Fleiri fréttir

Tap deCode nemur tæpum 1,5 milljörðum króna

deCode skilaði 22,6 milljóna dala taprekstri á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 1.458 milljónum íslenskra króna. Til samanburðar nam tap fyrirtæksins 20,3 milljónum dala, 1.309 milljónum króna, á sama tíma í fyrra.

Treysta öðrum en íslenskum fyrirtækjum

Íslenskir áhrifavaldar bera mest traust til sænskra, þýskra og kanadískra alþjóðafyrirtækja. Íslensk fyrirtæki lenda í fjórða til fimmta sæti yfir þau fyrirtæki sem mesta traustsins njóta. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar Capacent Gallup og AP almannatengsla á trausti íslenskra „áhrifavalda“.

Hillary Clinton á MySpace

Hillary Clinton er komin á MySpace. Þetta vinsæla netsamfélag stefnir á sýndarkosningar snemma á næsta ári og vonast til að niðurstöður gefi til kynna hver verði næsti forseti Bandaríkjanna. Aðeins meðlimir búsettir í Bandaríkjunum fá að taka þátt í sýndarkosningunum sem fara fram á netinu snemma á næsta ári.

Lárus tekur við forstjórastóli í Glitni

Lárus Welding hefur verið ráðinn forstjóri Glitnis. Hann tekur við starfinu af Bjarna Ármannssyni sem hefur gegnt starfi forstjóra í 10 ár. Lárus Welding hefur verið framkvæmdastjóri Landsbanka Íslands í Lundúnum frá 2003 en hann hóf starfsferil sinn innan bankakerfisins á fyrirtækjasviði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins árið 1999. Fjárfestingarbankinn rann saman við Íslandsbanka árið 2000 og heitir nú Glitnir.

Forrit sem drepur farsímann þinn

Með „Killpill“ getur þú eytt myndum og SMS skilaboðum ef símanum þínum er stolið. Ef símanum þínum er stolið vilt þú ekki að þjófurinn skoði myndirnar sem þú og kærastan tókuð á „góðri stundu“, eða SMS-skilaboðin þar sem þú ert minntur á tímann á Húð og hitt.

Tíðindalaust á hluthafafundi Glitnis

Tíðindalaust var á þéttsetnum hluthafafundi Glitnis sem lauk um klukkan hálf þrjú dag. Ný stjórn bankans tók við af fráfarandi stjórn og situr hún nú á sínum fyrsta fundi.

Stærsta þráðlausa net Evrópu

Fjármálahverfi London er orðið að stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu. 350.000 Lundúnabúar sækja vinnu í „The Square Mile“ fjármálahverfinu í Lundúnum dag hvern. Þeir geta nú verið í netsambandi hvar sem er innan hverfisins því í vikunni vígðu yfirvöld og Cloud information stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu.

Glitnir spáir 4,3 prósenta verðbólgu

Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent á milli mánaða í maí. Gangi það eftir mun ársverðbólga lækka úr 5,3 prósentum í 4,3 prósent. Helstu ástæðurnar fyrir verðbólgulækkuninni eru minni verðhækkanir á húsnæði og í apríl auk þess semaðgerðir stjórnvalda á neysluverði hafi skilað sér.

Hagnaður Glitnis 7 milljarðar króna

Hagnaður Glitnis banka nam sjö milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 2,1 milljarði króna minna en á sama tíma fyrir ári. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna sem gerðu ráð fyrir allt frá 6,8 til 7,7 milljarða króna hagnaði á tímabilinu.

Fall á tyrkneskum hlutabréfamarkaði

Gengi hlutabréfa í kauphöll Tyrklands féll um 8 prósent við opnun markaða í dag eftir að orðrómur fór á kreik að herinn muni koma í veg fyrir val á nýjum forseta landsins. Líran, gjaldmiðill Tyrklands, hefur sömuleiðis lækkað um 4 prósent í dag.

Mjög dregur úr vöruskiptahallanum

Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 9,1 milljarð króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er umtalsverð breyting frá sama tíma í fyrra en þá nam hallinn á vöruskiptum 36,2 milljörðum króna. Af þessum þremur mánuðum nam halli á vöruskiptum í mars 4,5 milljörðum króna. Til samanburðar voru vöruskiptin óhagstæð um 18,2 milljarða krónur fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands.

Google gert að færa smáþorp

Chile Ríkisstjórn Chile hefur farið þess á leit við forsvarsmenn Google að þeir geri lagfæringar á landafræðileitarvél sinni, Google Earth, vegna þess að chileskur bær er í Argentínu í kerfinu.

Sala Novators á hlut sínum í BTC á lokastigi

Viðræður Novators, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, um sölu á 65 prósent hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC eru nú á lokastigi. Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, upplýsingafulltrúa Novators, á félagið í viðræðum við tvo mögulega kaupendur en ekkert hafi verið ákveðið. Hann segir fréttir þessa efnis að búið sé að ganga frá sölusamningi rangar og ennfremur sé það rangt að Novator sé að draga sig út úr fjarskiptarekstri í austur Evrópu.

Dow Jones í toppi - hagvöxtur undir væntingum

Dow Jones vísitalan sló enn eitt metið í gær og hefur ekki verið hærri frá því fyrir árið 2001 þegar samdráttur varð í bandarísku efnahagslífi. Hagvaxtartölur sem kynntar voru í Bandaríkjunum í gær voru hins vegar töluvert lægri en gert var ráð fyrir, eða 1,3 prósent í stað tveggja. Þetta er þó nokkur lækkun frá fyrra ársfjórðungi þegar var hagvöxtur 2,5 prósent.

Novator að yfirgefa símamarkaðinn

Erlendir fjölmiðlar herma að Novator, fjárfestingafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hafi selt 10,8 prósenta hlut sinn, um helmingseign sína, í gríska símafélaginu Forthnet til þarlendra stofnanafjárfesta og annarra aðila. Novator er sagt vera að hverfa af símamarkaði í A-Evrópu.

Zunepartý skemmir fyrir Xbox 360

Microsoft hefur gefið út árshlutauppgjör fyrir þriðja hluta viðskiptaársins. Afþreyingar og tækjadeild fyrirtækisins hefur ekki gengið nógu vel þrátt fyrir að búið sé að afgreiða yfir 11 miljón eintök af Xbox 360.

Íslenskir fjárfestar atkvæðamiklir í Svíþjóð

Íslenskir fjárfestar hafa verið atkvæðamiklir á sænskum hlutabréfamarkaði á árinu og fjárfest grimmt í sænskum stórfyrirtækjum. Í Dagens Industri kemur fram að Landsbankinn hefur tekið hlutabréfastöður í Nordea, Electrolux, tóbaksframleiðandanum Swedish Match og leikjafyrirtækinu Net Entertainmet.

Meðalupphæð kaupsamninga hæst á Árborgarsvæðinu

291 kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, á Árborgarsvæðinu og á Akureyri í vikunni. Meðalupphæð samninganna var hæst á Árborgarsvæðinu, 32,4 milljónir króna, næsthæst á höfuðborgarsvæðinu, 30,2 milljónir króna, en lægst á Akureyri þar sem meðalupphæðin var 19,9 milljónir króna á Akureyri, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.

Hagvöxtur í Bandaíkjunum langt undir spám

Hagvöxtur jókst um 1,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum hagstofu Bandaríkjanna. Hagvöxtur hefur ekki verið jafn lítill í fjögur ár. Fréttirnar ollu því að gengi bandaríkjadals lækkaði á markaði og hefur aldrei verið jafn lágur gagnvart evru.

Svefnlyf frá Actavis á markað í Bandaríkjunum

Actavis hefur fengið samþykki bandarísku Matvæla og lyfjastofnunarinnar (FDA) fyrir skráningu á svefnlyfinu Zolpidem Tartrate á markað í Bandaríkjunum. Lyfið verður markaðssett í samvinnu við Carlsbad Technology, Inc., og hefst dreifing lyfsins nú þegar.

Hagnaður FL Group jókst um 158 prósent

Fjárfestingafélagið FL Group skilaði 15,1 milljarðs króna hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 158 prósenta aukning á milli fjórðunga. Hannes Smárason, forstjóri félagsins, segist afar ánægður með niðurstöðuna og er þess fullviss að núverandi aðferðafræði félagsins gefi möguleika á að nýta þau tækifæri sem kunni að koma upp í framtíðinni.

2.200 prósenta verðbólga í Zimbabve

Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve jókst um 500 prósent á milli mánaða og mældist 2.200 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur aldrei nokkru sinni í sögu nokkurs lands mælst hærri. Ríkisstjórn landsins vann að því í lengstu lög að fresta birtingu verðbólgutalna mánaðarins á meðan landsmenn fögnuðu 27 ára sjálfstæðisafmæli.

FL Group kaupir í Commerzbank

FL Group hefur eignast 2,99 prósenta hlut í Commerzbank, öðrum stærsta banka Þýskalands. Markaðsvirði hlutarins nemur 63,5 milljörðum króna. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir markaðsvirði bankans ekki endurspegla þann bata sem hafi orðið á starfseminni í Þýskalandi og í öðrum löndum þar sem bankinn hefur starfsemi.

Royal Bank of Scotland býður í ABN Amro

Þrír stórir bankar undir forystu Royal Bank of Scotland hafa staðfest að þeir ætli að gera yfirtökutilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Bankarnir segja tilboð sitt mun betra en breski bankinn Barclays hefur lagt fram. Þrýsta þeir á stjórn ABN Amro að hún fjalli fljótlega um málið.

Vísitala framleiðsluverðs óbreytt milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í mars hélst óbreytt frá því í mánuðinum á undan en þá lækkaði hún um 3,1 prósent á milli mánaða, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkar um 0,3 prósent og vísitala fyrir stóriðju hækkar á móti um 0,4, svo eitthvað sé nefnt.

Kjaraskertir forstjórar

Í nýjasta tölublaði Vísbendingar er góðlátlegt grín gert að flýtisvillu mbl.is fyrir helgi þar sem svissneskir forstjórar voru sagðir hæst launaðir í Evrópu. Það er satt og rétt þótt í fréttinni væri haft eftir ráðgjafarfyrirtæki að þeir væru með rétt rúma milljón á mánuði, samkvæmt sömu frétt voru franskir forstjórar með 325 þúsund kall á mánuði.

Samkeppni um athygli

Aflýst var óvænt í gær töluvert auglýstum fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga undir yfirskriftinni „Samkeppnishæft viðskiptaumhverfi eftir kosningar?“ Stórkanónur stjórnmálanna áttu að sitja fyrir svörum á hádegisverðarfundi undir fundarstjórn Ólafs Ísleifssonar, lektors við viðskiptadeild Háskólans i Reykjavík.

Lundúnir kalla

Starfsmenn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis halda upp á árshátíð fyrirtækisins í Lundúnum um helgina og glæstan árangur á síðasta ári þegar hagnaðurinn nam níu milljörðum króna. Yfir 200 manns vinna hjá SPRON.

Minni hagnaður hjá Mosaic Fashions

Tískuverslanakeðjan Mosaic Fashions skilaði hagnaði upp á 10,7 milljón pund, jafnvirði 1.377 milljóna íslenskra króna, á fjórða rekstrarfjórðungi sem lauk í enda mars. Þetta er nokkur samdráttur á milli ára en keðjan, sem rekur nokkrar tískuvöruverslanir undir fyrirtækjahatti sínum víða um heim, skilaði 12,6 milljóna punda hagnaði í fyrra eða 1.621 milljónum króna.

Windows Vista jók hagnað Microsoft

Hagnaður bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft jókst um 65 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi fyrirtækisins, sem lauk í enda marsmánaðar. Ástæðan liggur í tekjum af sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, og hugbúnaðarvöndlinum Office 2007, sem kom út í janúar.

Dow Jones enn á uppleið

Dow Jones hlutabréfavísitalan sló enn eitt metið í dag þegar hún endaði í 13.132,80 stigum nú undir kvöld. Vísitalan hefur verið á hraðri uppleið síðan í síðustu viku og hefur slegið hvert metið á fætur öðru. Greinendur sem breska ríkisútvarpið ræddu við í gær segja að menn bíði þess nú að vísitalan rjúfi 14.000 stiga múrinn. En aðrar vísitölur eru nálægt sínu hæsta gildi.

Stærsta sambankalán í sögu Icebank

Icebank undirritaði í dag 217 milljóna evra sambankalán til þriggja ára hjá 34 evrópskum bönkum. Lánið samsvarar 19 milljörðum íslenskra króna. Fénu verður varið til endurfjármögnunar eldri lána og fjármögnunar áframhaldandi vaxtar bankans. Lánið var undirritað í Berchtesgaden í Þýskalandi.

Armbandsúr gert úr skipsskrokki Titanic

Svissneski úrasmiðurinn Romain Jerome SA hefu kafað djúpt eftir innblæstri í nýjustu hönnun sína. Alla leiðina niður að braki Titanic. Hann hefur tryggt sér brot úr grotnandi skipsskrokknum til að búa til Titanic DNA armbandsúr.

Hagnaður Bakkavarar 1,2 milljarðar króna

Bakkavör Group skilaði 1,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Afkoman á fjórðungnum er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir fjórðunginn lofa góðu enda sé búist við miklum vexti á markaði með ferskar matvörur í Evrópu og Kína á næstu fjórum árum.

Exista selur hlut sinn í IGI Group

Exista hefur selt hlut sinn í breska tryggingafélaginu IGI Group Ltd, 54,4 prósent hlutafjár, til alþjóðlega tryggingafélagsins AmTrust Insurance. Salan mun hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag samstæðunnar en samkvæmt samningi er söluverðið trúnaðarmál, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

65 milljóna króna demantsfartölva

Fartölvan frá Luvaglio mun kos ta 65 milljónir. Meira er vitað um útlit hennar en innviði. Fyrir nokkrum vikum sögðum við frá milljón dala fartölvu frá breska snobbfyrirtækinu Luvaglio. Meira er vitað um tölvuna núna, þó svo að innviðir hennar séu enn leyndarmál.

Ford ekur inn í betra ár

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford skilaði taprekstri á ný á fyrsta fjórðungi ársins. Fyrirtækið hefur skorið grimmt niður til að draga úr kostnaði. Það virðist hafa tekið því tapreksturinn í ár er talsvert minni en á sama tíma í fyrra.

Dow Jones-vísitalan á ný í methæðum

Dow Jones-vísitalan fór á ný í methæðir við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag. Vísitalan hækkaði um 29 punkta og fór í 13.118,58 stig og hefur aldrei verið hærri. Hún hefur dalað lítillega eftir því sem liðið hefur á daginn.

Sparisjóðir Skagafjarðar og Siglufjarðar sameinast

Stjórnir Sparisjóðs Skagafjarðar og Sparisjóðs Siglufjarðar hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna. Í tillögu sem lögð verður fyrir fund stofnfjáreigenda er gert ráð fyrir því að eigið fé hins sameinaða sjóðs verði um einn milljarður króna.

Uppsagnir hjá Peugeot

Líkur eru á að allt að 4.800 manns verði sagt upp störfum á árinu hjá franska bílaframleiðandanum Peugeot í sparnaðarskyni en sala á bílum fyrirtækisins hefur minnkað á sama tíma og efniskostnaður hefur hækkað.

Systirin selur bræðrum sínum

Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir hafa keypt ríflega fjórðungshlut Ingunnar, systur þeirra, í alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Milestone og eiga þar með félagið að öllu leyti. „Við höfum verið í farsælu samstarfi í nokkur ár. Það lá fyrir tilboð frá henni til okkar bræðra sem við tókum. Tímapunkturinn var því ágætur fyrir alla,“ segir Karl.

Ingvar Helgason kaupir AVIS og Budget

Ingvar Helgason hefur keypt fyrirtækið ALP sem rekur bílaleigurnar AVIS og Budget á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu frá félögunum að stofnað verði sérstakt eignarhaldsfélag um þessa fjárfestingu.

Sjá næstu 50 fréttir