Fleiri fréttir

Lækkun á Asíumörkuðum

Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og hefur staða hlutabréfavísitalna þar ekki verið lægri við lok viðskiptadags í tæpa þrjá mánuði. Afkomuviðvörun frá vinnuvélaframleiðandanum Komatsu vó þungt í lækkunum dagsins en á meðan hækkuðu bréf nokkurra annarra framleiðslufyrirtækja, meðal annars í lyfjageiranum.

Hagvöxtur í heiminum 2009 minni en spáð var

Hagvöxtur í heiminum á þessu ári verður mun minni en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáði í október, að hann yrði. Þá spáði hann 2,2 prósenta hagvexti en i nýrri spá spáir hann aðeins 1 til 1,5 prósenta hagvexti í ár. Það eru einkum Indland og Kína sem halda hagvextinum uppi en samdráttur er á Vesturlöndum.

Bankastjóri bjartsýnn á 2010: Óvissa á evrusvæðinu í ár

Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, sagði á fundi efnahags­nefndar Evrópuþingsins í síðustu viku að bankinn ætli að leggja sitt af mörkum svo aðstæður í hagkerfi evrulandanna versni ekki frekar. Hann studdi aðgerðir Breta og Frakka til að koma bönkum til bjargar og sagði útlit fyrir að ríkisstjórnir evrulandanna verði ráðandi aflið sem knýja muni hagkerfið áfram á meðan versti samdrátturinn gangi yfir. Bankastjórinn sagði mikla óvissu um þróun efnahagsmála á evru­svæðinu á þessu ári. Reikna megi með batamerkjum á næsta ári. - jab

AGS breytir spá um hagvöxt

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun á næstu dögum lækka hagvaxtaspá sína fyrir 2009 frá því sem birt var í nóvember. Þá var spáð að hagvöxtur í heiminu yrði 2,2% en í október hafði sjóðurinn spáð 3% hagvexti. Talið er að spáin lækki nú niður í 1 til 1,5% sem sérfræðingar segja umtalsverða breytingu. Sérfræðingur hjá sjóðnum segir útlit á alþjóðamörkuðum mjög dökkt.

Selja tvær þyrlur á 700 milljónir

Sportvöruverslunarkeðjan JJB Sports, þar sem Exista er stærsti hluthafinn, hefur ákveðið að selja tvær þyrlur sem voru í eigu fyrirtækisins fyrir um sjö hundruð milljónir. JJB Sports rær nú lífróður til að bjarga sér frá gjaldþroti.

Sala á Harley-Davidson mótorhjólum dregst saman um 58%

Harley-Davidson mótorhjólaframleiðandinn neyðist til að draga úr framleiðslu sinni og segja upp rúmlega 1100 starfsmönnum í kjölfar aðkomuviðvörunnar. Eftirspurn og sala á mótorhjólunum hefur dregist saman um 58% frá því 2007.

Forstjórinn tekur poka sinn

Kenneth Lewis, forstjóri Bank of America, umsvifamesta banka Bandaríkjanna, sparkaði í vikunni John Thain, forstjóra fjárfestingabankans Merrill Lynch.

Microsoft dregur saman seglin

Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft ætlar að segja upp fimm þúsund manns í hagræðingarskyni til að mæta minni eftirspurn eftir hugbúnaði og öðrum vörum fyrirtækisins. Þetta jafngildir fimm prósentum af starfsliði fyrirtækisins.

Kreppa í Bretlandi

Hagvöxtur dróst saman um 1,5 prósent á síðasta fjórðungi nýliðins árs, samkvæmt nýjustu tölum bresku hagstofunnar frá í gær. Þetta bætist við 0,6 prósenta samdrátt á þriðja fjórðungi og er því kreppa komin að ströndum landsins, samkvæmt helstu skilgreiningum.

Danskir bankar loka netbönkum vegna vírusárásar

Viðskiptavinir netbanka um alla Danmörku hafa ekki lengur aðgang að reikningum sínum. Danskir bankar hafa lokað aðgangi að netbönkum landsins vegna tölvuvírusárásar sem nú er í gangi á tölvukerfi netbankanna.

Írsk stjórnvöld segja landið ekki vera Ísland

Írsk stjórnvöld segja að fjármálakerfi þeirra sé "ekki Ísland,, viðmið sem heyrist nú æ oftar úr ranni stjórnmálamanna sem reyna að verja traust og trúverðugleika fjármálakerfis síns heimavið.

Borgarísjakinn sem sökkti Íslandi á leið til Bretlands

„Hlutir í félaginu Gordon Brown (Titanic) Enterprises Ltd eru í frjálsu falli eftir því sem skuldirnar aukast og björgunarbátar atvinnumiðlana fyllast. Dekkið er fullt af bankamönnum á flótta frá City (eða Reykjavik-on-Times). Sumir segja að borgarísjakinn sem sökkti Íslandi sé á leiðinni hingað tilbúin að sökkva okkur með eitruðum skuldum sem liggja undir vatnsyfirborðinu.“

Kreppa í Bretlandi

Kreppa er nú í Bretlandi, samkvæmt nýjustu gögnum hagstofunnar þar í landi sem benda til að samdráttar hafi gætt í hagkerfinu þar í landi í tvö ársfjórðunga í röð.

Microsoft mun segja upp 5.000 manns

Hugbúnaðarframleiðandinn Microsoft boðar niðurskurð um rúmlega fimm prósent af mannafla fyrirtækisins næstu 18 mánuðina.

Asíubréf lækka - hátæknifyrirtækin blæða

Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og má að hluta rekja þá lækkun til frétta af tapi hjá Sony og Samsung en bréf fyrrnefnda fyrirtækisins lækkuðu um sjö prósent í kjölfar tilkynningar um rekstrarhalla, þann fyrsta í 14 ár.

Apple blæs á svartsýnisspár

Jákvæðar afkomutölur bandarískra tæknifyrirtækja á borð við Apple og IBM hífðu hlutabréfamarkað vestanhafs upp í fyrradag eftir skell daginn áður þegar S&P 500-hlutabréfavísitalan féll um rúm fimm prósent.

Sony tapar í fyrsta sinn í 14 ár

Japanski hátækniframleiðandinn Sony gerir ráð fyrir að skila tapi upp á 150 milljjarða jena, jafnvirði 216 milljarða íslenskar króna, vegna síðasta árs. Gangi það eftir verður þetta í fyrsta sinn í fjórtán ár sem mínus færist í bækur fyrirtækisins.

Hækkun á Asíumörkuðum í morgun

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í morgun eftir að seðlabanki Japans gaf það út að til skoðunar væri að hann keypti skuldabréf fyrirtækja til að koma í veg fyrir algjöra lánsfjárþurrð þeirra. Útflutningur Japana dróst saman um 35 prósent í desember samkvæmt nýrri skýrslu en það gefur til kynna að efnahagskreppan leggist enn þyngra á japanska hagkerfið en talið hafði verið og dragi úr áhuga fjárfesta á þarlendum fyrirtækjum.

Forstjóri settur til hliðar

Stjórn bresku íþróttavöruverslunarinnar JJB Sports greindi frá því í fyrradag að forstjóranum, Chris Ronnie, hefði verið vikið tímabundið frá störfum.

Hrollvekjandi tölur að koma um hagvöxtinn í Kína

Tölulegar upplýsingar um landsframleiðslu Kína á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verða birtar á morgun. Greinendur og sérfræðingar segja að þessar tölur muni verða hrollvekjandi fyrir efnahagskerfi heimsins því reiknað er með að hagvöxtur Kína á þessu tímabili hafi í besta falli verið í kringum núllið.

Íbúðir seldar á hálfvirði í Danmörku

Fasteignamarkaðurinn í Danmörku er svo djúpfrosinn í augnablikinu að fólk reynir að selja íbúðir sínar á hálfvirði. Og í einstöku tilfellum er gefinn allt að 65% afsláttur frá skráðu verði.

Feng shui meistari segir markaði róast á ári uxans

Fjárfestar um allan heim geta nú tekið gleði sína upp að nýju eftir anno horribiles í fyrra. Feng shui meistari í Hong Kong segir að fjármálamarkaðirnir muni róast á ári uxans sem brátt gengur í garð.

ESB samþykkir ríkisábyrgð Finna gagnvart Kaupþingi

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú samþykkt ríkisábyrgð á innistæðum Kaupþings í Finnlandi. Fréttastofan greindi frá misvísandi fréttum um málið í gærdag en nú mun þetta komið á hreint.

Kreppan kemur við kaunin á öllum Norðurlandanna

Það er ekki svo að Ísland sé eitt á báti í því að vera að upplifa samdrátt. Reiknað má með samdrætti á öllum Norðurlöndunum í ár samkvæmt spá norræna bankans Nordea sem birti hagspá sína í gær.

Íslensku bankarnir skildu eftir lánaþurrð í Bretlandi

Lánsfjárkreppa hefur leikið breskt atvinnulíf hart að undanförnu enda hafa helstu lánveitendur til fyrirtækja þar í landi, íslensku bankarnir þrír og Lehman Brothers horfið á sjónvarsviðinu. Íslenska bankahrunið skapaði sem sagt lánaþurrð í Bretlandi að því er segir í Financial Times.

Bank of Montreal dregur Landsbankann að landi

Kanadíska sjávarréttafyrirtækið High Liner Foods hefur samið við Bank of Montreal um að bankinn taki yfir sem einn af aðallánveitendum fyrirtækisins í stað gamla Landsbankans.

Forstjóra JJB Sports vikið frá störfum

Stjórn verslunarkeðjunnar JJB Sports hefur ákveðið að víkja Chris Ronnie forstjóra keðjunnar tímabundið frá störfum. Samkvæmt breskum fjölmiðlum á hann vart afturkvæmt í starfið.

Asíubréf lækkuðu í morgun

Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun og fundu fjármálafyrirtæki og málmframleiðendur mest fyrir lækkuninni. HSBC-bankasamsteypan, sem á tvo banka í Hong Kong, lækkaði um 3,5 prósent og stærsta líftryggingafyrirtæki Kína um 5,9 prósent í kjölfar yfirlýsingar þess um að tekjur þess muni dragast saman um nær helming milli ára.

Bandarísk hlutabréf hríðféllu í gær

Bandarísk hlutabréf hríðféllu í verði í gær og er áhyggjum af hag bankastofnana kennt um. Svo mikil var lækkunin að Dow Jones-vísitalan hefur aldrei fallið jafnmikið, þann dag sem bandarískur forseti sver embættiseið, þau 112 ár sem liðin eru síðan vísitalan var fyrst gefin út árið 1896 en hún féll um fjögur prósent.

Dregur úr verðbólgu

Verðbólga mældist 3,1 prósent í Bretlandi í desember, samkvæmt tölum bresku hagstofunnar, sem birtar voru í gær.

Bréf í LBG hríðféllu í verði

Hlutabréf í Lloyds Banking Group lækkuðu gríðarlega í dag, enda aukast áhyggjur af fjármálakerfi Bretlands dag frá degi.

Olíuverðið á leið niður í 30 dollara á tunnuna

Heimsmarkaðsverð á olíu er nú á hraðleið niður í 30 dollara á tunnuna. Á markaðinum í New York er verðið komið undir 34 dollara og Goldman Sachs gerir ráð fyrir að verðið verði í rúmum 32 dollurum fyrir mánaðarmótin.

Hlutabréf lækka víða vegna taps Skotlandsbanka

Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og það sama gerðu bréf á Wall Street og í Bretlandi í gær eftir að fréttir bárust af gríðarlegu tapi Skotlandsbanka en fjárfestar óttast að mun fleiri fjármálastofnanir séu á sömu leið.

Breskir bankar á fallandi fæti

Hlutabréf banka og fjármálastofnana í Bretlandi hríðféllu á mörkuðum í gær. Fallið varð þrátt fyrir nýja áætlun til bjargar fjármálakerfinu sem Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, kynnti í gær.

Íhaldsstjóri ráðlagði Bretum að leggja inn á Icesave

Michael Spencer fjármálastjóri breska Íhaldsflokksins ráðlagði sveitarstjórnum í Bretlandi að leggja fé sitt inn á Icesave reikninga Landsbankans þar í landi og Edge hjá Kaupþingi. Jafnframt þáði hann umboðslaun frá þessum bönkum fyrir hvern viðskiptavin sem hann útvegaði þeim.

Pólskur banki afskrifar lán á Íslandi

Það bætist stöðugt við þá flóru landa þar sem bankar og fjármálafyrirtæki þurfa að afskrifa milljónir eða milljarða vegna hruns íslenska bankakerfisins. Nú hefur BRE bankinn í Póllandi bætst í hópinn en hann er þriðji stærsti banki Póllands.

Bretar reyna að bjarga bankakerfinu

Stjórnvöld í Bretlandi kynnu í morgun nýjar aðgerðir til bjargar bankakerfinu þar í landi. Þetta er í annað sinn sem það er gert á þremur mánuðum. Með þessu á að fá fjármálastofnanir til að lána fólki og fyrirtækjum aftur.

Sjá næstu 50 fréttir