirlitið Kaupþingi ströng skilyrði fyrir kaupunum á FIH bankanum. Meðal annars að ekki mætti blanda fjárstreymi frá FIH við íslensku bankastarfsemina.

Trichet heldur fast í 1% stýrivexti á evrusvæðinu

Jean-Claude Trichet bankastjóri Evrópska seðlabankans (ECB) tilkynnti í dag að stýrivextir bankans yrðu áfram 1%. Jafnframt fylgdi með að ECB sæi ekki ástæðu til að breyta vöxtunum á næstunni.

Fjárfestar á flótta frá Grikklandi

Skuldakreppa Grikkja hræðir alþjóðlega fjárfesta sem nú flýja umvörpum frá landinu. Aðrir krefjast hárra aukavaxta á lánum sínum til Grikkja eða kaupa á grískum ríkisskuldabréfum.

Sænsk stjórnvöld skamma Nordea fyrir bónusgreiðslur

Starfsmenn Nordea bankans eiga í vændum bónusgreiðslur upp á samtals um 50 milljarða kr. fyrir síðasta ár ef áform stjórnar bankans ná fram að ganga. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð hjá sænskum stjórnvöldum sem telja þessar greiðslur alltof háar og í engu samræmi við rekstur bankans.

Norski olíusjóðurinn þrefaldar eignir sínar í Svíþjóð

Frá því í mars á síðasta ári hefur norski olíusjóðurinn þrefaldað hlutafjáreignir sínar í Svíþjóð. Þær stóðu í 11 milljörðum sænskra kr. í mars en eru nú komnar í 30 milljarða sænskra kr. eða um 531 milljarð kr.

Massimo Cellino blandar sér í baráttuna um West Ham

Ítalinn Massimo Cellino er kominn fram sem fjórði áhugasami kaupandinn að enska útvalsdeildarliðinu West Ham. Cellino er núverandi forseti ítalska úrvalsdeildarliðsins Cagliari og þekkir Gianfranco Zola framkvæmdastjóra West Ham mjög vel.

Náin kynni við svissneska frankann kosta sitt

Fjölmargir Danir líkt og Íslendingar eru með stóran hluta af erlendum lánum sínum í svissneskum frönkum. Vefsíðan börsen.dk fjallar um málið undir fyrirsögninni að kynni við svissneska frankann kosti nú skildinginn. Gengi frankans hefur styrkst um fleiri prósent gagnvart dönsku krónunni á síðustu dögum.

Google félagar tekjuhæstu milljarðamæringarnir í fyrra

Samkvæmt samantekt Forbes tímaritsins högnuðust 25 efnuðustu bandarísku milljarðamæringarnir samtals um 81 milljarð dollara eða ríflega 10.000 milljarða kr. á árinu 2009. Eigendur og stofnendur Google toppa listann.

Google hótar að loka í Kína vegna ritskoðunnar

Netrisinn Google hefur hótað því að loka fyrir starfsemi sína í Kína sem er stærsti netmarkaður heimsins með 350 milljónir notenda. Ástæðan er ritskoðun kínverskra stjórnvalda á vefsíðum Google.

Enginn vill fyrirtæki Björgólfs

Enginn áhugi er fyrir því á meðal umsvifamestu farsímafyrirtækja Póllands að kaupa farsímafyrirtækið P4 yrði það boðið falt á árinu. Þetta kom fram í gær í fréttabréfi Wireless Federation, alþjóðlegum samtökum fyrirtækja í þráðlausum samskiptum.

Bankastjóri: Mömmu og pabba finnst launin mín of há

Stephen Hester, forstjóri Royal Bank of Scotland, viðurkenndi við yfirheyrslur hjá nefnd í breska þinginu í dag að jafnvel foreldrum hans þættu hann of hátt launaður. Hann heldur því hins vegar sjálfur fram að hann græði ekkert.

Hæstbjóðendur í West Ham féllu á tíma

Hópur fjárfesta undir nafninu Intermarket, sem taldir eru eiga hæsta tilboðið í enska úrvalsdeildarliðið West Ham, féllu á tíma með tilboð sitt. Samkvæmt frétt á vefsíðu Times áttu þeir að skila inn gögnum um fjárhagslega styrk sinn til kaupanna fyrir klukkan sex síðdegis í gær en gerðu það ekki.

Dönsk landbúnaðarbóla líklega komin á steypirinn

Danskur landbúnaður er nú orðinn svo skuldsettur að embættismenn stjórnvalda þar í landið segja stöðuna ekki geta gengið lengur. Þetta kemur fram í minnisatriðum sem Lene Espersen efnahags- og viðskiptaráðherra Danmerkur hefur tekið saman.

Engin hætta á þjóðargjaldþroti Grikkja, Ísland í ruslið

Greiningarfyrirtækið IHS Global Insight segir að engin hætta sé á þjóðargjaldþroti Grikkja, né annara evruþjóða á þessu ári. Hinsvegar á fyrirtækið von á að öll önnur matsfyrirtæki fylgi fordæmi Fitch Ratings og setji lánshæfiseinkunn Íslands í ruslflokk.

Reikna með 100% endurheimtum af umfram Icesavegreiðslum

Breska fjármálaráðuneytið reiknar með að endurheimta 100% af þeim fjármunum sem bresk stjórnvöld greiddu eigendum Icesave reikninga umfram trygginguna sem sett var á reikningana. Upphæðin sem hér um ræðir nemur um 500 milljón pundum eða rétt rúmlega 100 milljarða kr.

Sjá næstu 50 fréttir